Læknablaðið - nov. 2018, Side 19
LÆKNAblaðið 2018/104 499
S J Ú K R A T I L F E L L I
Inngangur
Fituæxli (lipoma) eru algeng góðkynja mjúkvefjaæxli, mynduð af
þroskuðum fitufrumum og afmörkuð með bandvefshimnu.13 Fitu
æxli geta myndast hvar sem fitufrumur eru til staðar en eru þó oft
ast yfirborðslæg.1 Fituæxli eru yfirleitt hægvaxandi, undir 2 cm í
þvermál og vega nokkur grömm.1,4 Í sumum tilfellum geta fituæxli
orðið að svokölluðum „risafituæxlum“ (giant lipoma) sem eru skil
greind sem æxli yfir 10 sentímetrar í þvermál eða sem vega meira
en 1000 grömm.1,5,6 Töluverðum fjölda tilfella um risafituæxli hefur
verið lýst erlendis, en þetta er það fyrsta sem lýst er hér á landi.
Tilfelli
Um var að ræða 52 ára konu í mikilli yfirþyngd (líkamsþyngdar
stuðull 60 kg/m2) sem leitaði læknis vegna stækkandi æxlis ofan
við lífbein. Æxlið hafði farið vaxandi yfir tæplega þriggja mánaða
tímabil og var orðið á stærð við hnefa. Henni var vísað á bráða
móttöku Landspítala til uppvinnslu. Ekki voru áberandi verkir til
staðar eða önnur einkenni. Þar sem töluverður roði var yfir húð
inni, þó ekki væru merki um ígerð (abscess), var hún sett á sýklalyf
og ekki fyrirhugað frekara eftirlit.
Sex mánuðum síðar leitaði sjúklingurinn aftur á bráðamóttöku
Landspítala vegna vaxandi mæði og var þá greind klínískt með
lungnasegarek af lungnalæknum og sett á blóðþynningarmeðferð.
Í þeirri heimsókn kom í ljós að æxlið fyrir ofan lífbein hafði enn
vaxið og var orðið á stærð við fótbolta. Sérstaklega hraður vöxtur
hafði verið síðastliðnar tvær vikur að sögn sjúklings. Fengið var
álit kviðarholsskurðlækna og lýtalækna við uppvinnslu á æxlinu
og settu þeir saman teymi sem sá um uppvinnslu og meðferð.
Við skoðun var æxlið á breiðum húðstilk ofan við lífbein og
náði niður að ytri skapabörmum. Það var hreyfanlegt frá kvið
veggnum, mjúkt viðkomu og hékk niður á milli læra. Mikill bjúg
ur var í húðinni sem var dökkleit og gróf. Það var fleiður undir
fyrirferðinni sem vessaði frá en engin sýkingarmerki (mynd 1).
Risafituæxli á kvið sjúkratilfelli
Á G R I P
Fituæxli eru algeng góðkynja mjúkvefjaæxli, oftast lítil, hægvaxandi og
einkennalaus. Hér er lýst tilfelli 52 ára konu í mikilli yfirþyngd sem leit-
aði læknis vegna stækkandi æxlis ofan við lífbein sem var á stærð við
fótbolta. Æxlið hafði farið vaxandi síðustu 8 mánuði. Uppvinnsla gaf
vísbendingu að um fituæxli væri að ræða. Sjúklingurinn undirgekkst
aðgerð þar sem æxlið var fjarlægt. Vefjagreiningin sýndi fituæxli án ill-
kynja vaxtar. Fituæxli eru fjarlægð þegar stærð þeirra er farin að valda
einkennum eða útiloka þarf illkynja mein. Risafituæxli eru skilgreind
sem fituæxli yfir 10 cm í þvermál eða sem vega meira en 1000 grömm.
Bryndís Ester Ólafsdóttir1 læknir
Halla Fróðadóttir1 læknir
Rebekka Rúnarsdóttir2 læknir
Elsa B. Valsdóttir1,3 læknir
1Skurðsviði, 2meinafræðideild Landspítala, 3læknadeild Háskóla Íslands.
Fyrirspurnum svarar Bryndís Ester Ólafsdóttir, bryndeo@landspitali.is
Birt með leyfi sjúklings.
doi.org/10.17992/lbl.2018.11.204
Mynd 1. Fyrirferð sem hangir á breiðum húðstilk ofan við lífbein.
Heilmildir. 1: Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Ganfort® dags. 1. júní 2017. 2: Leske MC et al. Arch Ophthalmol 2003; 121: 48-56.
Þegar meðferðarmarkmið næst ekki
með einlyfjameðferð1
Hver einasti mmHg skiptir máli2 (bimatoprost/timolol) augndropar, lausn 0,3+5 mg/ml
Stytt samantekt á eiginleikum lyfs (SmPC) fyrir Ganfort augndropa, lausn:
GANFORT 0,3 mg/ml + 5 mg/ml augndropar, lausn. Virkt innihaldsefni: Hver ml af lausn inniheldur 0,3 mg bimatoprost og 5 mg timolol (sem 6,8 mg timololmaleat). Ábendingar: Til að lækka augnþrýsting hjá
fullorðnum sjúklingum með gleiðhornsgláku (open-angle glaucoma) eða hækkaðan augnþrýsting, sem svara ekki nægilega vel meðferð með beta-blokkandi augnlyfjum eða prostaglandinhliðstæðum. Frábendingar:
Ofnæmi fyrir virka efninu / virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna. Teppusjúkdómur í öndunarvegum (reactive airway disease), þ.e. astmi eða saga um astma, alvarlegur langvinnur teppulungnasjúkdómur.
Gúlshægsláttur, sjúkur sínushnútur, leiðslurof í gáttum, annarrar eða þriðju gráðu gáttasleglarof án gangráðs. Greinileg hjartabilun, hjartalost. Markaðsleyfishafi: Allergan Pharmaceuticals Ireland. Fyrir frekari
upplýsingar um lyfið má hafa samband við Actavis Pharmaceuticals Iceland ehf., Dalshrauni 1, 220 Hafnarfjörður, sími 550 3300, www.actavis.is. Dagsetning síðustu samantektar um eiginleika
lyfsins: 1. júní 2017. Október 2017. Nálgast má upplýsingar um Ganfort, fylgiseðil lyfsins og gildandi samantekt á eiginleikum þess á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.isActa
vi
s
71
01
32
UMBOÐSAÐILI Á ÍSLANDI: