Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1983, Page 13

Hugur og hönd - 01.06.1983, Page 13
Ráðunautur ferðaðist um landið og hélt nám- skeið hjá flestum kvenfélagasamböndum landsins að ósk þeirra. Veitti einnig leiðbeiningar í vinnu- stofu námskeiða í Hafnarstræti 3. Ráðunautur var Sigríður Halldórsdóttir. f979 Heimilisiðnaðarskólinn var stofnaður að Lauf- ásvegi 2 og starfar þar á efri hæð allri. Skóla- stjóri 1979-80 var Kristín Jónsdóttir og frá 1980 Sigríður Halldórsdóttir. Hér var náð mikilvægum áfanga með föstum leiðbeiningar- og kennslu- stað. Með þróun skólans þarf meira húsrými og er þá neðri hæð að Laufásvegi 2 tilvalin stækkun. Verzlunin þar hefur nú af hagkvæmnisástæðum verið sameinuð verzluninni í Hafnarstræti 3 og verzlunarhæðin leigð fyrst um sinn til annars. En glæsilegt væri og heppi- legt skólastarfi, að geta tekið götuhæð verzlunarinnar fyr- ir skólastarf, t. d. vefnað. Útgáfustarfsemi Hugur og hönd, ársrit H. í. kom fyrst út 1966, og er það vandað tímarit með litmyndum að hluta, sem birtir greinar um handverk og listiðnað, mynstur og vinnuteikn- ingar og er sameiginlegt rit fræðslustarfs og verzlunar. Önnur útgáfustarfsemi hefir einnig verið nokkur, t. d. um þjóðbúninga, upphlutinn, myndskreytt Ieiðbeiningarit og tillögur að samræmingu íslenzkra þjóðbúninga. Endur- útgáfa á vefnaðarmynstrum Halldóru Bjarnadóttur á 100 ára afmæli hennar. Ágrip af stofnun og sögu H. í. á 60 ára afmælinu 1973, sem sent var öllum Norðurlöndunum og birt í heimilisiðn- aðartímaritum þeirra. Ekki birtist það þó í okkar riti, Hugur og hönd en var ekki ósvipað þessum skrifum, sem birtast nú á sjötugasta amælisári H. I. World Crafts Council (W. C. C.), eru listiðnaðar- samtök þar sem H. í. er félagi í, og var aðild okkar sam- þykkt á þingi W. C. C. í Tyrklandi 21. ágúst 1972. H. í. sendi sýningarmuni á listiðnaðarsýningu W. C. C. í Tor- onto 1974, án þess að senda fulltrúa. Hins vegar tók H. í. þátt í þingi W. C. C. árið 1973 sem haldið var í Nor- egi. Undirritaður telur mikilvægt að vera í þessum heimssamtökum og telur aðildina stuðla að kynnum á starfi H. í. utanlands og gæti einnig stuðlað að sölu á ís- lenzkum heimilisiðnaðarvörum erlendis. „20 ára tímabilið“ (50-70 ára starfsœfi H. /.). Okkur finnst, að þetta mikla átak á rúmlega 20 ára tímabili hafi heppnast, jafnvel miklu betur en við gátum vonað í HUGUR OG HÖND byrjun. Auðvitað á það sínar orsakir. Stjórn og nefndir hafa verið samhentar, hver maður gert sitt bezta og ekki horft til launa. Það hefur verið þörf fyrir framlag félagsins hjá öllum almenningi, er fæst við heimavinnu eða heimil- isiðnað og getur með því bætt nokkuð kjör sín og haft ánægju af með hjálp og tilsögn. Framlag muna til sýnis og sölu í verzlun H. I. hefur verið hvatning um hvern- ig hægt er vel að gera. Fleiri atriði koma eflaust til, en það er mikilvægt að geta unnið saman, þó allir geti varla alltaf verið sammála. Erfitt er að nefna nöfn eða þakka svo vel sé, þó skulu nokkur tilgreind. Sigrún Stefánsdóttir og Helga Kristjáns- dóttir stóðu fyrir samstarfi H. I. við Ferðaskrifstofu ríkis- ins og byrjun á eigin verzlun H. f. á Laufásvegi 2. Þær trúðu á málstaðinn og þörfina. Hulda Á. Stefánsdóttir með kunnáttu sveitaheimilanna og reynslu frá skóla sín- um á Blönduósi. Arnheiður Jónsdóttir var formaður í 19 ár og er ennþá full áhuga og með í stjórn verzlunarinnar, Gerður Hjörleifsdóttir hefur verið verzlunarstjóri síðan 1967. Framlag Gerðar til vaxtar verzlananna og þróunar vörugæða og listræns gildis mun vera afgerandi fyrir fram- gang þeirra og verður seint fullþakkað. Sigríður Halldórs- dóttir, ráðunautur H. í. og leiðbeinandi um námskeið úti á landsbyggðinni og í Reykjavík, er nú orðin skólastjóri Heimilisiðnaðarskólans, á vegum H. í. og mun hann vera í góðum höndum þar. Marga fleiri þyrfti að nefna, en öllum áður nefndum og ónefndum ber að þakka störf þeirra og trú á markmið og leiðir. Markmið og leiðir Það má öllum vera ljóst, að betri vörur fást varla nema með auknu leiðbeiningarstarfi, það er með þeirri listrænu þjálfun hugar og handa og verklegu kunnáttu, er til þarf að gera góðan hlut. Tengt leiðbeiningarstarfi, eða fram- hald af því, má svo nefna fyrirmyndir og formgjöf, þ. e. hönnuði. Verzlunin er auðvitað aðalmáttarstólpi starfsins til framkvæmda þessara og annarra atriða og einnig hinn sýnilegi og fasti .starfsstaður út á við, tengiliður við fram- leiðendur og sölustaður varanna. Við álítum, að heimilisiðnaður eigi sér mikla framtíð, nú meira sem ánægjuatriði, þar sem hann áður var meir af nauðsyn. Má þar nefna hinn mjög aukna frítíma flestra, hvað á að gera við hann? Einnig alla þá, sem ekki eiga kost á fastri launaðri vinnu, s. s. gamalt fólk, fatlað fólk og þá, sem einhverra hluta vegna eiga ekki heiman- gengt, t. d. margar húsmæður. Vel má einnig hugsa sér að fólk með óskerta starfsorku og tíma gerði einhverja framleiðslugrein heimilisiðnaðar að aðalstarfi, og það er 13

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.