Morgunblaðið - 30.11.2019, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2019
Atvinnuauglýsingar
Háskóli Íslands leitar að öflugum leiðtoga fyrir Félagsvísindasvið sem er eitt af fimm
fræðasviðum háskólans. Forseti Félagsvísindasviðs starfar í umboði rektors. Hann er
æðsti yfirmaður og akademískur leiðtogi fræðasviðsins og stjórnar daglegri starfsemi
þess. Með forseta fræðasviðs starfar öflugt teymi stjórnenda og sérfræðinga.
Ráðið verður í starfið til fimm ára og er áætlað að ráða í starfið frá 1. júlí 2020. Á grundvelli laga nr. 85/2008
um opinbera háskóla og reglur sem háskólaráð hefur sett getur rektor ákveðið að framlengja ráðningu forseta
fræðasviðs til fimm ára í senn. Forseti fræðasviðs er ráðinn af rektor að fenginni umsögn sérstakrar nefndar
um ráðninguna.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 6. janúar 2020.
Sækja skal um starfið á starfatorg.is. Með umsókn þarf að fylgja greinargerð um framtíðarsýn
umsækjenda og hvernig hann hyggst vinna samkvæmt stefnu Háskóla Íslands 2016-2021.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Við ráðningu í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Ísaksdóttir, sviðsstjóri starfsmannasviðs Háskóla Íslands,
netfang ragnhildurisaks@hi.is, sími 525-4355.
Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og stærsta kennslu-, rannsókna- og
vísindastofnun landsins. Um 1.500 starfsmenn starfa í föstum störfum við skólann
og um 2.200 eru lausráðnir. Nemendur við skólann eru um 13.000. Háskóli Íslands
starfar á fimm fræðasviðum, býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli
landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám í öllum helstu fræðigreinum.
Á Félagsvísindasviði starfa á þriðja hundrað manns að kennslu og rannsóknum.
Vísindafólk sviðsins stundar grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og þjónustu-
rannsóknir og lögð er áhersla á fjölbreytta miðlun þekkingar, öflugar
samræður víð íslenskt samfélag og alþjóðlega fræðasamfélagið.
Forseti fræðasviðs ber m.a. ábyrgð á:
• Útfærslu og framkvæmd stefnu Háskóla Íslands
á vettvangi fræðasviðs
• Fjármálum og rekstri fræðasviðs og stofnana
sem undir það heyra
• Gæðum kennslu, rannsókna og þjónustu
• Starfsmannamálum
• Öflugri liðsheild og faglegu samstarfi
• Tengslum við innlenda og erlenda samstarfsaðila
• Stjórnsýslu og stoðþjónustu fræðasviðsins
Umsækjendur skulu hafa:
• Akademískt hæfi sem og þekkingu og reynslu
á háskóla- og/eða rannsóknaumhverfi,
• Leiðtogahæfileika,
• Metnaðarfulla og skýra framtíðarsýn,
• Ríka samskiptahæfni,
• Farsæla reynslu af stjórnun og stefnumótun.
P
ip
ar
\T
BW
A
\ S
ÍA
FORSETI FÉLAGSVÍSINDASVIÐS
ÖRYGGISVÖRÐUR
SECURITY GUARD
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu
öryggisvarðar lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 8. desem-
ber 2019. Frekari upplýsingar er að finna á
heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic
Recruitment Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking
an individual for the position of Security
Guard. The closing date for this postion is
December 8, 2019. Application instruct-
ions and further information can be found
on the Embassy’s homepage:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA)
Tilkynningar
Breytingar á deiliskipulagi
við Fljótsdalshérað.
Óveruleg breytingu á deiliskipulagi
Norðvestursvæði Egilsstaða.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi
sínum þann 8. maí sl., tillögu að óverulegri breytingu
á deiliskipulagi Norðvestursvæðis Egilsstaða sem
snýr að Lagarási 21–33. Á sama fundi lagði bæjar-
stjórn til að deiliskipulag fengi málsmeðferð í sam-
ræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi
skv. 2. mgr. 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í
gildi er deiliskipulag Norðvestursvæði Egilsstaða,
samþykkt af bæjarstjórn þann 06.02.2013 og
öðlaðist gildi við auglýsingu í B-deild stjórnartíðinda
þann 15.04.2013. Breytingin tekur til lóða nr. 21-33
við Lagarás.
Óveruleg breytingu á deiliskipulagi við
Þrándarstaði, Fljótsdalshéraði.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi
sínum þann 2. október 2019 sl., tillögu að óverulegri
breytingu á deiliskipulagi við Þrándarstaði, Fljóts-
dalshéraði. Á sama fundi lagði bæjarstjórn til að
deiliskipulag fengi málsmeðferð í samræmi við 43.
gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Um er að ræða tilfærslu um á byggingarreit á lóð nr.
7 til suðurs. Lóðin er við götu C samkvæmt gildandi
deiliskipulagi.
Óveruleg breytingu á deiliskipulagi við
Tunguás, Fljótsdalshéraði.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi
sínum þann 20. nóvember sl., tillögu að óverulegri
breytingu á deiliskipulagi Við Tunguás, Fljóts-
dalshéraði.
Meginmarkmið með deiliskipulaginu er að setja
ramma utan um frekari uppbyggingu á svæðinu og
er unnið á grundvelli skipulagslaga nr. 123/2010
og skipulagsreglugerðar nr. 90/2013. Um er að
ræða deiliskipulag fyrir svæði sem skilgreint er sem
frístundabyggð og verslunar- og þjónustusvæði í
gildandi Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028.
Deiliskipulagið er unnið á grunni landskipta sem
unnin var af Steinsholti ehf. árið 2013. Í gildi er deili-
skipulag fyrir svæðið frá 2005 og verður það fellt út
gildi við gildistöku nýs deiliskipulags.
Deiliskipulagið fellur ekki undir lög nr. 105/2006
um umhverfismat áætlana þar sem deiliskipulagið
felur ekki í sér framkvæmdir sem taldar eru upp
í 1. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum nr.
106/2000. Gerð verður grein fyrir áhrifum deiliskipu-
lagsins á umhverfið í samræmi við gr. 5.4 í skipu-
lagsreglugerð nr. 90/2013.
Raðauglýsingar
Vantar þig
pípara?
FINNA.is