Hugur og hönd - 01.06.1983, Page 9
III
Víkur nú sögunni aftur til haustsins 1938 þar sem undirrit-
uð er ráðin til starfa hjá Sambandi íslenskra heimilisiðn-
aðarfélaga ásamt annarri stúlku, Júlíönu Guðjónsdóttur
frá Hólmavík. Var hún einnig nýkomin frá Noregi, eftir
nám í vefnaði í Bergen. Verkefni okkar þessara nýráðnu
starfskrafta var að vefa gólfteppi og renninga úr bandi
unnu úr íslenskri ull.
Samband íslenskra heimilisiðnaðarfélaga var stofnað
1920 vegna tilmæla frá fjárveitingarnefnd Alþingis. Eftir
þó nokkrar umræður í aðildarfélögum var samþykkt að
Heimilisiðnaðarfélag Norðurlands ætti tvo fulltrúa og
Heimilisiðnaðarfélag íslands þrjá, sem sagt nokkurskonar
fulltrúaráð er síðan fundaði um úthlutun til aðildarfélag-
anna. Fulltrúar Heimilisiðnaðarfélags Islands voru á þess-
um tíma Ragnhildur Pétursdóttir, Matthías Þórðarson
fornminjavörður og Maggi Magg læknir. Fulltrúarnir voru
kosnir af stjórnum aðildarfélaganna.
Mér er í fersku minni fyrsti heili dagurinn með þeim
Háteigshjónum. Okkur Júlíönu var boðið í fjölskyldubíln-
um og ekið um Þingvelli niður á Eyrarbakka. Afanga-
staðurinn var Húsið, einhver elsta bygging á Islandi. Þar
átti að verða heimili okkar og vinnustaður næsta vetur.
Þau hjón höfðu keypt Húsið nokkrum árum áður og
Ragnhildur þá með þann bakþanka að þarna gæti Hús-
mæðraskóli Suðurlands orðið til húsa; þróunin olli því
hins vegar að honum var síðar sjálfkjörinn staður á Laug-
arvatni. Húsið var farið að hrörna þegar þau tóku við því
og endurbættu þau það, trúverðug gamla tímanum.
Fljótlega var hafist handa og byrjað að undirbúa starf-