Skessuhorn - 05.06.2019, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 5. júnÍ 2019 13
Þekking
Gæði
Þjónusta
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388
Riðið verður til hátíðarmessu; lagt af stað frá Gróf kl. 10:00,
Kópareykjum kl. 10:00 og frá Hofsstöðum kl. 10:15. Hátíðarmessa
hefst í Reykholti kl. 11:00.
Hangikjötsveisla hefst í Logalandi kl. 13:00.
Verð 3.000 kr. fyrir 14 ára og eldri, 1.500 kr. fyrir 6 - 13 ára og frítt
fyrir yngri.
Hátíðarræða, fjallkona, tónlistaratriði, hoppukastalar, hópakstur
forntækja, hefðbundnir leikir og hin sívinsæla karamelluflugvél.
Einnig verða veittar viðurkenningar til barna sem hafa stundað
íþróttir á vegum UMFR.
17. júní nefnd
Ungmennafélags Reykdæla
17. júní í Reykholtsdal
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
9
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Fjölmennur kynningarfundur um
þangvinnslu var haldinn í Amts-
bókasafninu í Stykkishólmi þriðju-
daginn 28. maí síðastliðinn. Þar var
kynnt skýrsla ráðgjafanefndar um
rannsóknar-, vinnslu- og afurða-
miðstöð þangs í Stykkishólmi. Ráð-
gjafanefndin leggur til að hafnar
verði viðræður við kanadíska fyrir-
tækið Acadian Seaplants Ltd., hafi
bæjaryfirvöld hug á að þangvinnsla
hefjist í Stykkishólmi. Íslenska
kalkþörungafélagið ehf. hafði einn-
ig lýst yfir áhuga á vinnslu í bæn-
um.
Hugmyndir og áform um þang-
vinnslu í Stykkishólmi hafa verið til
umræðu og meðferðar hjá bæjar-
yfirvöldum um nokkurra ára skeið.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, for-
seti bæjarstjórnar, fjallaði á fundin-
um um það sem hefur gerst á þessu
kjörtímabili og jakob Björgvin jak-
obsson bæjarstjóri fór yfir aðkomu
bæjarins að þessum málum.
Halldór Árnason, formaður ráð-
gjafanefndarinnar, kynnti skýrsl-
una og greindi frá niðurstöðum
nefndarinnar. Í máli hans kom
fram að margir fyrirvarar eru á því
hvort vinnsla á þangi muni hefjast í
Stykkishólmi, meðal annars á alveg
eftir að semja við landeigendur um
nýtingu á þangi á þeirra landareign,
en þang er slegið innan netalaga.
Styrkir búsetuskilyrði
nefndin telur að þörungavinnsla
í Stykkishólmi komi til með að
styrkja búsetuskilyrði í bænum, auka
fjölbreytni atvinnulífs og styrkja
rekstrargrundvöll margra þjónustu-
fyrirtækja. Þegar verksmiðjan verð-
ur komin í full afköst gæti störfum
fjölgað um 20, auk átta afleiddra
starfa. Áætlað er að fjárhagslegur
ávinningur Stykkishólmsbæjar geti
numið um 30 milljónum króna auk
afleiddra tekna.
Þá telur nefndin sömuleiðis að
þörungavinnsla í Stykkishólmi gæti
orðið til þess að auka rannsóknir
á lífríki Breiðafjarðar og sjálfbæra
nýtingu sjávarfangs úr firðinum.
Grundvallaratriði sé að nýta allt
hráefni vel og að öflun þess sé sjálf-
bær. Stefna þurfi að því að hámarka
virði hráefnisins og vinna stöðugt
að þróun betri afurða og vinnslu
efna úr því.
nefndin telur það miklu skipta
fyrir bæinn að fyrirtæki sem reisi
þörungavinnslu í Stykkishólmi
sé tilbúið að skuldbinda sig til að
byggja upp vinnslu með vísinda-
legri nálgun við hlið hinnar vinnsl-
unnar. Æskilegt væri að fyrirtækið
setti ákveðið hlutfall af tekjum sín-
um í rannsóknir og þróun.
Rætt verði
við Kanadamennina
Ef bæjaryfirvöld hyggjast halda
áfram viðræðum um þangvinnslu í
Stykkishólmi leggur nefndin til að
samið verði við kanadíska fyrirtæk-
ið Acadian Seaplants Ltd. Einnig
hafði Íslenska kalkþörungafélagið,
sem er í eigu Marigot á Írlandi, lýst
yfir áhuga á þörungavinnslu í bæn-
um. nefndin telur bæði fyrirtækin
hafa burði og reynslu til að koma
á vinnslu í Stykkishólmi. Var nið-
urstaðan sú að nefndin telur kan-
adíska fyrirtækið hafa meiri burði
og vísindalega þekkingu og reynslu
til að koma vinnslunni fót og styðja
við rannsóknir á efnisinnihaldi þara
og þangs með virðisaukandi fram-
leiðslu að leiðarljósi. Því mælir
nefndin með því að bæjaryfirvöld
ræði fyrst við Acadian Seaplants
Ltd., verði ákveðið að halda áfram
með málið.
Kanadíska fyrirtækið hefur lýst
sig reiðubúið að greiða fyrir ferð
bæjarfulltrúa til Kanada til að skoða
þangverksmiðju í þeirra eigu þar.
Einn fundargesta, Grétar Pálsson,
hafði orð á því á fundinum að stíga
ætti varlega til jarðar við að þiggja
slík boð.
sá/kgk/ Ljósm. sá.
Talsverðar framkvæmdir eru nú
í gangi í Þjóðgarðinum Snæfells-
jökli. Vinna stendur yfir við stækk-
un bílastæðisins á Malarrifi. Ekki
liggur fyrir hvenær þeim lýkur
en það ætti þó að vera innan tíð-
ar. Það er B.Vigfússon ehf sem sér
um framkvæmdirnar og á fyrir-
tækið að skila bílastæðinu tilbúnu
til malbikunar. Aðrar fyrirhugað-
ar fræmkvæmdir í Þjóðgarðinum
í sumar eru meðal annars að veg-
urinn út að Skálasnaga verður lag-
færður. Til stendur einnig í haust
að flytja salernishúsin á Djúpalóns-
sandi upp að afleggjaranum niður á
sandinn. Í sumar starfa fjórir land-
verðir hjá þjóðgarðinum en 1. maí
síðastliðinn hóf heilsárslandvörður
störf við þjóðgarðinn og heilsárs-
starfsmenn því orðnir þrír af þess-
um fjórum. Einnig koma sjálfboða-
liðar Umhverfisstofnunar og verða
með nokkra hópa að störfum nú í
byrjun júní.
þa
Ýmsar framkvæmdir í
Þjóðgarðinum Snæfellsjökli
Vel sóttur kynningarfundur
um þangvinnslu
Helgi Árnason, formaður ráðgjafanefndarinnar, í ræðustól.
Fundurinn var þétt setinn.