Skessuhorn - 05.06.2019, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 5. júnÍ 2019 11
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Framhaldskólakennarar
Fjölbrautaskóli Snæfellinga Grundarfirði óskar eftir að ráða framhaldskólakennara næstkom-
andi skólaár 2019-2020. Um er að ræða líffræði 50% staða og íslenska 50% staða.
Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru nýting upplýsingatækni í skólastarfi, fjölbreyttar verkefna-
miðaðar kennsluaðferðir og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í fagi og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að
kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi
og uppbyggingu náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008). Laun greiðast samkvæmt
stofnanasamningi skólans.
Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2019.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Umsókn með ferilskrá, prófskírteinum, sakavottorði og með
upplýsingum um umsagnaraðila skal senda rafrænt til skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga á netfangið
hrafnhildur@fsn.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44,
350 Grundarfirði.
Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa
við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga.
Umsóknarfrestur er til og með 24.júní 2019.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í
sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari á hrafnhildur@fsn.is og
Sólrún Guðjónsdóttir aðstoðarskólameistari á netafanginu solrun@fsn.is.
Námsráðgjafi
Við Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði er laus til umsóknar 50% staða námsráðgjafa.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í námsráðgjöf.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2019.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Umsókn með ferilskrá, prófskírteinum, sakavottorði og með
upplýsingum um umsagnaraðila skal senda rafrænt til skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga á netfangið
hrafnhildur@fsn.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44,
350 Grundarfirði.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2019.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsókn getur gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.
Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa
við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga.
Sakavottorð fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar veitir aðstoðarskólameistari, Sólrún Guðjónsdóttir, solrun@fsn.is og skóla-
meistari, Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, hrafnhildur@fsn.is.
Matreiðslumaður
Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði leitar að faglærðum matreiðslumanni til að stýra
mötuneyti Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Mötuneytið er rekið í anda heilsueflandi framhalds-
skóla og áhersla lögð á hollan og næringarríkan mat.
Viðkomandi þarf að vera hugmyndaríkur og sjálfstæður í vinnubrögðum, hafa farsæla reynslu af svipuðum
rekstri, góða færni í mannlegum samskiptum og áhuga á að umgangast ungt fólk.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2019.
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags og skv. nánari útfærslu í
stofnanasamningi skólans.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Hrafnhildi Hallvarðsdóttur skóla-
meistara í netfangið hrafnhildur@fsn.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga,
Grundargötu 44, 350 Grundarfjörður
Vakin er athygli umsækjenda á að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða
einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um
sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið.
Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 24. júní 2019. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari í netfangi hrafnhildur@fsn.is
eða í síma 865-0424 og Sólrún Guðjónsdóttir aðstoðarskólameistari í netfangi solrun@fsn.is.
Einnig er hægt að hafa samband í síma 430-8400. Á vef skólans www.fsn.is má auk þess finna
ýmsar upplýsingar um skólann.
Skólameistari
Birna Kristín Baldursdóttir,
brautarstjóri Búvísindabrautar,
brautskráði 13 nemendur og Ing-
unn Sandra Arnþórsdóttir hlaut
verðlaun fyrir góðan árangur á
BS prófi. Gefandi: Bændasamtök
Íslands.
Ragnhildur Helga jónsdóttir,
brautarstjóri náttúru- og um-
hverfisfræðibrautar, og Bjarni
Diðrik Sigurðsson, brautarstjóri
Skógfræðibrautar, brautskráðu
fjóra nemendur alls. Eyrún Gyða
Gunnlaugsdóttir hlaut verðlaun
fyrir góðan árangur á BS prófi
í náttúru- og umhverfisfræði.
Gefandi: Hið íslenska náttúru-
fræðifélag. Þórhildur Ísberg
hlaut verðlaun fyrir góðan árang-
ur á BS prófi í Skógarfræði. Gef-
andi: Skógræktin.
Helena Guttormsdóttir braut-
arstjóri brautskráði sex nemend-
ur af Umhverfisskipulagsbraut.
