Fréttablaðið - 12.12.2002, Qupperneq 32
FUNDIR
12.10 Viðar Hreinsson les úr bók sinni
um Stephan G. Stephansson í
Bókasal Þjóðmenningarhúss.
Einnig segir hann frá skáldinu og
svarar fyrirspurnum áheyrenda.
Tilefni lestrarins er að í bókasal
Þjóðmenningarhúss er að finna
eiginhandrit og bréf Stephans G.
Sýningin er í tengslum við kynn-
ingu Landsbókasafns á bók-
menntum Vestur-Íslendinga.
16.00 Kristjana Einarsdóttir gengst
undir 4. árs próf við líffræðiskor
Raunvísindadeildar Háskóla Ís-
lands og heldur fyrirlestur um
verkefni sitt: Áhætta á krabba-
meini í brjósti með tilliti til stökk-
breytingar í BRCA2 og breytileika í
MnSOD geni. Fyrirlesturinn er
haldinn í stofu G6 að Grensásvegi
12 og er öllum opinn meðan hús-
rúm leyfir.
16.15 Ólafur B. Einarsson flytur erindið:
Æðakölkun og fikrun (migration)
fruma í málstofu læknadeildar í
sal Krabbameinsfélags Íslands,
efstu hæð.
17.00 Stofnfundur Félags fagfólks í
heilbrigðisþjónustu um offitu
verður haldinn á Grand Hótel,
Gallerí. Mikilvægt er að allir sem
hafa áhuga á málefninu gerist fé-
lagar og mæti. Sigurður Guð-
mundsson landlæknir tekur þátt í
málþingi.
20.00 Samvera á aðventu fyrir syrgj-
endur, sem sérstaklega er ætluð
þeim sem hafa misst ástvin og
vilja staldra við, verður í Grensás-
kirkju. Hún er fyrir alla fjölskyld-
una og öllum opin. Þau sem vilja
geta tendrað ljós til að minnast
ástvina sinna. Eggert Kaaber leik-
ari segir jólasögu, sr. Kjartan Örn
Sigurbjörnsson annast hugvekju
og sr. Miyako Þórðarson túlkar á
táknmáli.
UPPÁKOMUR
20.00 Vefsetrið ljóð.is efnir til upplestr-
arkvöldsins - Gleðileg ljóð - á
Dubliner, Hafnarstræti, þar sem
skáld lesa úr nýútkomnum ljóða-
bókum. Auk þeirra munu notend-
ur vefsetursins ljóð.is lesa úr sín-
um ljóðum. Meðal þeirra er fram
koma eru: Baldur Óskarsson,
Bjarni Bernharður, Einar Már
Guðmundsson, Ingibjörg Har-
aldsdóttir og Ísak Harðarson.
20.00 Glaðst verður í jólaanda á Súfist-
anum, bókakaffi í Bókabúð Máls
og menningar, Laugavegi, þegar
Guðrún Helgadóttir les úr bók
sinni Öðruvísi dagar, Steinunn
Sigurðardóttir úr bók sinni
Hundrað dyr í golunni, Brynhild-
ur Björnsdóttir og Páll Óskar
Hjálmtýsson flytja jólalag úr
sönglagahefti Hreiðars Inga Þor-
steinssonar og Englakórinn syng-
ur jólalög.
20.00 Boðið er upp á notalega kaffihúsa-
stemningu í forsal Borgarleikhúss-
ins þar sem rithöfundar lesa upp úr
nýjum bókum sínum og ljúfir tónar
ramma inn stundina. Arnaldur
Indriðason, Einar Már Guðmunds-
son, Einar Kárason, Stefán Máni
og Þórarinn Eldjárn lesa úr nýút-
komnum bókum sínum.
21.00 Sesar A heldur útgáfutónleika á
Grand Rokk. Móri, Bæjarins
Bestu, Vivid Brain, Messíaz og
fleiri troða upp.
20.30 Félagarnir Eiríkur og Hjörleifur í
Hundur í óskilum eru þeir einu
sem hafa rappað Gunnar á Hlíð-
arenda. Nú ætla þeir að fagna
nýjum hljómdiski sem er að
koma glóðvolgur í verslanir þessa
dagana með útgáfutónleikum í
Ketilhúsinu á Akureyri.
20.30 Guðrún Eva Mínervudóttir les úr
skáldsögu sinni, Sagan af sjó-
reknu píanóunum, og Hrafn Jök-
ulsson úr ljóðabók Jóns Thorodd-
sens, Flugur, sem fyrst kom út
árið 1922, í Faktorshúsinu á Ísa-
firði. Sagan af sjóreknu píanóun-
um er fjórða skáldsaga Guðrúnar
Evu og hefur hlotið afar góðar
viðtökur gagnrýnenda og lesenda.
