Morgunblaðið - 30.11.2019, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
INTERFLON
Matvælavottaðar efnavörur
Nýjar umbúðir,
sömu gæða efnin
Er ráðlegt að fela
stofnun sem ræður
ekki fullkomlega við
núverandi verkefni sín
meiri völd?
Er ráðlegt að fela
stofnun sem ræður
ekki fullkomlega við
núverandi verkefni sín
meiri völd?
Upphaflegur til-
gangur Embættis
ríkisskattstjóra (RSK) var að hafa
yfirumsjón með skattlagningu í
landinu og vera skattstofum til
halds og trausts en skattstofurnar
heyra nú til liðinni tíð. RSK hefur
yfirtekið verkefni þeirra og al-
mennt séð hefur RSK í gegnum tíð-
ina leyst verkefni sín af nokkurri
kostgæfni og sanngirni. Þetta hefur
þó breyst merkjanlega á síðasta
áratug þegar eldri starfsmenn
víkja fyrir yngri, en sú augljósa
breyting er orðin að þekking á við-
skiptalífinu hefur minnkað og gild-
ustu rökin eru nú oft á tíðum að
tölvan segir nei.
Verkefni RSK
Stofnunin hefur breyst mikið og
nú má líta á RSK sem skrautlegt
jólatré. Þetta helgast meðal annars
af þeim ólíku, óþörfu og jafnvel
óviðeigandi og illa samrýmanlegu
hlutverkum sem RSK gegnir.
Undir RSK heyra nú eftirfarandi
verkefni og svið: Álagning opin-
berra gjalda, innheimta opinberra
gjalda, Fyrirtækjaskrá, ársreikn-
ingaskrá, eftirlit með peninga-
þvætti og ugglaust styttist í inn-
limum ríkisendurskoðunar.
Þjónusta RSK
Starfsumhverfi RSK hefur á síð-
ustu árum án efa breyst til hins
verra eftir að ferðaþjónustan var
tekin inn í virðisaukaskattskerfið
með auknu álagi en sú breyting
virðist ekki hafa verið nægilega vel
undirbúin. Þetta hefur á síðustu ár-
um leitt til versnandi þjónustu hjá
stofnuninni og óásættanlegum töf-
um á afgreiðslu mála með tilheyr-
andi óþægindum fyrir skattþegna.
Lagatúlkun RSK virðist í aukn-
um mæli fara eftir tilfinningu og
birtist þetta meðal
annars í lagasnið-
göngu og undan-
brögðum á lögbund-
inni leiðbeininga-
skyldu og aðstoð.
Fyrirspurnum er jafn-
vel ekki svarað þrátt
fyrir ítrekaða eftir-
grennslan. Þessi
óþægindi ásamt auk-
inni skattheimtu og
alls kyns álögum á at-
vinnurekstur ýta á
skattþegna að leita út
fyrir Ísland í vinsamlegra um-
hverfi.
Peningaþvætti
Eftirlit með peningaþvætti er nú
fyrir komið hjá RSK og er opið í
trúnaðarupplýsingar innan stofn-
unarinnar. Skattþegnarnir voru
þegar komnir í spennitreyju eftir-
litsins þar sem mikið vald hafði
safnast á einn stað og nú er bætt í.
Er ráðlegt að fela stofnun sem
ræður ekki fullkomlega við núver-
andi verkefni sín meiri völd?
Svo segir á heimasíðu RSK um
peningaþvætti:
Með hugtakinu grunur er vísað
til lægsta stigs gruns, þ.e. að sér-
hver grunur, óháð því hve mikill
hann er, uppfyllir skilyrði greinar-
innar um grun. Með grun er því að
þessu leyti ekki gerð jafn ítarleg og
afdráttarlaus krafa og almennt
gildir í réttarfari um rökstuddan
grun. Væri í þessu sambandi
nægjanlegt að grunur kviknaði um
að fjármuni kunni að mega rekja til
refsiverðrar háttsemi hvort sem sá
grunur reynist síðar meir hafa ver-
ið reistur á fullnægjandi rökum eð-
ur ei.
