Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1983, Qupperneq 17

Hugur og hönd - 01.06.1983, Qupperneq 17
Guðmundur Jósafatsson hafði heyrt, að hæsta tala á kaleik eftir Helga hafi verið 14, en af tölumerkingunni sést, að margir muni nú glataðir. Þannig segist Guðmund- ur hafa heyrt, að einn hafi verið seldur frá kirkju hér til Englands. Kaleikarnir eru allir mjög gerðarlegir, formið fagurt og gröfturinn vandaður. Stundum bregður fyrir óvenjulegu verki, svo sem á kaleiknum á Hvammstanga, áður í Kirkjuhvammi, þar sem hnúðurinn er myndaður af vöfð- um silfurvír um legginn. Auk kaleika og patína eru þekktar eftir Helga mat- skeiðar, lítil brennisvínsstaup og silfurhnappar, allt með stimpli hans og sumt með ártalsstimpli einnig. Kirkjusilfr- ið er enn í kirkjum, en aðrir gripir bæði á söfnum og í einkaeigu. Gripirnir, sem bera ártalsstimpil, eru frá árun- um 1804-1825. - Eitt staupið er gyllt innan og á röndinni og hefur hann því kunnað hina gömlu logagyllingarað- ferð, enda segir í vísitasíu Þingeyrarkirkju 1807, að hinn gamli „ósæmilega lappaði og loksins aftur sundur brotni kirkjunnar kaleikur af silfri fyrir meðalgöngu prestsins sra. Olafs Tómassonar af gullsmið Helga Þórðarsyni (sé) dável og snoturlega repareraður, . . .” og sé gylling inni- falin í viðgerðinni, sem kostaði 4 ríkisdali og 22 skildinga. - Þessi kaleikur er nú ekki lengur vís. Ein skemmtileg heimild er til um Helga Þórðarson, sem lýsir virðingu útlendings fyrir þessum afdalasmið. 1816 var Ebeneser Henderson staddur í Langadal á ferð sinni um landið. Þar mætti hann tveimur óvenjulegum bændum. „Annar þessara manna”, segir Henderson, „var gullsmiður, alkunnur á Islandi fyrir það, hve smíðar hans er ágætar, svo að þær jafnast nálega á við gripi hinna fremstu meistara í Kaupmannahöfn, enda þótt hann hafi aldrei lært þessa iðn sína, eða út fyrir landsteinana komið. Hann hefur líka smíðað úr án þess að hafa til þess nokkra hjálp.” - Hinn ferðalangurinn var óvenjulega vel að sér í stjörnufræði, en hann var Jón Bjarnason stjarn- fróði í Þórormstungu. Þarna fullyrðir Henderson, að Helgi sé ólærður og hafi aldrei til útlanda komið, en gripir hans benda þó fremur til hins gagnstæða. Líklegt má telja, að úr það, sem Helgi á að hafa smíðað, hafi verið stundaklukka, en klukkur smiðuðu stöku menn hér á þessum tíma, og kann þetta að stafa af ónákvæmri túlkun. En hér sést eins og víðar, að Helgi Þórðarson hefur verið snilldarsmiður og virtur á sinni tíð og eru gripir hans meðal hins bezta af því tagi, sem nú þekkist. Þór Magnússon Staup á þremur kúlufótum og með steyptum eyrum, gyllt innan og á rönd. með stimpli Hclga Þórðarsonar og ártali 1807, Þjms. 6515. Fangamarkið PPS er Péturs Péturs- sonar á Hríshóli í Reykhólasveit, langafa Gests Páls- sonar skálds. Ljósm. Ole Vill- umsen Krog.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.