Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - dec 2019, Qupperneq 35

Læknablaðið - dec 2019, Qupperneq 35
LÆKNAblaðið 2019/105 571 F R É T T A S Í Ð A N „Sífellt fleiri fá krabbamein og sífellt fleiri lifa það af,“ sagði Linda Aagaard Thomsen, lyfjafræðingur hjá Danska krabba- meinsfélaginu, á opnum fyrirlestri á ráðstefnu norrænna læknanema, FINO 2019, í Hringsal Barnaspítalans. Hún er með- limur í vinnuhópi á vegum ECL ECL (The Association of Europe- an Cancer Leagues) og European Fair Pricing Network og fjallaði um áskoranir sem felast í kostnaði og aðgengi að nýjum krabba- meinslyfjum. Ráðstefnan er árleg og á 5 ára fresti hér á landi. Thomsen ræddi um hvernig lyfjakostnaður danska ríkisins hefði síðustu ár hækkað vegna krabbameinslyfja. 9% fjármagns til heilbrigðiskerfisins fari í lyf í Danmörku. „Einn þriðji þessarar upphæðar fer í krabbameinslyf,“ sagði hún og fór yfir hvernig upphæðin hefur hækkað ár frá ári. Árið 2007 hafi 5 milljarðar danskra króna farið í lyf en nú 9,2 milljarðar danskra króna, eða 175 milljarðar íslenskra króna. Thomsen sagði að lyfjaverð leiki æ stærra hlutverk við með- ferðina. „Verðið er á uppleið rétt eins og umræðan um hvort meðferðirnar séu sjálfbærar.“ Stjórnvöld reyni að bregðast við þessum aukna vanda og lækka verð. „Þau velja jafnvel á milli lyfja því þau telja sig ekki hafa efni á þeim öllum,“ sagði hún og nefndi sem dæmi í fyrirspurnum að hollensk yfirvöld hefðu hafið lyfjaframleiðslu til að sporna við vandanum. Hún sagði frá samvinnunni innan ECL þar sem 25 félög frá 23 Evrópulöndum hafi frá árinu 2013 unnið að því að allir Evrópu- búar fái árangursríkustu meðferð við krabbameini sem völ er á. „En til þess þarf að vera gagnsæi í verðlagningu lyfjanna.“ Linda Aagaard Thom- sen, lyfjafræðingur hjá Danska krabbameins- félaginu, hélt opinn fyrirlestur á árlegri ráðstefnu norrænna læknanema, en ráð- stefnan er haldin 5. hvert ár hér á landi. Mynd/gag Bjargráður, Ástráður og Bangsaspítalinn eru allt verkefni sem ráðist hefur verið í hér á landi eftir árlega ráðstefnu norrænna læknanema. Ráðstefnan er 5. hvert ár hér á landi og voru gestirnir í ár um 60 með 10 skipuleggjendum. Þetta segir Sólveig Bjarnadóttir, formaður Félags læknanema og ein skipuleggjenda ráðstefnunnar. Hún var ánægð með viðburðinn. „Þessi opni fyrirlestur Thomsen stóð upp úr,“ segir Sólveig. Einnig hafi verið ánægjulegt hve margir erlendu gestanna tóku þátt í skemmtidagskrá ráðstefnunnar. Þeir hafi farið í ferð um Suðurland. Ráðstefnugestir sátu 9 fyrirlestra og tóku þátt í vinnubúðum. „Frábært er að fá tækifæri til að hitta norræna læknanema. Við fáum hugmyndir að verkefnum og höfum sýnt að við framkvæm- um þær,“ segir hún. Fjöldi verkefna komið út úr samstarfi læknanema Hækkandi lyfjakostnaður krefjandi fyrir heilbrigðiskerfi heimsins Lyfjafræðingur hjá Danska krabbameinsfélaginu benti á að lyfjakostnaður í Danmörku hefði hækkað um ríflega 80% á rúmum áratug Hún fór einnig yfir aðrar áskoranir í erindi sínu, eins og ólíka löggjöf milli landa, sem geti haft áhrif á hvort lyfin fáist. Þá hafi ECL einnig skoðað hvort lyfin sem eru gefin væru eins árangurs- rík og ætla mætti. „Við höfum séð að krabbameinssjúklingar í Evrópu hafa ekki aðgang að sömu meðferðunum,“ sagði hún og nefndi til að mynda ólíka meðferð við lungnakrabbameini. Þær nýjustu væru ekki endilega í boði í austurhluta Evrópu. „Þegar við lítum á markaðinn síðustu 10 ár sjáum við mikinn mun á því hvað býðst í hverju landi. Við sjáum hvernig fátækari lönd geta keypt lyfin á lægra verði, en selja þau jafnharðan. Við sjáum einnig að sum þessara ódýrari lyfja seljast upp,“ segir hún. „Við sjáum hvernig lyfjafyrirtæki skortir hvata til að halda ódýr- ari lyfjum á markaðnum. Þegar þau framleiða ný og dýrari lyf taka þau ódýrari lyfin af markaði. Það hefur mikil áhrif á fátæk- ari lönd Evrópu. Við sjáum því mikinn mun á austur- og vestur- hluta Evrópu,“ sagði hún. Teitur Ari Theodórsson og Sólveig Bjarnadóttir við fyrirlestur Lindu Aagaard Thomsen á FINO 2019, ráðstefnu norrænna læknanema. Mynd/gag

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.