Í lögum um peningaþvætti er
orðið grunur ljóslega nafnorð. Ekki
er vitað til þess að grunur sé lýs-
ingarorð hvað þá hvernig það stig-
beygist. Ekki verður séð að í lögum
um peningaþvætti sé að finna heim-
ild til að skilgreina orðið grunur
sem lýsingarorð eða teygja og toga
merkingu þess.
Sektir
RSK hefur að lögum sektarvald
á víðu sviði. Verði mögulegt pen-
ingaþvætti, vel að merkja vegna
lægsta stigs gruns, ekki tilkynnt
geta sektir orðið sbr. lagaákvæði:
Stjórnvaldssektir sem lagðar eru
á tilkynningarskylda aðila skv. a-h-
lið 1. mgr. 2. gr. geta numið frá 5
millj. kr. til 800 millj. kr. Stjórn-
valdssektir sem lagðar eru á starfs-
menn tilkynningarskyldra aðila
geta numið frá 500 þús. kr. til 625
millj. kr.
Þannig getur mögulega verið
dýrara að segja ekki frá ekki-grun
en fremja undirliggjandi brot. Eins
og að framan er lýst ætti engum að
dyljast að mikil völd og upplýs-
ingar eru samankomin á einum og
sama stað og tækifæri RSK til
sekta eru ærin. Efi á ýmsum stig-
um læðist að um hæfni RSK til
verksins.
Lögfræði á lokastigi
Í ákveðnum tilfellum þarf bráð-
nauðsynlega að færa sektar-
ákvörðun úr höndum þess aðila
sem fer með eftirlit og/eða rann-
sóknir.
Hlutverk RSK við skatteftirlit
byggist á því að gæta jafnt hags-
muna ríkissjóðs sem skattþegna, þó
að reyndin sé á stundum allt önnur.
Hið nýja löggæsluhlutverk RSK
fellur ekki vel að þeirri hugmynda-
fræði sem skattlagning og aðstoð
við skattþegna skyldi best byggjast
á.
Ef lægsta stig gruns er ekki eng-
inn grunur þá er ekkert lægsta stig
til. En skyldi vera til lægsta stig
lögfræði?
Opinber krafa frá RSK til
borgaranna varðandi lægsta stig
gruns hefði þýtt einföldun fyrir fé-
laga Beria forðum, sem taldi sig
þurfa að vísa fram glæp ef honum
var sýndur maðurinn. Miðað við
texta RSK þarf ekki að leggja
mikla vinnu í saksóknina en það
virðist geta orðið snúið að hnekkja
sektarákvörðun.
Hin mörgu andlit RSK
Eftir Jón Þ.
Hilmarsson »Er ráðlegt að fela
stofnun sem ræður
ekki fullkomlega við nú-
verandi verkefni sín
meiri völd?
Jón Þ. Hilmarsson
Höfundur er endurskoðandi.
jon@vsk.is
Eldri borgarar
landsins eru mjög fjöl-
mennir og mun fjölga
mikið á næstu árum.
Stór hópur eldri borg-
ara hefur það alveg
ágætt fjárhagslega en
það er einnig stór hóp-
ur eldri borgara sem
verður að sætta sig við
verulega léleg kjör.
Mörgum finnst
undarlegt að núverandi ríkisstjórn
skuli lítið hlusta á skrif og tillögur
okkar sem erum í forsvari fyrir
Landssamband eldri borgara.
Ég fæ oft að heyra það að minn
flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn,
standi í veginum fyrir að eldri borg-
arar fái sanngjarnar kjarabætur.