Þóra Margrét júlíusdóttir hlaut
verðlaun fyrir góðan árangur í
skipulagsfögum með einkunina
9,23. Gefandi: Skipulagsfræði-
félag Íslands. Þá hlaut Þóra Mar-
grét einnig verðlaun fyrir góðan
árangur á BS prófi á Umhverf-
isskipulagsbraut. Gefandi: Félag
íslenskra landslagsarkitekta.
Eftirfarandi hlutu verðlaun
Landbúnaðarháskólans fyrir góð-
an árangur heilt yfir á B.S. prófi:
Þorbjörg Helga Sigurðardóttir,
fyrir frábæran árangur fyrir loka-
verkefni á BS prófi með eink-
unina 9,5. Einnig Þóra Margrét
júlíusdóttir, fyrir góðan árangur
á BS prófi með einkunina 8,96.
Bjarni Diðrik Sigurðsson og
Sigríður Kristjánsdóttir braut-
skráðu fimm nemendur og Helga
Stefánsdóttir fékk viðurkenningu
fyrir MS próf í skipulagsfræðum.
Gefandi: Skipulagsfræðifélag Ís-
lands. naomi D. Bos hlaut við-
urkenningu fyrir góðan árangur
í rannsóknamiðuðu MS prófi við
Landbúnaðarháskóla Íslands með
einkunina 9,32. Gefandi. Félag
íslenskra búfræðikandidata.
Geirlaug Þorvaldsdóttir,
fulltrúi stofnenda Framfarasjóðs
Ingibjargar Guðmundsdóttur og
Þorvaldar Guðmundssonar, af-
henti Kareni Björgu Gestsdóttur
styrk, en hún stefnir á MS nám í
búvísindum við Landbúnaðarhá-
skóla Íslands.
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir
rektor veitti styrk úr Blikastaða-
sjóði til Katrínar Björnsdóttur til
að hefja doktorsnám við Land-
búnaðarháskóla Íslands.
arg
Síðastliðinn föstudag útskrifað-
ist Lára Karitas jóhannesdóttir af
félagsfræðabraut við Menntaskóla
Borgarfjarðar með 9,44 í loka-
einkunn, sem var hæsta meðalein-
kunn á stúdentsprófi. Lára Karitas
segist ekki geta deilt neinu leyndar-
máli um hvernig hægt sé að ná svo
góðum árangri en segir að námið
hafi alltaf legið þokkalega vel fyrir
henni. „Mér þótti námið skemmti-
legt og ég held að það sé lykillinn.
Þegar manni þykir skemmtilegt það
sem maður er að gera er það auð-
veldara og maður er duglegri. Ég
held að það eina sem skipti máli sé
að vera vel undirbúin fyrir skólann
og gera öll verkefni, sama hversu
lítil eða stór þau eru,“ segir Lára
þegar Skessuhorn heyrði í henni
hljóðið. Samhliða námi hefur hún
unnið í hlutastarfi, fyrst í Bónus í
Borgarnesi og svo í nettó. Aðspurð
segist hún ekki hafa stundað neinar
tómstundir sérstaklega en stundum
farið í ræktina. „Það er gott að fara
stundum í ræktina til að hreinsa
hugann, hlaupa smávegis og fá út-
rás,“ segir hún.
Eftir útskriftina var haldin út-
skriftarveisla í tilefni dagsins. „Ég
fagnaði með lítilli veislu fyrir fjöl-
skylduna. Svo er ég að fara í viku-
ferð með fjölskyldunni minni til
Almeria,“ segir hún. Í sumar ætlar
hún að vinna í Brákarhlíð í Borgar-
nesi, en hvað tekur við í haust? „Ég
er búin að skrá mig í lögfræði við
Háskólann á Akureyri næsta haust.
Ég ætla í fjarnám og búa áfram í
Borgarnesi,“ svarar hún. „Ég valdi
lögfræði því ég veit ekki alveg hvað
mig langar að verða og ég tel lög-
fræði vera góðan grunn fyrir margt
sem höfðar til mín. Ég vil fara strax
í nám og ætla að byrja á þessu og sjá
til hvað ég byggi svo ofan á þetta,“
segir hún að endingu. arg
Dúx Menntaskóla
Borgarfjarðar hefur
skráð sig í lögfræði