Skessuhorn


Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 06.03.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2019 17 fyrstu spor á öldum ljósvakans. Þorgeir Ástvaldsson var þá for- stöðumaður Rásar 2 og kynni okk- ar hófust þar. Nítján ára hafði ég gefið út mína fyrstu bók, unglinga- bókina Gegnum bernskumúrinn og í kjölfar þess kom eiginlega út bók á hverju ári. Það má segja að hátindi rithöfundaferilsins hafi ég náð þegar bókin Sextán ára í sam- búð kom út árið 1985. Hún náði að verða söluhæsta bókin á land- inu það árið og það mun hafa verið í fyrsta og eina skiptið sem barna- eða unglingabók var söluhærri en bók fyrir fullorðna. Þegar ég vígð- ist til prests 35 ára var ég því búinn að skrifa fimmtán bækur.“ Poppuðu saman upp messu Eðvarð var því afkastamikill rithöf- undur. Eftir hann liggja tíu barna- og unglingabækur auk ævisagna og endurminninga þekktra Íslendinga á borð við Árna Helgason í Stykk- ishólmi, Róbert Arnfinnsson leik- ara og Ragnar Bjarnason söngv- ara. Ragnar var 62 ára þegar Eð- varð skráði ævisögu hans. Raunar er hann því efni í aðra bók ef mið- að er við hversu afkastamikill hann hefur verið á tónlistarsviðinu síð- an og er enn að. „Það tókust mjög góð kynni með okkur Ragnari og hefur hann ásamt Þorgeiri Ást- valdssyni komið árlega undanfar- in 12 ár og við haldið saman svo- kallaða poppmessu hér í kirkjunni, þá síðustu 10. febrúar síðastliðinn. Það hefur verið einkar ánægjulegt verkefni fyrir okkur alla og lagt upp úr léttleikanum og ljúfri tón- list. Við tengjumst allir. Þeir Ragn- ar og Þorgeir voru saman í Sum- argleðinni í nokkur ár, ég starfaði með Þorgeiri á Rás 2 og svo skrif- aði ég ævisögu Ragnars,“ rifjar Eð- varð upp. Skinnastaður og síðan Skaginn Að loknu embættisprófi í guðfræði og prestsvígslu í Dómkirkjunni fluttu Bryndís og Eðvarð norð- ur á Skinnastað í Þingeyjarsýslu þar sem hann varð sóknarprest- ur í febrúar 1996. Tæpum tveim- ur árum síðar lá leiðin á Akranes, börnin orðin þrjú og það yngsta árs gamalt. Þar tekur Eðvarð við 5300 manna sókn sem síðan hefur vaxið um ríflega tvö þúsund íbúa. Fyrstu sautján árin á Akranesi þjónaði Eðvarð því stærstu sókn sem einn prestur hafði hér á landi. Það var ekki fyrr en fyrir fjórum árum sem annað prestsembætti var stofnað á Akranesi. Prestverkin vissulega misjöfn „Embætti sóknarprests hér á Akra- nesi hefur vissulega verið mjög er- ilssamt en að sama skapi gefandi. Ég hef alltaf reynt að einsetja mér að virkja kímnigáfuna og þá náð- argjöf sem bros og hlátur er fyrir fólk í leik og starfi,“ segir Eðvarð og vafalaust geta margir sem setið hafa athafnir þar sem hann hefur komið við sögu, vitnað um það. Oft hefur verið slegið á létta strengi á gleðistundu; við skírn, fermingu eða í brúðkaupum. „Þegar það á við reyni ég að fá fólk til að brosa. Fyrir fáeinum árum gaf ég t.d. saman ungt par. Þar sem brúðurin er flokksbundin Sjálfstæðiskona, þá spurði ég brúðgumann auka- spurningar að honum forspurðum. Spurði; „Er það satt að þú haf- ir kosið Pírata í síðustu kosning- um?“ Hið hvella og ákveðna „nei“ sem ég fékk sem svar hljómar enn í eyrum mér. Gestirnir skildu strax spaugið og hlógu dátt.“ „Fyrstu árin mín á Akranesi fékk ég einstaka sinnum afleys- ingu frá séra Birni, fyrirrennara mínum í starfi, en þrátt fyrir helg- arafleysingar af og til biðu útfar- irnar eftir að ég kæmi úr fríi og ýmis önnur verk. Mér hefur hins- vegar líkað ákaflega vel á þessum starfsvettvangi og býsna langt geta menn komist með starfsánægj- unni. Það hafa náttúrlega ekki öll verkefni verið gleðileg eða auð- veld, en það vissi maður fyrir og hafði fengið um það góða leið- sögn í guðfræðináminu. Það eru engu að síður forréttindi að fá að vera með fólki á stærstu stundum í lífi þess; sorg sem gleði. Vissu- lega hefur verið erfiðast að takast á við verkefni sem felast í að til- kynna aðstandendum ótímabær dauðsföll. Dauðinn er því nálæg- ur í starfi okkar prestanna og ná- vist hans mismunandi