Skessuhorn


Skessuhorn - 06.03.2019, Page 24

Skessuhorn - 06.03.2019, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 201924 Eldri borgarar í Grundarfirði bök- uðu óhemju magn af rjómaboll- um um helgina enda bolludagur- inn mánudaginn 4. mars. Það er því ljóst að Grundfirðingar urðu ekki uppiskroppa með bollur á þessum hátíðisdegi. Þónokkrir tóku for- skot á sæluna og var ófáum bollum sporðrennt á sunnudeginum þegar bollusalan fór fram. tfk Bollusala eldri borgara Elsa Björnsdóttir var sérstaklega ánægð með framboðið á sunnudaginn. Hanne Alm er komin með girnilega rjómabollu á sinn disk. Áhöfnin á Lilju SH frá Rifi fékk há- karl á línuna á dögunum. Hákarl- inn var þriggja metra langur og vóg um 300 kíló. Áttu þeir eftir að draga töluvert af línunni þegar há- karlinn kom upp og brugðu þeir því á það ráð að binda hann við bátinn þar sem þeir gátu ekki dregið hann um borð. Var hákarlinn vel flæktur í línuna og drógu þeir hann þann- ig til hafnar. Hákarlinn fór svo til verkunar í Bjarnarhöfn í Helga- fellssveit en þar er ein af stærsta há- karlaverkunum landsins. þa Fengu hákarl á línuna Á fimmtudag í liðinni viku var mal- bikað á gatnamótum Esjubrautar, Akranesvegar og Kalmansbraut- ar á Akranesi. Framkvæmdir hafa staðið yfir við endurgerð Kalmans- torgs, hringtorgsins sem stendur á gatnamótunum, frá því síðasta haust. Samhliða endurgerð hring- torgsins hafa lagnir verið endur- nýjaðar. Upphaflega stóð til að verkinu yrði lokið nálægt áramót- um, en en vegna veðurs hefur töf orðið á framkvæmdum. Veðurfar undanfarna daga hefur hins vegar gert verktökum kleift að hefja mal- bikun. Þegar endurgerð Kalmanstorgs verður að fullu lokið stendur til að hefja vinnu við Esjubraut að Þjóð- braut, eins og gert er ráð fyrir í fjárfestinga- og framkvæmdaáætl- un Akraneskaupstaðar fyrir árið 2019. kgk Gatnamót malbikuð á Akranesi Gatnamótin sem um ræðir, horft upp Esjubraut. Akranesvegur til vinstri en Kalmansbraut liggur til hægri. Kvenfélagið Gleym mér ei í Grund- arfirði færði á dögunum Heilsu- gæslustöð Grundarfjarðar ný áhöld til notkunar við sjúkraþjálfunar- aðstöðu stöðvarinnar. Þarna var nýtt hlaupabretti, nýtt hlaupahjól og nýr æfingabolti. Það voru þau Agnes Sif Eyþórsdóttir og Moh- an Angamuthu sjúkraþjálfari sem veittu gjöfunum viðtöku. tfk Kvenfélagið styrkir sjúkraþjálfun F.v. Hrafnhilur Jóna Jónasdóttir, formaður kvenfélagsins, Mohan Angamuthu sjúkraþjálfari og Agnes Sif Eyþórsdóttir læknaritari. Félag eldri borgara í Grundarfirði og Grundarfjarðarbær hafa kom- ið af stað verkefni um heilsueflingu fyrir íbúa sem eru 60 ára og eldri eða búa við örorku. Verkefnið er í samvinnu við Grundarfjarðardeild Rauða kross Íslands og með að- komu Heilbrigðisstofnunar Vest- urlands og fleiri aðila. Boðið er upp á tíma í líkamsræktinni tvisvar í viku og svo hóptíma í íþróttahúsi bæjarins tvisvar í viku. Sædís Helga Guðmundsdóttir einkaþjálfari er leiðbeinandi hópsins og sér um æf- ingarnar og svo hefur Halla Karen Gunnarsdóttir íþróttakennari séð um mælingar á árangri hópsins. Verkefnið fer vel af stað og frá- bær þátttaka hefur verið. „Þátttak- endur eru þegar byrjaðir að finna mun á sér og hafa meiri þrek, meiri liðleika og finna síður fyrir líkam- legum óþægindum eftir að verk- efnið hófst í síðasta mánuði,“ segir Sædís Helga í samtali við fréttarit- ara. tfk Eldri borgarar í Grundar- firði á fullu í ræktinni Edda Svava Kristjánsdóttir og Þórunn Kristinsdóttir voru önnum kafnar í lyftingatækjunum. Sædís Helga Guðmundsdóttir er hér að leiðbeina iðkendum í róðravélinni. Guðmundur Njáll Þórðarson eigandi og þjálfari í líkamsræktinni er hér að leiðbeina Runólfi Guðmundssyni við æfingarnar.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.