Skessuhorn


Skessuhorn - 06.03.2019, Side 8

Skessuhorn - 06.03.2019, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 20198 Þrjú heima- fyrirtæki buðu í jarðvegsfram- kvæmdir SNÆFELLSBÆR: Hjá Ríkiskaupum var í síðustu viku opnuð tilboð í jarðvinnu vegna fyrsta áfanga bygg- ingar Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi í Snæfellsbæ. Þrjú tilboð bárust í verkið, öll frá fyrirtækjum úr sveit- arfélaginu. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 27,3 milljónir króna og reyndust öll tilboð- in undir henni. Langlægsta boð átti Stafnafell ehf. eða rétt tæpar 15 milljónir króna. TS Vélaleiga ehf. bauð 23,5 milljónir og B.Vigfússon ehf. 25,5 milljónir. Samkvæmt út- boðsgögnum er fyrirhug- að að vinna við verkið hefjist í byrjun mars og verði lokið um miðjan maí. -mm Grunsamlegar mannaferðir SKORRADALUR: Lög- reglunni á Vesturlandi barst tilkynning um grunsamleg- ar mannaferðir við sumar- hús í Dagverðarnesi í Skorra- dal í vikunni sem leið. Sást til manna í eftirlitsmyndavéla- kerfi. Lögregla fór á vett- vang og stöðvaði bifreið. Þar voru menn sem kváðust hafa verið að skoða lóðir því þeir væru að velta fyrir sér smíði á sumarhúsi. Ferðir mann- anna virðast því hafa átt sér eðlilegar skýringar. Lögregla segir engu að síður ágætt að fólk fylgist með og hafi sam- band ef það verður vart við mannaferðir sem það telur grunsamlegar. -kgk Heimila veru- lega gjaldskrár- hækkun ÍSLANDSPÓSTUR: Póst- og fjarskiptastofnun birti á miðvikudaginn ákvörðun sína þar sem samþykkt er erindi Íslandspósts ohf. um 8-11% hækkun á gjaldskrá félagsins innan einkaréttar. „Ákvörð- unin byggir á áætlun ÍSP um umtalsverða magnminnkun á pósti innan einkaréttar á árinu 2019 eða allt að 17%. Hækkunin mun hins vegar ekki duga til að vega upp á móti áætluðu tekjutapi fyrir- tækisins vegna magnminnk- unar innan einkaréttar án frekari hagræðingaraðgerða,“ segir í tilkynningu frá PFS. -mm Aflatölur fyrir Vesturland dagana 23. febrúar - 1. mars Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 4 bátar. Heildarlöndun: 51.675 kg. Mestur afli: Eskey ÓF: 29.240 kg í tveimur róðrum. Arnarstapi: Engar landanir skráðar á tímabilinu. Grundarfjörður: 10 bátar. Heildarlöndun: 501.828 kg. Mestur afli: Kristín GK: 81.560 kg í einni löndun. Ólafsvík: 21 bátur. Heildarlöndun: 873.602 kg. Mestur afli: Bárður SH: 114.332 kg í tíu róðrum. Rif: 16 bátar. Heildarlöndun: 875.856 kg. Mestur afli: Saxhamar SH: 107.570 kg í fimm löndunum. Stykkishólmur: 3 bátar. Heildarlöndun: 8.863 kg. Mestur afli: Sjöfn SH: 2.829 kg í fimm róðrum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Tjaldur SH - RIF: 98.750 kg. 26. febrúar. 2. Kristín GK - GRU: 81.560 kg. 25. febrúar. 3. Páll Jónsson GK: 80.893 kg. 26. febrúar. 4. Örvar SH - RIF: 78.208 kg. 28. febrúar. 5. Sigurborg SH - GRU: 66.763 kg. 26. febrúar. -kgk Töluverður munur er á því eft- ir lögregluumdæmum í landinu hversu mörg mál eru enn til rann- sóknar hjá þeim. Hjá Lögreglunni á Vestfjörðum var elsta málið inn- an við ársgamalt en tvö elstu málin sem voru til rannsóknar hjá Lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu eru frá 2012. Í flestum lögreglu- umdæmum landsins eru elstu ókl- áruðu málin frá árunum 2016 eða 2017. Þetta kemur fram í úttekt sem fréttastofu RÚV gerði og birti fyrr í mánuðinum. Svör fengust frá sjö af níu lögregluumdæmum landsins. Alls voru 62 mál til rannsókn- ar hjá Lögreglunni á Vesturlandi í byrjun desembermánaðar. Þá höfðu 210 mál verið rannsökuð á árinu, þar af 104 