Flugur var fyrsta íslenska bókin
sem einvörðungu hafði að geyma
prósaljóð. Jón fæddist á Ísafirði
1898 og lést í Kaupmannahöfn
1924.
TÓNLEIKAR
20.30 Kammerkór Langholtskirkju
heldur útgáfutónleika í Lang-
holtskirkju í tilefni af útkomu nýs
hljómdisks.
LEIKHÚS
20.00 Með vífið í lúkunum sýnt í allra
síðasta sinn á Stóra sviði Borgar-
leikhússins.
SÝNINGAR
Magnús Guðjónsson og Gunnar Geir
sýna í húsi Gráa kattarins, Hafnargötu
18 í Keflavík. Magnús sýnir verk sem
unnin eru í grjót og smíðajárn. Gunnar
Geir sýnir málverk, teikningar og lág-
myndir frá ýmsum tímabilum. Sýningin
stendur út desember og verður opin frá
kl. 14 til 18 alla daga nema sunnudaga.
Einar Hákonarson og Óli G. Jóhanns-
son sýna verk sín í Húsi málaranna við
Eiðistorg. Í nýjum sýningarsal í Húsi mál-
aranna sýna Bragi Ásgeirsson, Einar
Þorláksson, Guðmundur Ármann, Jó-
hanna Bogadóttir og Kjartan Guðjóns-
son. Sýningin stendur til 23. desember
og er opin frá 14 til 18 fimmtudaga til
sunnudaga.
Ingvar Þorvaldsson sýnir olíumálverk á
Kaffi Mílanó út desembermánuð. Allar
myndirnar á sýningunni eru til sölu.
Samspil nefnist sýning sem stendur yfir
í Hafnarborg. Um er að ræða samsýn-
ingu Bryndísar Jónsdóttur, Ásu Ólafs-
dóttur, Kristínar Geirsdóttur Magdalenu
Margrétar Kjartansdóttur og Þorgerðar
Sigurðardóttur Sýningin er opin alla
daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17
og henni lýkur 22. desember.
Sambönd Íslands nefnist alþjóðleg sýn-
ing sem stendur yfir í Hafnarborg,
Strandgötu í Hafnarfirði. Sýningin stend-
ur til 22. desember.
Í hers höndum er yfirskrift á sýningu
sem stendur yfir í Borgarskjalasafni
Reykjavíkur, í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
6. hæð. Sýningin er opin alla daga
klukkan 12-17 og stendur til 2. febrúar.
Hrafnkell Birgisson hönnuður heldur
sýningu á verkum sínum í Kaffitári,
Bankastræti 8. Sýningin er opin frá 7.30
til 18.00 og stendur til 10. janúar.
Sýningin Reyfi stendur yfir í Gallerí
Skugga, Hverfisgötu 39. Myndlistarkon-
urnar Anna Þóra Karlsdóttir og Guðrún
Gunnarsdóttir vinna saman undir nafn-
inu Tó-Tó og á sýningunni sýna þær
flókareyfi úr lambsull. Sýningin stendur
til 22. desember og er opin alla daga
nema mánudaga frá kl. 13-17.
Sýning á málverkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur stendur yfir í Hallgríms-
kirkju í Reykjavík. Á sýningunni eru mál-
verk unnin á þessu ári sérstaklega fyrir
sýninguna í kirkjunni. Viðfangsefnið er
Lífið, tíminn og eilífðin. Sýningin í Hall-
grímskirkju er haldin í boði Listvinafé-
lags Hallgrímskirkju og stendur til loka
febrúarmánaðar.
Sýning á jólamyndum teiknarans Brian
Pilkington stendur yfir í Kaffistofu Hafn-
arborgar. Sýningin er opin alla daga og
lýkur 22. desember.
Ólöf Kjaran sýnir í Rauðu stofunni í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg. Sýninguna
nefnir listakonan Undir og ofan á. Sýn-
ingin stendur til 13. desember.
Sigríður Gísladóttir stórgöldrótt-mynd-
listakona sýnir Vörður í Salnum #39,
nýju galleríi við Hverfisgötu 39. Sýningin
stendur til 12. desember.
Sýningin Heimkoman eða: heimurinn
samkvæmt ART stendur yfir í Listasafni
Reykjavíkur - Kjarvalsstöðum. Sýningin
samanstendur af málverkum og ljós-
myndum danska myndlistarmannsins
Martin Bigum frá árunum 1997-2002.
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýnir smá-
myndir og skúlptúra sem unnin eru í
anda jólanna í Kompunni, Kaupvangs-
stræti 23, Listagili. Sýningin stendur til
23. desember og er opin alla daga frá
klukkan 14 til 18.
Í Hafnarborg stendur yfir sýningin
“Sambönd Íslands“, alþjóðleg sýning
með þátttöku erlendra listamanna sem
hafa heimsótt Ísland og íslenskra lista-
manna búsettra erlendis. Sýningin
stendur til 22. febrúar.