Hvernig getur þú alltaf stutt Sjálf-
stæðisflokkinn sem ekkert vill gera
fyrir okkur? Þú skrifar og skrifar
greinar til að berjast fyrir okkur
eldri borgara en félagar þínir í
Sjálfstæðisflokknum hlusta ekkert
á þig.
Nú er það alls ekki sanngjarnt að
segja að ekkert hafi verið gert til
bæta hag okkar. Við njótum góðs af
skattalækkunum, vaxtalækkunum
og stöðugleika. Ekki má gleyma
þessum þáttum.
En er það rétt að það sé andstætt
stefnu Sjálfstæðisflokksins að ræða
þau mál sem ég og fleiri höfum sett
á oddinn.
Hver er stefna
Sjálfstæðisflokksins?
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins er samkoma þar sem vel á annað
þúsund flokksbundnir mæta til að
marka stefnuna í margs konar
hagsmunamálum fyrir land og þjóð.
Í stefnumálum Sjálf-
stæðisflokksins hvað
varðar málefni eldri
borgara segir:
að 45% skerðing-
arprósenta almanna-
trygginga verði lækk-
uð í áföngum og færð
niður í 40% á þessu ári.
að hið almenna
frítekjumark verði
hækkað úr 25 þús. kr.
upp í 50 þús. kr. á
mánuði.
Þingmenn fari eftir
stefnu flokksins
Þetta eru þau mál sem ég legg
áherslu á í mínum málflutningi. Það
hlýtur að vera eðlileg krafa að þing-
menn Sjálfstæðisflokksins fari eftir
þeirri stefnu sem samþykkt var á
Landsfundi flokksins. Þessa stefnu í
málefnum er hægt að lesa á heima-
síður flokksins xd.is
Vel má vera að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi barist fyrir þessum
málum í ríkisstjórn en að fram-
sóknarmenn og vinstri græn hafi al-
farið lagst á móti. Ég á reyndar erf-
itt með að trúa því.
Það sem ég er að fara fram á sem
góður og gegn sjálfstæðismaður er
að þingmenn flokksins fari eftir
stefnu hans.
Eftir Sigurð
Jónsson
» Stefna Sjálfstæðis-
flokksins: að hið
almenna frítekjumark
verði hækkað úr 25 þús.
kr. á mánuði upp í 50
þús. kr. á mánuði.
Sigurður Jónsson
Höfundur er formaður kjaranefndar
Landssambands eldri borgara.
Stefna Sjálfstæðis-
flokksins í málum
eldri borgara
„Vilt þú hafa allt í föstum skorð-
um?“ Það er klipparinn minn sem
segir þetta. Hún er dálítið vígaleg
þar sem hún stendur yfir mér
með skærin og er greinilega
ósammála.
En ég held því til streitu að
það sé til fólk sem ekki vill kasta
öllum reglum og hefðum sam-
félagsins út í ystu myrkur og taka
upp hætti sjóræningja með eigin
viðmiðum um hvað sé rétt og
rangt.
Einu sinni var flokkur sem stóð
við gömlu gildin og bar engan
kinnroða fyrir að vera kallaður
íhald. Þeim flokki gekk býsna vel
og hafði þegar best lét tvöfalt
fylgi á við þann næsta.
Nú er það popúlisminn sem er
mest ráðandi. Upplausnarflokkar
hafa hæst og stjórna umræðunni,
sem gengur út á að brjóta niður
vestræna menningu og allt sem
unnist hefur í sex hundruð sumur.
Engir taka til varna fyrir þjóð-
ina en elta öfgafólkið út í ófæruna
hugsunarlaust. Mín sannfæring er
sú að stór hluti kjósenda myndi
vilja öfgalausan „íhaldsflokk“ með
heilbrigðum gildum, til mótvægis
við niðurbrotsflokkana sem nú
bjóðast.
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Lýðskrum, og allir eins
Ljósmynd/Tim Mossholder, Unsplash
Lýðskrum Fastir liðir eins og venjulega.