Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - nov. 2018, Side 4

Læknablaðið - nov. 2018, Side 4
491 Einar Logi Snorrason, Bergrós Kristín Jóhannesdóttir, Thor Aspelund, Vilmundur Guðnason, Karl Andersen Langtímahorfur sjúklinga með bráða kransæðastíflu Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök í heiminum í dag. Árið 2015 dóu yfir 7,4 milljónir manna af völdum blóðþurrðarhjartasjúkdóma, eða um 13% allra dauðsfalla. Í Evrópu eru blóðþurrðarhjartasjúkdómar orsakavaldur 21% dauðsfalla meðal kvenna og 20% dauðsfalla meðal karla. Á Íslandi hefur nýgengi þessara sjúkdóma lækkað verulega á síðustu árum eða um 66,5% og samhliða því hefur dánartíðni af völdum þeirra lækkað um 86% á tímabilinu 1981-2015. Horfur þeirra sem fá kransæðastíflu fer sömuleiðis batnandi og skýrist það að miklu leyti af bættri lyfjameðferð og tækniframförum. Um miðja síðustu öld dó þriðji hver sjúk- lingur með bráða kransæðastíflu áður en hann náði að útskrifast heim af sjúkrahúsi en nú er dánartíðni STEMI sjúklinga um 6-7% 30 dögum eftir innlögn. 499 Bryndís Ester Ólafsdóttir, Halla Fróðadóttir, Rebekka Guðrún Rúnarsdóttir, Elsa Björk Valsdóttir Risafituæxli á kvið - sjúkratilfelli Fituæxli eru algeng góðkynja mjúkvefjaæxli, oftast lítil, hægvaxandi og einkennalaus. Hér er lýst tilfelli 52 ára konu í mikilli yfirþyngd sem leitaði læknis vegna stækkandi æxlis ofan við lífbein sem var á stærð við fótbolta. Æxlið hafði farið vaxandi síðustu 8 mánuði. Sjúk- lingurinn undirgekkst aðgerð þar sem æxlið var fjarlægt. Risafituæxli eru skilgreind sem fituæxli yfir 10 cm í þvermál eða sem vega meira en 1000 grömm. 484 LÆKNAblaðið 2018/104 F R Æ Ð I G R E I N A R 11. tölublað ● 104. árgangur ● 2018 487 Fjölmiðlar og heil- brigðiskerfið Magnús Haraldsson Æskilegt væri að ritstjórar helstu fjölmiðla landsins ræddu við forsvarsmenn heil- brigðiskerfisins um hvernig best sé að fjalla með ábyrgum hætti um heilbrigðismál og koma í veg fyrir að lýsingar settar fram í geðshræringu séu gerðar að fréttaefni. 489 Nóbelsverðlaunin í læknisfræði 2018 – bylting í meðferð krabbameina Örvar Gunnarsson Horfur sjúklinga fara nú almennt batnandi og ég get ekki ímyndað neitt fag læknisfræðinnar sem er jafn skemmtilegt og með eins hraðri framþróun og krabba- meinslækningar. L E I Ð A R A R LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS 100 ÁRA 502 Óttar Guðmundsson Lækningar í Íslendingasögum Fyrir daga Hippókratesar var orsök allra sjúkdóma talin vera fyrir galdur eða áhrif góðra eða vondra afla. Fyrstu læknarnir voru venjulega galdramenn sem reyndu að reka sjúkdóma út með galdri. Talið er að frummerking orðsins læknir sé einmitt sær- ingamaður.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.