Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - des. 2019, Blaðsíða 57

Læknablaðið - des. 2019, Blaðsíða 57
LÆKNAblaðið 2019/105 593 F R Á E M B Æ T T I L A N D L Æ K N I S 3 1 . P I S T I L L Færsla í sjúkraskrá þegar ávanabindandi lyfi er ávísað Andrés Magnússon yfirlæknir Ólafur B. Einarsson verkefnastjóri Margir sem nota ópíóíða, hvort sem er fast eða tímabundið, nota einnig benzódíazepín. Árið 2018 leystu 62.000 manns út ópíóíða og 56.000 manns út benzódíazepín og skyld lyf á Íslandi. Sex þúsund einstaklingar leystu út benzódíazepín og ópíóíða samtímis (± 15 dagar). Notkun þessara tveggja slævandi lyfja eykur mjög hættuna á óæskilegum áhrifum þeirra og getur jafnvel leitt til dauða. Í kjölfar aukinnar dánar- tíðni af völdum ópíóíða á Vesturlöndum mælti CMDh (sam- vinnuvettvangur lyfjastofnana innan EES) með því í febrúar 2018 að eftirfarandi texti skyldi settur inn í sérlyfjaskrártexta (SmPC) allra benzódíazepín- og ópíóíð-lyfja, hafi hann ekki verið fyrir: Benzódíazepín og skyld lyf: (Lausleg þýðing) Áhætta við samhliða notkun ópíóíða: Samhliða notkun (sérlyfjaheiti benzódíazepíns) og ópíóíða getur leitt til slævingar, öndurnarbælingar, meðvitundarleysis og dauða. Vegna þessarar hættu við samhliða notkun (sérlyfjaheiti benzódíazepíns) og ópíóíða skal aðeins ávísa þessum lyfjum til samhliða notkunar þegar engin önnur meðferðarúrræði eru möguleg. Ef ákveðið er að ávísa (sérlyfjaheiti benzódíazepíns) og ópíóíða til samhliða notkunar skal nota lægstu virka skammta og meðferðarlengd ætti að vera eins stutt og unnt er. Fylgjast á náið með einkennum öndunarbælingar og slævingar. Eindregið er mælt með því að upplýsa sjúklinginn og aðstandendur hans um þetta og hvetja þá til að vera á varðbergi gagnvart þessum einkennum. Sambærilegur texti kemur einnig inn varðandi öll ópíóíð-lyf þar sem bent er á hættuna sem fylgir samhliða notkun ópíóíða og annarra slævandi lyfja, svo sem benzódíazepína og skyldra lyfja. Þessi vinna er þegar hafin við íslensku Sérlyfjaskrána. Í mars 2018 gaf velferðarráðuneytið út skýrsluna Aðgerðir til að sporna við misnotkun lyfja sem geta valdið ávana og fíkn.1 Í skýrslunni eru rakin þau atriði sem ávallt ætti að ræða við sjúklinga sem fá ávísað ávanabindandi lyfjum. Með vísan til þessa beinir Embætti landlæknis því til lækna að eftirfarandi skuli fært í sjúkraskrá hjá þeim sjúklingum sem fá ávísað ávanabindandi lyfi: • Að önnur úrræði en ávanabindandi lyf hafi verið íhuguð eða reynd. • Að búið sé að útskýra fyrir sjúklingnum: - Slævandi aukaverkanir og til hvaða ráða skuli gripið ef þeirra verður vart. - Hættuna á að ánetjast. • Að ákveðið hafi verið fyrirfram hversu lengi á að gefa hið ávana- bindandi lyf. • Að ákveðið hafi verið fyrirfram í hvaða skömmtum. • Ef farið er yfir fyrirfram ákveðna skammta og meðferðarlengd; hvers vegna og hversu lengi fyrirhugað. Af töflunni sést að í fyrra hefði þurft að færa í sjúkraskrá upplýs- ingar um ávísun ávanabindandi lyfja hjá 100.000 manns og að fara hefði þurft í gegnum samhliða notkun ópíóíða og benzódíazepína hjá þúsundum einstaklinga til þess að ganga úr skugga um að lægstu virku skammtar væru notaðir í stysta mögulegan tíma. Heimildir 1. stjornarradid.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=3d1a8517-5f66-11e8-942c-005056bc530c - október 2019. 2. hma.eu/cmdh.html - október 2019. Tafla 1. Fjöldi þeirra sem leysti út benzodiazepín og ópíóíða árið 2018. Lyf Benz Z-lyf Ópíóíð Samtímis Benz og ópíóíð (± 15 dagar) Samtímis Z-lyf og ópíóíð (± 15 dagar) Fjöldi 26.313 30.028 61.762 6015 10.398
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.