Læknablaðið - nóv. 2018, Blaðsíða 26
Frekari upplýsingar um störfin
Um er að ræða tvö 100% störf, annars vegar yfirlæknis við
heilsugæsluna í Vestmannaeyjum og hins vegar sérfræðings í
heimilislækningum við sömu heilsugæslu.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf frá 1. febrúar 2019 eða
samkvæmt nánara samkomulagi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra
og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef HSU www.hsu.is undir
flipanum „lausar stöður”.
Umsóknum þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um
menntun, starfsleyfi og fyrri störf.
Umsóknarfrestur í störfin er til og með 15.11.2018.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurjón Kristinsson, settur framkvæmdastjóri lækninga HSU,
sigurjon.kristinsson@hsu.is
Sími: 432-2000.
Yfirlæknir
og sérfræðingur
í heimilislækningum
óskast á heilsugæsluna
í Vestmannaeyjum
Helstu verkefni og ábyrgð yfirlæknis heilsugæslunnar
• Skipulag og stjórnun lækninga við heilsugæslu
• Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd
• Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda
• Vaktþjónusta
• Leiðandi hlutverk í mótun og framkvæmd teymisvinnu
starfsfólks á heilsugæslu
• Þátttaka í gæðaverkefnum innan stofnunarinnar
s.s. þátttaka í kennslu og starfsþjálfun kandídata og
sérnámslækna í heimilislækningum auk fræðslu til
samstarfsmanna
Hæfniskröfur í bæði störf
• Sérfræðiréttindi í heimilislækningum
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Helstu verkefni og ábyrgð sérfræðings í heimilislækningum
• Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd
• Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda
• Vaktþjónusta
• Þátttaka í teymisvinnu og gæða- og
nýsköpunarverkefnum innan stofnunarinnar