Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Dec 2019, Page 43

Læknablaðið - Dec 2019, Page 43
LÆKNAblaðið 2019/105 579 Martin Ingi Sigurðsson Í tilefni starfsloka Gísla H. Sigurðssonar, prófessors í svæfinga- og gjörgæslulækn- ingum við Háskóla Íslands og Landspítala, var haldið málþing honum til heiðurs föstudaginn 15. nóvember síðastliðinn. Gísli H. Sigurðsson var ráðinn fyrsti prófessor í svæfinga- og gjörgæslulækn- ingum við Háskóla Íslands og forstöðu- læknir við Landspítala árið 2000 eftir að hafa gegnt stöðu prófessors við Háskólann í Bern fyrir þann tíma. Auk rannsóknarstarfa hefur Gísli verið mjög virkur í kennslu læknanema, þróun sér- námskennslu á Íslandi og skandinavísku samstarfi á sviði kennslu og vísinda. Gísli varð sjötugur í janúar síðastliðnum og lauk þá störfum sem prófessor. Á málþinginu hélt Martin Ingi Sig- urðsson, arftaki Gísla, tölu um ævi og störf hans. Sigríður Kalman, prófessor við Karólínska háskólasjúkrahúsið, fjallaði um skandínavískt samstarf á sviði svæf- inga- og gjörgæslulækninga undir merkj- um SSAI. Þá fjallaði Sven Erik Gisvold, prófessor við háskólann í Þrándheimi, um tíma sinn sem ritstjóri skandinavíska tímaritsins í svæfinga- og gjörgæslulækn- ingum auk þess sem hann fór yfir hug- leiðingar sínar um hættuna við það þegar yfirvöld leggja ofuráherslu á kostnað og framleiðni heilbrigðiskerfisins. Í ráðstefnu- lok flutti Alma Möller landlæknir Gísla svo kveðju frá samstarfsmönnum við Landspítalann. Frá vinstri: Engilbert Sigurðsson, Sven Erik Gisvold, Sigurbergur Kárason, Martin Ingi Sigurðsson, Gísli Heimir Sigurðsson, Alma Dagbjört Möller og Sigríður Kalman. Mynd Tómas Guðbjartsson Málþing til heiðurs Gísla H. Sigurðssyni Ríflega 60 manns mættu á yfirlitsfund Læknafélags um málið Á félagsfundi Læknafélags Íslands þann 26. nóvember var farið yfir launalækkanir á Landspítala. Ólga er í læknum þar sem yfirmenn og sérfræðingar hafa verið kall- aðir á fund yfirmanns og þeim tilkynnt um breytingar á umsömdum ráðninga- kjörum; að umsöndmum föstum yfir- vinnutímum hafi verið sagt upp. Í bréfi Reynis Arngrímssonar, for- manns félagsins, til Páls Matthíassonar, forstjóra spítalans, er óskað skýringa. Beðið er um upplýsingar um umfang launalækananna, sem sagðar eru félags- mönnum að stafi af rekstrarvanda spít- alans. Þá er óskað eftir því að fá að vita hvers vegna ekki var leitað til samstarfs- nefndar um kjör lækna vegna þess hve umfangsmiklar breytingarnar á kjörunum séu. „Gerir félagið alvarlegar athugasemd- ir við að svo var ekki gert,“ segir í bréfinu. Læknafélagið óskar einnig eftir því að fá að vita hvort og þá til hvaða annarra hópa en lækna uppsögn yfirvinnustunda nær til. Félagið vill vita hve umfangs- miklar aðgerðinar séu, sundurliðað eftir starfsstéttum. Þá vill félagið vita hve mik- ið sparast á ársgrundvelli og fá svör sem fyrst enda eigi nákvæmar upplýsingar um þetta efni að vera til hjá stofnuninni. Óska skýringa á launalækkunum yfirlækna og sérfræðinga Fjöldi félagsmanna Læknafélags Íslands mættu á fund þess til að fara yfir ákvörðun Landspítala að greiða færri yfir- vinnutíma eða enga til yfirlækna og sérfræðinga. Mynd/Védís

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.