Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.12.2002, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 12.12.2002, Qupperneq 21
„Það er að sjálfsögðu óviðunandi að loka fjárhagsáætlun með 10- 12% afgang af heildarrekstri sveitarfélagsins. Rekstrarstaða íslenskra sveitarfélaga er um- hugsunarefni. Með því að fletta árbók sveitarfélaga sjá menn hversu aðþrengd sveitarfélög eru orðin í rekstri sínum,“ sagði Hall- dór Halldórsson, bæjarstjóri Ísa- fjarðarbæjar. Hann var ómyrkur í máli þegar hann mælti fyrir fjárhagsáætlun Ísafjarðar á dögunum. Þegar bæj- arráð setti ramma í upphafi vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs var reiknað með tæplega 14% afgangi frá rekstri. Þar með hefðu um 86% tekna farið í rekstur. Mark- miðin náðust ekki, niðurstaðan er 10% afgangur frá rekstri. Níu af hverjum tíu krónum sem inn- heimtast hjá bænum fara því í rekstur málaflokka. „Því miður virðist þetta vera mjög algeng rekstrarniðurstaða sveitarfélaga í landinu. Rekstrar- afgangurinn þarf að vera um 30% til að standa undir afborgunum lána og eðlilegri endurnýjunar- og viðhaldsþörf mannvirkja. Því miður er orðið nokkuð langt síðan sveitarfélög landsins, að örfáum „þenslusveitarfélögum“ undan- skildum, hafa séð slíka rekstrar- niðurstöðu,“ sagði Halldór og bætti við að stöðugt hefði sigið á ógæfuhliðina í þessum efnum í tæpan áratug. „Sérstaklega þó frá árinu 1996 en þá tóku sveitarfélögin yfir rekstur grunnskólanna. Það var gæfuspor varðandi þjónustu og faglegt starf skólanna en enn vantar á tekjuhliðina. Í kringum 1996 og árin á eftir eru nokkrar stórar sameiningar og þær hafa ekki haft fjárhagslega hagræð- ingu í för með sér heldur hefur þjónusta stærstu sveitarfélag- anna í viðkomandi sameiningum verið færð yfir til þeirra minni, sem er eðlilegt þegar um eitt sam- einað sveitarfélag er að ræða,“ sagði Halldór. En tilflutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga hafa ekki fylgt nauðsynlegar tekjur og vantar þar verulega upp á að mati sveitarstjórnarmanna. „Í slíkri stöðu verður eitthvað eða allt af eftirfarandi að gerast. Ríkisvaldið verður að viðurkenna tekjuþörf sveitarfélaganna í sam- ræmi við tillögur tekjustofna- nefndar frá október 2000. Sam- kvæmt niðurstöðu nefndarinnar vantar enn 4 milljarða króna til sveitarfélaganna. Þá verða sveit- arfélögin að óbreyttu að hækka gjaldskrár og alla greiðslu fyrir þjónustu verulega, eða þar til slíkt stendur undir öllum kostnaði. Loks þarf að endurskilgreina þjónustuhlutverk sveitarfélaga og draga úr þjónustu þar til tekjur standa undir rekstri, afborgunum lána og eðlilegum framkvæmd- um,“ sagði Halldór og byggir þar á upplýsingum úr árbók sveitarfé- laga sem sýna fram á að rekstur sveitarfélaganna gengur ekki að óbreyttum forsendum. „Ísafjarðarbær er í þessum hópi. Við þurfum að efla samstöðu sveitarfélaganna og ná fram okkar markmiðum svo sveitarfélögin verði rekstrarhæfar einingar að nýju. Gangi það ekki eftir verða sveitarfélögin að endurskilgreina þjónustuhlutverk sitt. En það verða þau að gera í góðu samstarfi, því í þessum geira eltir hver annan í þjónustu við íbúana. Ísafjarðar- bær hefur sem betur fer ýmsa kosti til að draga frekar úr rekstr- arkostnaði og sama gildir um önn- ur sveitarfélög. Leiðir til að draga úr rekstrarkostnaði byggjast með- al annars á því að ná betri samn- ingum við ríkisvaldið í verkefnum sem eru á óskilgreindu eða illa skilgreindu samstarfssvæði ríkis og sveitarfélaga. Þarna og með al- mennum aðhaldsaðgerðum er hægt að ná einhverjum prósentum í hagræðingu. Þá þurfum við líka að horfa til aðgerða sem auka tekj- ur, fjölga íbúum og auka almennt hag íbúanna,“ sagði Halldór Hall- dórsson. ■ FIMMTUDAGUR 12. desember 2002 Dala-Yrja Sígildur veisluostur sem fer vel á ostabakka. Höfðingi Bragðmildur hvítmygluostur sem hefur slegið í gegn. Dala-Brie Á ostabakkann og með kexi og ávöxtum. Lúxus-Yrja Bragðmild og góð eins og hún kemur fyrir eða í matargerð. Camembert Einn og sér, á ostabakkann og í matargerð. Hvítur kastali Með ferskum ávöxtum eða einn og sér. Stóri-Dímon Ómissandi þegar vanda á til veislunnar. Gullostur Bragðmikill hvítmygluostur, glæsilegur á veisluborðið. Mascarpone Rjómaostur með ítölskum keim. Dásamlegur í deserta. Jólaostakaka Trönuberjasultan gefur sannkallað jólabragð. Gráðaostur Tilvalinn til matargerðar. Góður einn og sér. Rjómaostur Á kexið, brauðið, í sósur og ídýfur Piparostur Góður í heitar sósur. Þegar íslensku ostarnir eru bornir fram, einir sér, á ostabakka eða til að kóróna matargerðina – þá er hátíð! Engin jól án þeirra! HALLDÓR HALLDÓRSSON Boðar gjaldskrárhækkanir og endurskoðun þjónustu sveitarfélaga, fáist ekki auknar tekjur frá ríkinu vegna flutnings verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Kostnaður foreldra með eitt barn í leikskóla í Mosfellsbæ eykst um 60 þúsund krónur á ári samkvæmt tillögum meirihluta sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Mosfellsbæjar. Miðast þetta ein- ungis við hækkun leikskóla- gjalda og fæðis í leikskóla, en að auki boðar meirihlutinn fjölda annarra hækkanna. Haraldur Sverrisson, formað- ur bæjarráðs, segir að skuldir Mosfellsbæjar hafi aukist um 2,7 milljarða króna á þeim átta árum sem fyrrverandi meiri- hluti hafi verið við völd. Í lok ársins verði þær 3,1 milljarður sem samsvari því að hver íbúi bæjarins skuldi um 500 þúsund krónur. Þröstur Karlsson, oddviti framsóknarmanna í minnihluta bæjarstjórnar, gagnrýnir harð- lega fyrirætlanir meirihlutans og segir þær koma langverst niður á ungum barnafjölskyld- um. „Þetta er náttúrulega alveg skelfilegt, að ætla ungum barna- fjölskyldum að greiða niður skuldir bæjarins,“ segir Þröstur. „Eftirlitsnefnd sveitarfélaga hafði farið yfir fjármál bæjarins og sá ekkert athugavert við þau. Nefndinni fannst traustvekjandi hvernig við hugðumst greiða skuldirnar niður.“ Þröstur segir að í Mosfellsbæ sé hæst meðaltal á Íslandi af ungu fólki með börn. Í kosninga- baráttunni hafi sjálfstæðismenn sagt að þeir myndu ekki leggja meiri álögur á fólkið í bænum heldur hagræða í rekstri sveit- arfélagins. „Þeir hafa einfaldlega farið á taugum og eru að skrúfa öll gjöld upp í topp. Það er ekkert erfitt að reka sveitarfélag ef all- ar álögur eru skrúfaðar upp í topp. Það er alveg ljóst að sumt af þessu fólki fer að hugsa sig um hvort það vilji búa áfram í bænum við þessar aðstæður.“ Haraldur segir að fyrrver- andi meirihluti hafi fjarmagnað reksturinn með lántökum. Um 1,2 milljarða króna lántaka hafi farið í reksturinn, eða um 150 milljónir á ári. „Það gefur augaleið að svona er ekki hægt að halda áfram til lengdar,“ segir Haraldur. „Fyrir- tæki eða heimili sem rekur sig með þessum hætti fer á endan- um á höfuðið og það er það sem við erum að reyna að koma í veg fyrir.“ Haraldur segir að verið sé að skera rekstrarkostnað bæjarins niður um 7%. Til lengri tíma lit- ið sé það leiðin sem meirihlutinn ætli að fara. Aðstæðurnar núna hafi hins vegar verið þannig að einnig hafi þurft að hækka álög- ur. „Þó þjónustugjöldin séu að hækka dálítið mikið í prósentu- tölu þá verða þau enn lægri en hjá nágrannasveitarfélögunum.“ ■ TILLÖGUR MEIRIHLUTA SJÁLFSTÆÐISMANNA Í BÆJARSTJÓRN MOSFELLSBÆJAR Álagningarprósenta: 2002 2003 Hækkun Útsvarsprósenta 12,650 12,940 2,29% Fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis 0,320 0,360 12,5% Fasteignaskattur atvinnuhúsnæðis 1 1,2 20% Lóðaleiga íbúðarhúsnæðis 0,1 0,4 300% Lóðaleiga atvinnuhúsnæðis 1 1,2 20% Sorphirðugjald 6,5 7,2 10,77% Krónur: 2002 2003 Leikskólagjald 16.100 20.000 24,22%* Fæði leikskóla 4.800 6.000 25%* Skólasel 110 180 63,64%* Íþrótta- og tómstundaskóli 110 180 63,64% Gæsluvöllur 100 150 50% Skólamáltíðir 180 220 22,22% Árskort í sund 13.000 17.500 34,62% *Hækkar í tveimur áföngum. Fyrst 1. janúar og síðan um mitt árið 2003. BÆJARSKRIFSTOFUR MOSFELLSBÆJAR Haraldur Sverrisson, formaður bæjarráðs, segir að skuldir Mosfellsbæjar hafi aukist um 2,7 milljarða króna á þeim átta árum sem fyrrverandi meirihluti hafi verið við völd. Í lok ársins verði þær 3,1 milljarður sem samsvari því að hver íbúi bæjarins skuldi um 500 þúsund krónur. Mosfellsbær: Barnafjölskyldur greiða meira Ísafjörður: Í þrot að óbreyttu

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.