Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - dec. 2019, Side 30

Læknablaðið - dec. 2019, Side 30
566 LÆKNAblaðið 2019/105 Y F I R L I T sem endurblæðingu, lengri spítaladvöl, skurðaðgerð eða dauða.56,58 Önnur þessara safngreininga sýndi ekki fram á ávinning af með- ferð í æð borið saman við um munn58 en hin56 gerði ekki greinar- mun á milli meðferðar um munn og ósamfelldrar meðferðar í æð þar sem heildarsýrumhemjandi áhrif þessara meðferðarleiða er svipuð þó að meðferð í æð virki fyrr.59 Ef meðhöndla ætti án dreypis gæti verið skynsamlegt að gefa 80 mg esomeprasól í æð sem hleðsluskammt og 40 mg x 2 í æð eftir það. Allir sjúklingar sem taldir eru vera með blæðingu frá æðagúl- um í vélinda ætti að meðhöndla sem fyrst með terlipressin (Gly- pressin®) 2 mg x 6 í æð, sem er smíðuð hliðstæða vasopressin en það dregur saman garnahengisslagæðar (mesenteric arteries) og minnkar portæðaflæði.60 Af æðavirkum lyfjum í iðrablóðrás (terli- pressin, vasopressin, somatostatin og smíðuð hliðstæða þess oct- reotide), er terlipressin eitt og sér eina lyfið sem sýnt hefur verið fram á að dragi úr hættu á dauða hjá sjúklingum með blæðingu frá æðagúlum í vélinda, hlutfallsleg áhætta 0,66, 95% ÖB 0,49-0,88.61 Jafnframt hefur verið sýnt fram á það að vikulöng sýklalyfjameð- ferð (svo sem ceftriaxone 1g x 1) í þessum sjúklingahópi dregur úr sýkingum (HÁ 0,43 95% ÖB 0,19-0,97), endurblæðingu (HÁ 0,53 95% ÖB 0,38-0,74) og dauða (HÁ 0,79 95% ÖB 0,63-0,98).62 Ekki hefur verið sýnt fram á ávinning af meðferð með prótonupumpu- hemlum í blæðingum frá æðagúlum í vélinda.60 Sýklalyfið erythromycín er notað fyrir sjúklinga með alvarlega blæðingu frá efri hluta meltingarvegar. Erythromycín er motilín viðtakaörvi (agonist) í maga sem eykur magahreyfingar og flýtir þannig fyrir tæmingu maga en ef mikið blóð er í maga torveldar það greiningu blæðingarstaðar og meðhöndlun.57 Mælt er með að gefa stakan 250 mg skammt í æð 30-120 mínútum fyrir speglun, en sýnt hefur verið fram að það auki yfirsýn, minnki þörf á endur- tekinni magaspeglun, dragi úr blóðgjöfum og stytti spítaladvöl.57 Blóðgjöf Samkvæmt ráðleggingum blóðbanka Landspítala frá 2012 er ráðlagt að halda blóðrauða yfir 100g/L í blæðandi sjúklingum.63 Erlendis er víða farið að miða við 70-90g/L, en >90g/L í einstaklingum með stórfellda blæðingu, krans-, útlægan eða heilaæðasjúkdóm.49,50,57 Þetta viðmið byggist aðallega á tveimur slembiröðuðum rann- sóknum sem náðu einvörðungu til einstaklinga með blæðingu frá efri hluta meltingarvegar,64,65 útilokaðir voru einstaklingar með stórfellda blæðingu (skilgreint sem neyðarblóð gefið, merki um lost eða speglun á bráðamóttöku/gjörgæslu,64 ekki skilgreint65) og krans-, útlægan eða heilaæðasjúkdóm.65 Niðurstöður sýndu fram betri 6 vikna lifun (95% á móti 91% HÁ 0,55 95% ÖB 0,33-0,92) og minni hættu á áframhaldandi blæðingu (10% á móti 16%, HÁ 0,68 95% ÖB 0,47-0,98) hjá sjúklingum með blóðgjafaþröskuld <70g/L borið saman við þá með þröskuld <90g/L.65 Sjúklingar sem fengu blóð ef blóðrauði féll undir 80g/L höfðu ekki verri 28 daga horfur borið saman við þá sem fengu blóðgjöf við blóðrauða <100g/L.64 Íhlutanir Blæðingu frá meltingarvegi má stundum meðhöndla beint, í flest- um tilfellum er það gert með speglunartækni en í einstaka tilfelli er þörf á stíflun slagæða með æðaþræðingu eða skurðaðgerð. Leið- ir til þess að meðhöndla blæðingu með speglunartæki eru nokkrar en það má skipta þeim gróflega í sprautumeðferð (oftast adrena- lín), brennslu (argon plasma, rafmagn eða hiti) og meðhöndlun með þar til gerðum búnaði speglunartækis, svo sem heftingu sem virkar eins og heftibyssa, eða teygjumeðferð sem er beitt á æðagúla í vélinda. Á mynd 1 má sjá dæmi um virka blæðingu frá magasári og hvernig það er meðhöndlað með speglunartæki. Seinast má nefna TIPS (transjugular intrahepatic portosystemic shunt) sem neyðarmeðferð við blæðingu frá æðagúlum í vélinda ef lyfja- eða speglunartækismeðferð duga ekki til en slík aðgerð dregur úr þrýstingi í portæðakerfi með því að leiða hluta bláæðablóðrásar fram hjá lifur.60 Mynd 1. Á vinstri hluta myndar má sjá blæðandi magasár. Á hægri hluta myndar má sjá hvar blæðing hefur verið stöðvuð með heftingu (hemoclips).

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.