Morgunblaðið - 30.11.2019, Side 56
Mánaðarlangri vinnusmiðju hóps-
ins Leit að postulíni lýkur á morg-
un, sunnudag, milli kl. 13 og 17 þeg-
ar Gryfjunni í Ásmundarsal verður
breytt í litla postulínsverslun þar
sem sjá má og kaupa afraksturinn.
Leit að postulíni var hrundið af
stað árið 2016 af Brynhildi Páls-
dóttur hönnuði, Ólöfu Erlu Bjarna-
dóttur keramiker og Snæbirni
Guðmundssyni jarðfræðingi.
Leit að postulíni lýkur
með verslun á morgun
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 334. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Einn eftirsóttasti knattspyrnumað-
ur í Evrópu um þessar mundir er 19
ára gamall Norðmaður. Erling Braut
Håland hefur slegið í gegn hjá aust-
urríska liðinu Salzburg og er á rad-
arnum hjá mörgum stórliðum. Hann
hefur skorað 28 mörk í fyrstu 24
leikjunum með Salzburg og átta í
fyrstu fimm leikjum sínum í Meist-
aradeild Evrópu. » 46
Norski strákurinn er
afar eftirsóttur
Stórsveit Reykjavikur stendur fyrir
árlegum barna- og fjölskyldu-
tónleikum undir yfirskriftinni „Jóla-
fjör“ á morgun kl. 17 í Silfurbergi
Hörpu. Þar gefst yngri hlustendum
gott tækifæri til að skyggnast inn í
töfraheim djass- og stórsveitar-
tónlistar. Í ár er rithöfundurinn og
teiknarinn Bergrún Íris Sævarsdóttir
sérstakur gestur. Hún flytur nýja
jólasögu sem hún hefur samið sér-
staklega fyrir þetta tilefni og til að
styðja við flutninginn mun
Stórsveitin leika nýja
tónlist og útsetningar
eftir Hauk Gröndal.
Þeim til fulltingis eru
söngkonan Ragnheiður
Gröndal og Barna-
kórinn við Tjörn-
ina.
Jólafjör Stórsveitar
Reykjavíkur á morgun
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Orðatiltækið snemma beygist krók-
urinn á vel við um Sigfríði Þóris-
dóttur. Þegar hún var sex ára byrjaði
hún að hjálpa móður sinni við mat-
seldina í eldhúsinu, stóð á kolli við
eldavélina við að þykkja og krydda
sósur út á kjötbollur og velta fiski upp
úr raspi. Þrjátíu árum síðar stofnaði
hún fyrirtækið Pottagaldra og í ár
eru 30 ár frá stofnun þess. Veikindi
urðu til þess að hún varð að draga sig
í hlé og nú sér sonur hennar, Kristján
Hrafn Bergsveinsson, um reksturinn.
„Finnst þér þetta ekki gott hjá
mér?“ spyr Sigfríð um árangurinn og
segir ýmislegt hafa gengið á áður en
hún einhenti sér í kryddið. Hún rifjar
upp að þegar hún var í hjúkrunar-
fræðinámi í Lundúnum 1975 hafi hún
þrætt indverska veitingastaði og í
námslok hafi vinir ytra gefið henni
matreiðslubókina Indian Cookery.
Næstu árin hafi hún haldið 100
manna veislur á jóladag og boðið upp
á indverskan hrísgrjónarétt og svína-
kjöt í súrsætri sósu. „Ég féll fyrir
kryddunum og lét enn frekar á þetta
reyna þegar ég átti og rak veitinga-
staðinn Krákuna á Laugavegi 1984 til
1988.“ Þar segist hún hafa lagt upp úr
að vera með mat frá öllum heims-
hornum með viðeigandi kryddi, en
þess má geta að nýjasta kryddið heit-
ir Vadouvan og er indversk karrí-
blanda undir frönskum áhrifum.