sársaukafull. Prestur er kannski vakinn upp um miðja nótt vegna slyss eða sjálfs- vígs. Þá er enginn spurður um trú, heldur hlaupið til og reynt að að- stoða af fremsta megni. Þjóðkirkj- an breiðir út faðm sinn til þeirra sem eru hjálpar þurfi, hverrar trú- ar sem þeir eru. Reyndar erum við hér á Akranesi heppin að því leyti að stórt hlutfall íbúa, jafnvel stærra en víða annarsstaðar, fylgir Þjóð- kirkjunni að málum. En vissulega er tilkynning um andlát erfiðasta hlutskipti prestsins, því er ekki að neita. Ekki síst vegna þess að að- dragandinn er enginn og fólk því ekki undirbúið. Þá verður maður að treysta á reynslu og trú. Það eru kannski margir sem í hlut eiga og við tekur erfitt sorgarferli. Nú á aldarfjórðungi hefur maður því byggt upp reynslu og ég get glaðst yfir því að ég tel mig hafa verið farsælan í starfi. Þá er ég afar þakk- látur frábæru samstarfsfólki sem ég hef haft en ekki síst góðri og skilningsríkri fjölskyldu sem stutt hefur við bakið á mér allan tímann. Við förum héðan þakklát fyrir að ég hafi fengið að þjóna Guði okk- ar og gengið erinda hans í gleði og sorg.“ Eðvarð bætir því við að það sé öllum hollt að skipta um starfs- vettvang. „Þegar einar dyr lokast, opnast aðrar. Við munum sakna margs héðan frá Akranesi, en lífið er alltaf á hreyfingu, menn koma og fara. Öllu er afmörkuð stund og það gildir um búsetu og starfsvett- vang líka. Við þurfum að fara vel með tímann sem okkur er gefinn.“ Strax að kjarna málsins Í ljósi þessara erfiðustu verkefna sem tilkynning um dauðsfall er hverju sinni, dettur blaðamanni í hug að spyrja Eðvarð hvort íbúum hafi aldrei brugðið við að fá heim- sókn frá honum? „Jú, þegar þú seg- ir það. Einhverju sinni hafði ferm- ingarbarn gleymt námsgögnum úr fermingarfræðslunni hjá mér. Ég ákvað að skila þeim heim til við- komandi eftir að ég hafði kistu- lagt á sjúkrahúsinu í millitíðinni. Ég hafði ekki tekið niður presta- flibbann og ég get vottað að hús- ráðanda brá alveg óskaplega að sjá mig úti á stétt. Ég var því fljótur að koma mér að erindinu. Þetta atvik rifjar reyndar upp aðra sögu sem lifði lengi í guð- fræðideildinni. Einn af nemend- unum, sem oft fór ótroðnar slóð- ir í leit að sannleikanum, gat spurt kennarana alveg ótrúlegra spurn- inga. Eftir einn fyrirlesturinn um ástvinamissi og samtalstækni máttu nemendur spyrja að vild. Nemandinn rétti þá upp hönd og spurði eins og honum var einum lagið: „Fyrirgefðu, dr. Bjarni! Ef ég þyrfti nú að tilkynna sviplegt dauðsfall og færi heim til ástvin- anna og þeir byðu mér kaffi, væri þá ekki vissara að ég segði þeim erindið áður en ég þægi kaffið, svo að ég gleymdi því ekki?“ Dr. Bjarni varð ekki oft kjaftstopp - en það varð hann í þetta skipti. Það er ekki öll vitleysan eins,“ segir Eð- varð Ingólfsson að lokum. Blaðamaður þakkar Snæfell- ingnum og fráfarandi sóknarpresti Skagamanna fyrir gott og hrein- skiptið spjall um liðna tíma og ósk- ar honum og fjölskyldu hans vel- farnaðar á lífsins göngu. mm Ástráður Eysteinsson Safnahús Borgarfjarðar Bjarnarbraut 4-6 Borgarnesi, 433 7200 Verði breytingar á dagskrá verður það kynnt á www.safnahus.is Þegar fjarskinn kemur til fundar Um ljóðlist Þorsteins frá Hamri Fyrirlestur í Hallsteinssal fimmtudaginn 14. mars 2019, kl. 19.30. Dr. Ástráður Eysteinsson prófessor við Háskóla Íslands segir frá Þorsteini og ljóðlist hans. Ástráður er meðal fremstu fræðimanna landsins á sviði bókmennta. Þess má geta að hann bjó á æskuárum sínum í Borgarnesi. Fyrirlesturinn tekur um klukkutíma. Á eftir er spjall og heitt á könnunni. EEE Vakin er athygli á að sama dag kl. 10.00 er Myndamorgunn á vegum Héraðs- skjalasafnsins skv. fyrri auglýsingu. Feðgarnir Sigurjón og Eðvarð á góðri stundu. Ljósm. ee. Bryndís og Eðvarð með dótturdóttur sína Sigrúnu Eddu. Ljósm. ee. Á leið út úr fermingarathöfn í Akraneskirkju vorið 2016. Ljósm. mm. Eðvarð Ingólfsson heima í stofu á Laugarbrautinni. Ljósm. mm.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.