Læknablaðið - dec. 2019, Side 57
LÆKNAblaðið 2019/105 593
F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S 3 1 . P I S T I L L
Færsla í sjúkraskrá þegar
ávanabindandi lyfi er ávísað
Andrés
Magnússon
yfirlæknir
Ólafur B.
Einarsson
verkefnastjóri
Margir sem nota ópíóíða, hvort sem er fast eða tímabundið,
nota einnig benzódíazepín. Árið 2018 leystu 62.000 manns
út ópíóíða og 56.000 manns út benzódíazepín og skyld lyf á
Íslandi. Sex þúsund einstaklingar leystu út benzódíazepín
og ópíóíða samtímis (± 15 dagar). Notkun þessara tveggja
slævandi lyfja eykur mjög hættuna á óæskilegum áhrifum
þeirra og getur jafnvel leitt til dauða. Í kjölfar aukinnar dánar-
tíðni af völdum ópíóíða á Vesturlöndum mælti CMDh (sam-
vinnuvettvangur lyfjastofnana innan EES) með því í febrúar
2018 að eftirfarandi texti skyldi settur inn í sérlyfjaskrártexta
(SmPC) allra benzódíazepín- og ópíóíð-lyfja, hafi hann ekki
verið fyrir:
Benzódíazepín og skyld lyf:
(Lausleg þýðing)
Áhætta við samhliða notkun ópíóíða:
Samhliða notkun (sérlyfjaheiti benzódíazepíns) og ópíóíða getur leitt
til slævingar, öndurnarbælingar, meðvitundarleysis og dauða. Vegna
þessarar hættu við samhliða notkun (sérlyfjaheiti benzódíazepíns) og
ópíóíða skal aðeins ávísa þessum lyfjum til samhliða notkunar þegar
engin önnur meðferðarúrræði eru möguleg. Ef ákveðið er að ávísa
(sérlyfjaheiti benzódíazepíns) og ópíóíða til samhliða notkunar skal
nota lægstu virka skammta og meðferðarlengd ætti að vera eins stutt
og unnt er.
Fylgjast á náið með einkennum öndunarbælingar og slævingar.
Eindregið er mælt með því að upplýsa sjúklinginn og aðstandendur
hans um þetta og hvetja þá til að vera á varðbergi gagnvart þessum
einkennum.
Sambærilegur texti kemur einnig inn varðandi öll ópíóíð-lyf
þar sem bent er á hættuna sem fylgir samhliða notkun ópíóíða og
annarra slævandi lyfja, svo sem benzódíazepína og skyldra lyfja.
Þessi vinna er þegar hafin við íslensku Sérlyfjaskrána.
Í mars 2018 gaf velferðarráðuneytið út skýrsluna Aðgerðir til að
sporna við misnotkun lyfja sem geta valdið ávana og fíkn.1 Í skýrslunni
eru rakin þau atriði sem ávallt ætti að ræða við sjúklinga sem fá
ávísað ávanabindandi lyfjum. Með vísan til þessa beinir Embætti
landlæknis því til lækna að eftirfarandi skuli fært í sjúkraskrá hjá
þeim sjúklingum sem fá ávísað ávanabindandi lyfi:
• Að önnur úrræði en ávanabindandi lyf hafi verið íhuguð eða
reynd.
• Að búið sé að útskýra fyrir sjúklingnum:
- Slævandi aukaverkanir og til hvaða ráða skuli gripið ef þeirra
verður vart.
- Hættuna á að ánetjast.
• Að ákveðið hafi verið fyrirfram hversu lengi á að gefa hið ávana-
bindandi lyf.
• Að ákveðið hafi verið fyrirfram í hvaða skömmtum.
• Ef farið er yfir fyrirfram ákveðna skammta og meðferðarlengd;
hvers vegna og hversu lengi fyrirhugað.
Af töflunni sést að í fyrra hefði þurft að færa í sjúkraskrá upplýs-
ingar um ávísun ávanabindandi lyfja hjá 100.000 manns og að fara
hefði þurft í gegnum samhliða notkun ópíóíða og benzódíazepína
hjá þúsundum einstaklinga til þess að ganga úr skugga um að
lægstu virku skammtar væru notaðir í stysta mögulegan tíma.
Heimildir
1. stjornarradid.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=3d1a8517-5f66-11e8-942c-005056bc530c - október
2019.
2. hma.eu/cmdh.html - október 2019.
Tafla 1. Fjöldi þeirra sem leysti út benzodiazepín og ópíóíða árið 2018.
Lyf Benz Z-lyf Ópíóíð Samtímis Benz
og ópíóíð
(± 15 dagar)
Samtímis Z-lyf
og ópíóíð
(± 15 dagar)
Fjöldi 26.313 30.028 61.762 6015 10.398