Fréttablaðið - 12.12.2002, Side 19
19FIMMTUDAGUR 12. desember 2002
KÚREKI Í KLÍPU
Kúrekinn Birch Negaard frá Buffalo gerði
hvað hann gat til að hafa stjórn á illvígu
nautinu í úrslitakeppninni í nautaati sem
haldin er í Las Vegas á Bandaríkjunum.
Neegard er efstur eftir fimm daga keppni.
AP/M
YN
D
GAMLIR FÉLAGAR
Scottie Pippen reynir að gæta Michael Jor-
dan, fyrrverandi samherja síns hjá Chicago
Bulls. Jordan lék ekki gegn Pippen og fé-
lögum á síðustu leiktíð vegna meiðsla.
Pippen og Jordan:
Andstæð-
ingar í fyrsta
sinn
KÖRFUBOLTI Scottie Pippen, leik-
maður Portland Trailblazers,
hafði betur í einvígi gegn Michael
Jordan, fyrrverandi samherja sín-
um hjá Chicago Bulls, og félögum
í Washington Wizards í fyrra-
kvöld.
Þetta var í fyrsta sinn sem þeir
félagar mætast á vellinum síðan
þeir voru saman í meistaraliði
Chicago Bulls. Leikurinn endaði
með sigri Trailblazers 98:79 og
skoraði Pippen 14 stig, tók 7 frá-
köst og átti 5 stoðsendingar. Jord-
an skoraði 14 stig fyrir Wizards.
Í öðrum leikjum vann Dallas
Mavericks lið L.A. Clippers 122:95
og L.A. Lakers tapaði fyrir Golden
State Warriors 106:102. ■
AP/M
YN
D
Síðari leikirnir í þriðju um-ferð Evrópukeppni félagsliða
fara fram í kvöld. Liverpool
tekur á móti hollenska liðinu
Vitesse Arnhem á Anfield Road
en enska liðið vann fyrri leik-
inn 1:0. Leeds leikur við Malaga
á Englandi en fyrri leikurinn
fór 0:0. Þá tekur Fulham á móti
Eyjólfi Sverrissyni og félögum
í Herthu Berlín. Fyrri viður-
eignin endaði 2:1 fyrir Herthu.
Spænska stórliðinu Barcelonahefur verið bannað að spila
næstu tvo heimaleiki sína á
Nou Camp-leikvanginum vegna
óláta sem urðu í viðureigninni
við Real Madrid á dögunum. Fé-
lagið var einnig sektað um rúm-
ar 340 þúsund krónur. Stöðva
þurfti leikinn í 15 mínútur
vegna óláta. Köstuðu áhorfend-
ur meðal annars lauslegum
hlutum í Luis Figo, leikmann
Real og fyrrverandi leikmann
Barcelona.
FÓTBOLTI