„Ég var ófrísk og eftir að ég seldi
Krákuna var ég atvinnulaus, en í jan-
úar 1989 skrásetti ég vörumerkið
Pottagaldra hjá Einkaleyfastofu fyrir
5.000 krónur, sem mamma gaf mér,“
segir hún um næstu skref. Bætir við
að nafnið hafi komið frá kokki á
Krákunni. „„Þetta eru nú meiri potta-
galdrarnir hjá þér,“ sagði hún eitt
sinn við mig og þetta festist í minni.“
Vistvænt og sjálfbært
Í apríl sama ár auglýsti Kolaportið
lausa bása í bílastæðahúsinu við
Seðlabankann og Sigfríð stökk til.
„Ég pantaði bás, keypti krydd, bland-
aði það í púnsskál, setti síðan í merkta
plastpoka, handskrifaði á miðana
hvað í pokunum væri, skrifaði niður
uppskriftir og heftaði við pokana,
dekkaði borðið í básnum og bauð
kryddið til sölu úr huggulegum bast-
körfum,“ útskýrir hún. „Þarna byrj-
aði ég með sjö blöndur en nú er ég
með um 100 vörutegundir.“
Fyrirtækið var samt ekki í for-
gangi til að byrja með, því Sigfríð
fékk vinnu sem kokkur í breska
sendiráðinu og var þar í tvö og hálft
ár. Þaðan lá leiðin í iðnrekstrarfræði í
Tækniskólanum, en fljótlega byrjaði
hún aftur að blanda krydd í púnsskál-
inni góðu. „Ég fór á milli kvenna-
vinnustaða, seldi vel, fékk hugljómun
og hellti mér út í reksturinn.“
Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og
þétt og sprengt hvert húsnæðið af
öðru utan af sér, en er nú vinnustaður
átta manns í Kópavogi. Sigfríð hefur
reglulega bætt við kryddi, krydd-
blöndum og kryddolíum og leggur
áherslu á að kryddið sé vistvænt, án
allra aukaefna og komi frá viður-
kenndum birgi í Hollandi, sem vandi
sérstaklega valið á kryddbændum
með tilliti til vistvænnar og sjálf-
bærrar framleiðslu víða um heim.
Pottagaldrar flytja kryddið inn beint
frá birginum, sem gufuhreinsar það á
vistvænan hátt. Hún segir að bylting
hafi orðið í framleiðslunni þegar hún
byrjaði að setja kryddið í merkt gler-
glös. „Salan jókst um 300% á þremur
mánuðum,“ rifjar hún upp og hrósar
starfsfólki sínu. „Ég kynnti kryddin
með réttum úti um allt land og þegar
tveggja ára börn báðu um meira vissi
ég að ég væri á réttri leið.“
Morgunblaðið/RAX
Pottagaldrar Sigfríð Þórisdóttir með nýtt krydd. Hún byrjaði með sjö blöndur en er nú með um 100 vörutegundir
Pottagaldrar í 30 ár
Sigfríð Þórisdóttir byrjaði sex ára að krydda mat
ÁSKR I FTARLE IKUR MORGUNBLAÐS INS
Heppinn
áskrifandi
hlýtur
að gjöf
Hästens
HERLEWING®
handgert rúm úr
náttúrulegum efnum
að verðmæti 3.225.900 kr.
Fátt jafnast á við að opna Morgunblaðið eftir
góðan nætursvefn. Fyrir einn af áskrifendum
Moggans nær þessi ljúfa morgunstund nýjum
hæðum eftir að við drögum í áskriftar-
leiknum okkar föstudaginn 20. desember.
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ LESA MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið og Hästens eru stolt af því að
vinna saman að því að gefa einum heppnum
áskrifanda Morgunblaðsins Herlewing-rúm
frá Hästens.
Verslun Hästens á Íslandi er til húsa í
Faxafeni 5, á sama stað og Betra bak.
KAUPTU
ÁSKRIFT
Í SÍMA 569 11
00