Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 4

Læknablaðið - apr. 2019, Blaðsíða 4
163 Valgerður Dóra Traustadóttir, Elín Björk Tryggvadóttir, Ólöf Birna Ólafsdóttir, Aðalsteinn Guðmundsson, María Soffía Gottfreðsdóttir Lyfjameðferð gláku og hugsanlegar milliverkanir við meðferð annarra sjúkdóma Gláka er alvarlegur augnsjúkdómur og var algengasti blinduvaldur á Íslandi fram á miðja síðustu öld. Þar sem tíðni gláku hækkar með aldri eru sjúklingar oft einnig með aðra sjúkdóma og á margs konar lyfjum. 171 Katrín Hjaltadóttir, Kristín Huld Haraldsdóttir, Pétur Hörður Hannesson, Páll Helgi Möller Ísetning á kera við gallblöðrubólgu á Landspítala 2010-2016 Mikill fjöldi sjúklinga leggst inn á Landspítala árlega með gallblöðrubólgu og lagðist sjúk- lingur inn annan hvern dag á því tímabili sem hér er skoðað. Þriðjungur sjúklinga sem fékk gallvegatengdar sjúkdómsgreiningar var með gallblöðrubólgu, sem er í samræmi við aðrar rannsóknir og var meðalaldur þeirra einnig sambærilegur fyrri rannsóknum. 177 Tómas Guðbjartsson, Anders Jeppsson Skurðsýkingar eftir opnar hjartaaðgerðir – yfirlitsgrein Skurðsýkingar eru algengir fylgikvillar opinna hjartaaðgerða, í bringubeinsskurði og þegar bláæðagræðlingar eru teknir úr gang- limum fyrir kransæðahjáveitu. Oftast eru þetta yfirborðssýkingar sem svara sýklalyfjameðferð og sárahreinsun, en í 1-3% hjarta- aðgerða ná sýkingar í dýpra og valda miðmætisbólgu sem er lífs- hættuleg. 156 LÆKNAblaðið 2019/105 F R Æ Ð I G R E I N A R 4. tölublað ● 105. árgangur ● 2019 159 Davíð O. Arnar Stafrænar hjartalækningar, gervigreind og gildi hluttekningar Nú er hægt að taka hjarta- línurit með snjallsíma eða úri. Tíminn sem vinnst gæti nýst til að færa lækna aftur að rúmstokki sjúklings. Bein samskipti læknis og sjúklings eru nefnilega einn af horn- steinum læknisþjónustu. 161 Sigríður Dóra Magnúsdóttir Mislingar á Íslandi árið 2019, viðbrögð og lærdómur Undanfarnar vikur hafa sýnt okkur mikilvægi góðrar skráningar. Vistun gagna var ekki samræmd. Margar stöðvar eru með eigin skjala- geymslur, aðrar með gögn hjá Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins og nokkrir árgangar af ungbarnaskýrslum eru á Borgarskjalasafni. L E I Ð A R A R Mislingaveiran Kápumyndin er þrívíddarmynd af mislingaveirunni sem er gjörð af meistarahöndum auðsjáanlega. Mislingar byrja með hita, horrennsli, hósta, rauðum augum og sárum hálsi. Í kjölfarið fylgja útbrot um allan skrokkinn. Mislingar eru bráðsmitandi og ferðast um með andardrættinum, hósta og hnerra. Allir ættu að vera sprautaðir með MMR en það er bóluefni sem verndar börn og fullorðna fyrir mislingum, hettusótt og rauðum hundum. Mislingar hafa vafalítið fylgt mannkyni frá örófi alda. Þeim var einna fyrst lýst á 9. öld af lækni í hinni fornu Persíu sem greindi á milli bólusóttar og mislinga. Sjúkdómurinn olli miklum búsifjum á fyrri tíð, og dæmi eru um að byggðarlög hafi nærfellt lagst í auðn af hans völdum. Hann er talinn hafa lagt um 200 milljónir manna að velli síðastliðin 150 ár og enn deyja um 150-160 þúsund börn árlega þrátt fyrir að bóluefni hafi verið til reiðu frá miðjum sjöunda áratug síðustu aldar. Úr leiðara Sigurðar Guðmundssonar í Læknablaðinu í apríl 2014 Mynd frá Sótt- varnastofnun Banda- ríkjanna,CDC (Centers for Disease Control and Prevention) teiknari: Alissa Eckert

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.