Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1983, Page 30

Hugur og hönd - 01.06.1983, Page 30
nokkrar hugleiðingar um brúður Orðið „brúða” eða „dúkka” merkir í daglegu tali leik- fangabrúða. Um það er varla nokkur vafi. Brúður geta þó verið ýmislegt annað, eins og t. d. útstillingarbrúður eða brúður í brúðuleikhúsi, svo eitthvað sé nefnt. Það ræðst af samhenginu hverju sinni hvað við er átt. Leikfangabrúður geta verið margs konar, allt frá glæsi- legum skrautbrúðum eins og þeirri, sem lýst er í kvæðinu: „ . . . fallegt, hrokkið hár/hettan rauð og kjóllinn blár. . .”, til dúkku af einföldustu gerð. Lítil spýta með nokkrum tuskum vöfðum utan um er barninu ekki síður kær en sú fallega. Það er ekki útlit dúkkunnar, sem skiptir megin máli, þegar spurt er hvort um leikfang sé að ræða eða ekki. Hlutverk hennar sker úr um það: Leik- fangabrúða er hlutur í mannsmynd, sem barn notar í leikjum sínum. Þegar saga og þróun brúðunnar er rannsökuð, má gera það út frá a. m. k. þrem sjónarhornum. I fyrsta lagi má kanna úr hverju brúður eru og hvernig þær eru búnar til í öðru lagi má athuga hvaða manngerðir þær eiga að sýna, t. d. karl eða konu, dreng eða stúlku, mismunandi þjóðerni og kynþætti. Síðast en ekki síst má rannsaka hlu- tverk þeirra í því samfélagi, er þær tilheyra. í þessu grein- arkorni verður alaðlega fjallað um hið síðasttalda og þá eingöngu um brúður sem leikfang. Aður en lengra er haldið er þó ekki úr vegi að gera örlitla grein fyrir for- sögu brúðunnar og mismunandi hlutverki. Fornleifafundir sýna að brúður hafa þekkst á elstu tímum, t. d. meðal egypta, grikkja, rómverja, indíána, eskimóa og í Austurlöndum. Brúður, sem fundist hafa frá þessum tímum, eru úr tré, beini, leir eða steini og líkjast í grófum dráttum mannskepnunni. Ekkert verður fullyrt um það hvort börn léku sér að brúðum í fornöld, en telja má nokkuð víst, að upphaflega hafi brúður haft trúarlega þýðingu, t. d. við forfeðradýrkun. Brúður voru einnig mikið notaðar við galdraiðkanir. Menn bjuggu til eftirlík- ingar af óvinum sínum og misþyrmdu síðan brúðunum í þeirri trú að þannig næðu þeir sér niðri á fyrirmyndinni. Þetta var sérstaklega áhrifaríkt ef hægt var að útbúa brúð- una með einhverju, sem tilheyrði óvininum, t. d. hár- lokki, fatapjötlu eða nögl. Ekki er svo ýkja langt síðan forfeður okkar lögðu af þennan sið og enn í dag er þessi notkun brúðunnar við lýði hjá frumstæðari þjóðflokkum. Nátengd þessari trú á notagildi brúðunnar við galdra- iðkanir er hlutverk liennar sem heillagripur. 30 Um 1930

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.