mál sem fóru til rannsóknar í þriggja manna rann- sóknadeild umdæmisins. „Í rann- sóknadeild fara öll kynferðisbrot, alvarlegar líkamsárásir, manndráp og tilraunir til manndráps, brot gegn börnum, heimilisofbeldi, al- varleg slys, stórfelld fíkniefna- brot, rannsóknir flóknari mála og fleira,“ segir í svari Lögreglunnar á Vesturlandi við fyrirspurn RÚV. Í desember síðastliðnum var elsta málið til rannsóknar hjá Lög- reglunni á Vesturlandi frá því um mitt ár 2017. Sömu sögu var að segja frá elsta málinu sem var til afgreiðslu á ákærusviði. Lögregla segir bæði þessi mál teljast til und- antekninga vegna mikillar utanað- komandi gagnaöflunar og erfið- leika við tjónamat og mat á refsi- hæfi. „Öll önnur mál eru frá síðari helmingi ársins 2018 og flest enn innan settra markmiða um tíma- lengd rannsókna.“ kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk. Elsta ókláraða málið er frá 2017 Lögreglan á Vesturlandi kemur vel út í samanburði umdæmanna Íslenska ríkið var í Landsrétti á föstudag dæmt til að greiða manni samtals fjórar og hálfa milljón króna í bætur vegna fjártjóns sem hann varð fyrir í kjölfar ólögmætrar upp- sagnar úr starfi aðstoðarskólameist- ara Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Héraðsdómur hafði áður fallist á að ákvæði ráðningarsamn- ings um eins mánaðar uppsagn- arfrest á reynslutíma ætti ekki við um tímabundna ráðningu manns- ins. Landsréttur féllst á að uppsögn mannsins sem aðstoðarskólameist- ari hefði verið ólögmæt, þar sem ekki hafi verið gætt ákvæða laga um skriflega áminningu. Landsrétt- ur taldi það sama eiga við um fyr- irvaralausa brottvikningu úr starfi kennara við sama skóla. Dómstóll- inn komst því að þeirri niðurstöðu að hann ætti rétt á bótum fyrir fjár- tjón og miska að álitum. Voru hon- um dæmdar fjórar milljónir króna í skaðabætur, auk 500 þúsund króna í miskabætur. kgk Milljónir í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar Maðurinn fékk dæmdar bætur vegna ólögmætrar uppsagnar úr starfi við Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi. Ljósm. úr safni. Kirkjuþing samþykkti um síðustu helgi að leggja niður Saurbæjar- prestakall í Vesturlandsprófasts- dæmi. Breytingunni fylgir að fram- vegis eigi að vera þrír prestar í Garðaprestakalli á Akranesi. Eins og áður hefur verið rakið í Skessuhorni er meginástæða þess að prestakallið í Saurbæ er lagt niður kostnaður við viðgerðir á prestsbústaðnum. Ný- verið var Hitaveitufélagi Hvalfjarð- ar og Kirkjumálasjóði gert að greiða 2,4 milljónir króna vegna leka á heitavatnslögn fyrir fimm árum síð- an, en eftir lekann þurfti að ráðast í töluvert miklar viðgerðir á húsinu. Þá var sömuleiðis ákveðið á kirkjuþingi að sameina allnokkur prestaköll í Vestfjarða- og Austur- landsprófastsdæmum. Reykhóla- prestakall í Vestfjarðaprófastsdæmi verður sameinað Hólmavíkurpresta- kalli undir heitinu Breiðafjarðar- og Strandaprestakall. Þar að auki má geta þess að Djúpavogs-, Heydala-, Kolfreyju- staðar-, Eskifjarð- ar- og Norðfjarðar- prestakall í Austur- lansprófas t sdæmi verða sameinuð í Austfjarðaprestakall. Á vef Þjóðkirkjunn- ar segir að tillögurn- ar séu hluti af stefnu biskupafundar um nýskipan prestakalla á landsvísu sem unnið hefur verið að. Í þeirri stefnu felst að horfið verði frá einmenn- ingsprestaköllum þar sem því verður við komið. kgk Saurbæjarprestakall lagt niður Reykhóla- og Hólmavíkurprestakall sameinað Hallgrímskirkja í Saurbæ í Hvalfirði. Ljósm. úr safni.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.