Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1983, Síða 24

Hugur og hönd - 01.06.1983, Síða 24
Kona í reiðfötum, situr í enskum söðli. Ur myndasafni Pjóðminjasafns. og í hornin að aftan voru saumaðar mislitar rósir og fangamark eiganda. Undirdekkin voru oftast úr vaðmáli, svörtu, brúnu eða grænu og fóðruð með þykkri sérting eða öðru svipuðu efni. - Söðlarnir voru aftur mjög mis- munandi hvað lag og íburð snerti. Einstöku kona átti drifinn söðul, sem hún hafði fengið í arf. Drifinn söðull var sleginn fögru látúnsskrauti á sveifinni, fangamarki eiganda og ártali. Þetta skraut náði stundum aftur á reiðann sem varð þá tilkomumeiri, alsett- ur smá látúnsskjöldum. Algengastir voru djúpu söðlarnir klakklausu. En brátt komu klakksöðlarnir eða ensku söðlarnir í tísku, og þóttu þeir fallegri og hentugri en þeir gömlu. Fótafjölin var nú aðeins fyrir annan fótinn, hægra hné var brugðið upp á klakkinn. A gömlu söðlunum var fótafjölin breið, fyrir báða fætur, svo konurnar sátu þversum á hestinum. Stöku sinnum var ístað notað fyrir fótafjöl, koparístöð þóttu fallegust og koparstengur á beislum. Þá þótti ekki lakara að skreyta ennisólina og höfuðleðrið með smá kopardoppum. Yfir gömlu söðlana var oft breitt fagurt glitofið söðul- áklæði með fjölbreyttum mynstrum og litum. Algengt var að konur hefðu söðulsessur í söðlinum, saumaðar, skatt- eraðar, flosaðar eða ofnar, var oft vandað til þeirra. Hnakktöskur þóttu ómissandi og þá má ekki gleyma svip- unni. Svipan var kærkomin vinargjöf á sumardaginn fyrsta eða á afmælisdegi. Aðeins eina konu sá ég ríða á „þófa“. Þófar voru mjög óþægilegir, tvær dýnur voru girt- ar eins og reiðingsdýnur á hestinn og löng ól með ístöðum á báðum endum lögð yfir. Þegar allt var fengið til reiðskapar var gaman að skreppa á bak góðum hesti. Fjölmargar hestavísur eru til á íslenskri tungu og mörg lofkvæði hafa verið sungin, sem vitna um vinsældir íslenska hestsins. A Möðruvöllum í Hörgárdal sleit ég barnsskónum. For- eldrar mínir bjuggu þar um árabil stórbúi. Frá því ég man fyrst eftir mér, heyrði ég sérstaklega talað um tvo gæð- inga, sem þau áttu. Gerpir var leirljós Hornfirðingur, glæsilegur hestur og mikill töltari, en Svala var jörp hryssa frá Litla-Dunhaga. Hafði móðir mín eitt sinn feng- ið hana í sumargjöf. Svala varð því miður skammlíf, togn- aði á fæti svo ekki varð um bætt. Varð að fella hana og var hún jörðuð í Möðruvallatúni. Móðir mín tregaði mjög 24 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.