Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Apr 2019, Page 46

Læknablaðið - Apr 2019, Page 46
198 LÆKNAblaðið 2019/105 „Mér brá að sjá hversu mikið var um að vera þegar ég steig inn í skurðstofur spít- alans í sérnámi mínu árið 2010. Það kom mér á óvart hvað fólkið var að sinna mörg- um hlutum í einu og hvað það var mikið áreiti utan frá. Þetta var annað en ég hafði gert mér í hugarlund að fram færi inni á skurðstofunni,“ segir Ólafur. Hann hafi fengið nett sjokk. „Það var mikið um að vera, mikil læti og mikið talað um aðra hluti auk þess sem margir voru að koma inn á skurðstofuna. Þessu umhverfi venst maður þegar fram í sækir,“ segir Ólafur. Í meistaranáminu hafi hann rekist á grein um vandann og áhuginn hafi verið kveiktur. Hann sé líka með gráðu í stjórnun, sem nái inn á þetta svið. „Þetta er spurning um flæði skrif- stofunnar og skipulag,“ segir hann. Mælingar rannsóknanna sýndu að tíðni truflana á skurðstofum sé 20,17 að meðal- tali í hverri aðgerð. „Sumar eru nauðsyn- legar og gagnlegar fyrir sjúklinginn, en flestar eru óþarfi,“ segir Ólafur. Loka- verkefni hans hafi haft áhrif á reglur á Landspítala. „Það má til að mynda ekki lengur vera með síma uppivið,“ segir hann. Oft séu óþarfar símhringingar milli stofa og fólk hafi ekki talið sig geta sleppt símanum úr vasanum. Ólafur segir rannsóknirnar hafa sýnt að teymi sem sé vant að vinna saman truflist síður en þau óvönu við utanaðkomandi áreiti. „Reyndara fólk venst utanaðkom- andi truflunum eins og hljóði, hita, kulda og öðrum truflunum og hættir að bregðast við þessum þáttum. En unga nýja fólkið er Ráp og farsímar trufla lækna á skurðstofum Erill og hraði. Truflanir eru tíðar á skurðstofum og þróa þarf aðferðir til að kenna starfsfólki að takast á við óhjákvæmilegar truflanir. Þær helstu í vinnuumhverfi skurðstofa voru ráp inn og út af skurðstofunni, samskipti, símar og boðtæki, truflanir tengdar tækjabúnaði, kennsla og hávaði. Þetta sá Ólafur G. Skúlason, hjúkrunardeildarstjóri á Landspítala og fyrrum formaður Félags hjúkrunarfræðinga, þegar hann rýndi í 14 erlendar rannsóknir um truflanir, í meistaranámi sínu sem lauk á vormánuðum í fyrra. Kveikjan að verkefninu var erillinn á skurðstofum Landspítala Ólafur G. Skúlason við störf á Landspítala. Hann segir það hafa komið á óvart hvað er mikið um truflanir á skurðstofum, en þeim megi venjast. Mynd/gag ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.