Samsýning Bryndísar Jónsdóttur, Ásu
Ólafsdóttur, Kristínar Geirsdóttur,
Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur
og Þorgerðar Sigurðardóttur, Samspil,
stendur yfir í Hafnarborg. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga frá kl.
11 til 17 og henni lýkur 22. desember.
Lína Rut Wilberg sýnir olíumálverk á
Café Presto, Hlíðarsmára 15, Kópavogi.
Opið 10-23 virka daga og 12-18 um
helgar.
Sýningin Þetta vilja börnin sjá er haldin
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Sýndar verða myndskreytingar úr nýút-
komnum barnabókum. Sýningunni lýkur
6. janúar 2003.
Hildur Margrétardóttir myndlistarkona
sýnir nokkur óhlutbundin málverk á
Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 15. jan-
úar.
Inga Svala Þórsdóttir sýnir Borg í Lista-
safni Reykjavíkur. Inga Svala fjallar um
og endurvekur draumsýnina um hið full-
komna samfélag. Hún leggur fram hug-
mynd að milljón manna borgarskipulagi
í Borgarfirði og á norðanverðu Snæfells-
nesi.
32 12. desember 2002 FIMMTUDAGUR
Hljómsveitin Feðgarnir
Nóvember – Desember
Jólahlaðborð
frá 29. nóvember
Skötuveisla
23. desember
Velkominn í jólahlaðborðið okkar
Einar Geirsson
Yfirmatreiðslumaður
Opnunartími
Hádegi mán. – föst. 12.00 – 14.00
Kvöld alla daga frá 18.00
tveir fiskar
( við Reykjavíkurhöfn )
Geirsgata 9 • 101 reykjavik
sími 511 - 3474
netfang restaurant@restaurant.is
heimasíða www.restaurant.is
FIMMTUDAGUR
12. DESEMBER
hvað?
hvar?
hvenær?
LEIKHÚS Leikritið Með vífið í lúk-
unum hverfur af fjölunum eftir
síðustu aukasýningu sem verður í
kvöld, fimmtudagskvöld, í Borg-
arleikhúsinu. Leikritið var frum-
sýnt vorið 2001, á næstsíðasta
leikári, og hefur verið sýnt alls 64
sinnum fyrir nærri 25.000 áhorf-
endur. Það eru Steinn Ármann
Magnússon, Helga Braga Jóns-
dóttir, Eggert Þorleifsson og
Ólafía Hrönn Jónsdóttir sem fara
með aðalhlutverkin í leikritinu. ■
STEINN ÁRMANN MAGNÚSSON
Einn af aðalleikurunum í hinni vinsælu
leiksýningu Með vífið í lúkunum.
Með vífið í lúkunum:
Síðasta
sýning í
kvöld
SÝNING Hinn 7. desember síðast-
liðinn opnaði Borgarskjalasafn
Reykjavíkur sýninguna Reykja-
vík í hers höndum í samvinnu við
Þór Whitehead sagnfræðing. Á
sýningunni gefur að líta skjöl,
muni og ljósmyndir frá veru hers-
ins í Reykjavík 1941-1944. Ljós-
myndirnar, sem eru rösklega 50,
eiga einkum að veita innsýn í dvöl
Bandaríkjahers í Reykjavík árin
1941-1944. Þær koma frá Þjóð-
skjalasafni Bandaríkjanna og
hafa margar hverjar ekki áður
sést á Íslandi. Enn fremur eru
skjöl úr safni Borgarskjalasafns
Reykjavíkur um veru setuliðsins í
Reykjavík sem sýna samskipti við
íbúa bæjarins, uppbyggingu
braggahverfa hersins, herstjórn-
arkort og margt fleira. Á sýning-
unni er reynt að endurskapa and-
rúmsloft stríðsáranna með hlöðn-
um sandpokabyrgjum, minjum og
tónlist sem setuliðið hafði með
sér til Íslands, en ljósmyndirnar
sýna vel bæjarbraginn í Reykja-
vík á árum seinni heimsstyrjald-
ar, stríðstól herjanna og sam-
skipti hermanna við bæjarbúa,
meðal annars frá margfrægum
dansleikjum hersins, en þær
myndir hafa ekki áður sést hér á
landi.
Sýning Borgarskjalasafns
Reykjavíkur stendur til 2. febrúar
2003 og er opin alla daga kl. 12 til
17 í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
6. hæð. Aðgangur er ókeypis. ■
HERMENN Á ARNARHÓLI
Ljósmyndir sem eru til sýnis á Borgarskjalasafni hafa margar ekki sést á Íslandi áður.
Sýning í Borgarskjalasafni:
Reykjavík í hers höndum