Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - dec. 2019, Side 38

Læknablaðið - dec. 2019, Side 38
574 LÆKNAblaðið 2019/105 „Bakslag,“ segir Ebba Margrét Magnús- dóttir, formaður Læknaráðs og kvensjúk- dómalæknir, spurð um viðkvæma stöðu innan stórra heilbrigðisstofnana landsins um þessar mundir, til að mynda rekstrar- vanda Landspítala. Starfsfólk spítalans hafi verið búið að jafna sig eftir sparnað- arkröfur hrunsáranna og verið orðið bjart- sýnna. „En með halla spítalans, sparnaðar- kröfum frá fjárlaganefnd og samdrætti í úthlutunum til byggingar nýja meðferðar- kjarnans verður bakslag. Ég hef vissulega smá áhyggjur af stöðunni og vona að við missum ekki fólk sem gefst upp á ástandinu,“ segir Ebba sem þó vill ekki vera svartsýn. „Já, margt er mjög vel gert og biðlistar að einhverju leyti að minnka og heilbrigð- isþing að ræða forgangsmál. Frábært. Fullt af góðum hugmyndum, en það þarf að hlúa að fólki á gólfinu, hlaupandi læknum og hjúkrunarfræðingum sem standa vakt- ina 24 tíma á sólarhring 365 daga á ári,“ segir hún. „Það er krefjandi.“ Verðum að standa í lappirnar Ebba Margrét hefur stýrt Læknaráði frá árinu 2017 og hefur aukinn þungi færst í málefni Landspítala á þeim tíma. Læknar tókust á á fundi læknaráðs föstudaginn 15. nóvember og varð stjórn ráðsins undir með ályktun sína um nýtt skipurit Landspítala sem þótti of mild gagnvart breytingunum. Hátt í 60 mnns sátu fundinn. Hún segist una því og lúta ákvörðunum meirihlutans. Mikilvægt sé þó að læknar standi saman á þessum ólg- utímum. „Það eru sviptingar innan heilbrigð- iskerfisins og mikilvægt að við læknar og aðrar heilbrigðisstéttir stöndum í fæturna, berjumst og séum hreinskilin með þenn- an fyrirhugaða niðurskurð á stoðsviðum Landspítala,“ segir hún og nefnir fréttir um að draga eigi úr fjárframlögum fyrir byggingu meðferðarkjarna spítalans um 3500 milljónir króna. „Þetta eru engar smátölur. Daglega eru fréttir af fráflæðisvanda bráðamóttökunn- ar og þá hljóta ráðamenn að sjá að það liggur á að laga ástandið,“ segir Ebba sem telur að þótt þeir sem stýri framkvæmd á nýjum spítala hafi stigið fram og sagt að ekki ætti að hægja á framkvæmdum sé erfitt að sjá hvernig annað sé hægt við þessa ákvörðun. „Allar opinberar framkvæmdir, svona stórar, fara yfirleitt framúr í tíma. Við sjá- um það með sjúkrahótelið. Það dróst að afhenda það og þegar það var gert komu margir gallar í ljós og ótrúlegt að svona skuli gerast á 21. öldinni,“ segir Ebba. Bakslag á Landspítala „Það er með ólíkindum að við höfum í eitt og hálft ár, ásamt Læknafélagi Íslands, Félagi sjúkrahússlækna og Félagi almennra lækna, bent mannauðssviði Landspít- ala, forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga á óánægju okkar með þá leið sem farin var við vinnslu jafnlauna- vottunar. Endalausir fundir, endalaus samtöl,“ segir Ebba Margrét Magnúsdóttir, formaður Læknaráðs. Hún sjái ekki hvernig spítalinn ætli að landa jafnlaunavottun fyrir árslok. Læknaráð mótmælir í ályktun harðlega því breska kerfi sem Landspítal valdi að nota við vottunarferlið. En verður hlustað? „Ég veit það ekki,“ segir Ebba Mar- grét. „Ég satt að segja efast pínulítið um það.“ Mikill tími og orka hefur farið í þetta mál. Bæði forstjóri og framkvæmdastjóri lækninga virðast hlusta ólíkt fram- kvæmdastjóra mannauðssviðs. „En því miður virðast ekki gjörðir fylgja því að skilja hlutina.“ Í ályktuninni segir að læknar muni hvorki sætta sig við að sjónarmið þeirra verði hunsuð, né að spítalinn fái jafnlaunavottun með þessum hætti, í andstöðu við lækna. Læknaráðið hvetur yfirstjórnina til að hverfa af þessari braut og nota sama kerfi og aðrar íslenskar heil- brigðisstofnarnir hafi notað með farsælum hætti. ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Ebba Margrét Magnúsdóttir, formaður Læknaráðs, segir aldrei mikilvægara en nú að læknar standi saman. Þeir eigi ekki að standa sundraðir af ótta við að missa spón úr aski sínum Verðum að vanda til jafnlaunavottunar

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.