Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1983, Qupperneq 32

Hugur og hönd - 01.06.1983, Qupperneq 32
Þessi raunsæisstefna í framleiðslu leikfangabrúða kom fram á öðrum sviðum. Fljótlega eftir 1945 komu negra- dúkkur á Evrópumarkað. Brúður, sem sýndu mismunandi kynþætti, voru að vísu ekki nýjar af nálinni, því þær voru vinsælar í Evrópu þegar fyrir aldamótin. En negradúkkur eftirstríðsáranna endurspegluðu nýja tíma og nýa siði: Dvöl bandarískra hermanna og bandarísk menningaráhrif í Evrópu. Smábarnabrúðurnar héldu vinsældum sínum á eftir- stríðsárunum. Ahrifin frá Bandaríkjunum komu þó fram í nýrri gerð brúða eftir 1950, sem naut vaxandi vinsælda. Þessi nýja brúða var táningabrúðan, sem var ætluð stálp- uðum krökkum. „Barbie”-dúkkan var dæmigerður fulltrúi þess lífsstíls sem ríkir hjá bandarísku millistéttarfólki. Hann endurspeglast t. d. í sérstæðum fatastíl og lífshátt- um menntaskólaunglinga. Mikilvægast við þessa brúðu er að eiga sem mest af fjölbreytilegurn fötum. Með tilkomu „barbie”-dúkkunnar var að mörgu leyti horfið frá raun- sæisstefnu í útliti brúðanna. Eftir 1950 var farið að búa til smábarnabrúður, sem sýndu greinilega hvors kyns þær áttu að vera. Þetta var liður í þróun barnauppeldisins: fordóma átti að kveða niður. Á síðustu árum hafa brúður þróast frá nákvæmum eft- irlíkingum af manninum yfir í litskrúðugar og mjúkar tuskudúkkur, sem þola faðmlög og hnjask eigandans. Um sögu leikfangabrúðunnar hér á landi er lítið vitað, enn sem komið er. Heimildir um hana eru fáar og dreifð- ar. Mér vitanlega hefur engin skipulögð rannsókn verið gerð á þessu áhugaverða efni, svo góðar upplýsingar liggja ekki á lausu. I bók bókanna um íslenska þjóðhætti eru brúður afgreiddar í einni setningu: „Stúlkur gerðu sér brúður úr pjötlum og léku sér að þeim”. (Isl. þjóðh., 271). Á dögum Jónasar frá Hrafnagili voru menn ekki farnir að gefa sérstakan gaum að börnum og þeirra dag- lega lífi. Þess konar barnaáhugi er seinni tíma fyrirbæri. Þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins hefur sent út spurn- ingalista um leikföng og er eflaust margar upplýsingar þar að finna. En niðurstöður úr þeirri könnun liggja ekki fyrir ennþá. Eflaust má finna upplýsingar um leikfangabrúður í æviminningum, gömlum dagblöðum og öðru slíku, en eins og þegar hefur verið minnst á, eru þær ekki aðgengilegar. Telja má nokkuð víst, að brúður hafi borist hingað til lands ekki mikið seinna en um miðja síðustu öld. Ekki er ótrúlegt að einhverjir þeirra, er fóru utan, hafi haft með sér eintak heim, ekki síst þar sem brúður nutu vax- andi vinsælda í Evrópu. Það er að minnsta kosti vitað, að árið 1874 auglýsir kaupmaður í Reykjavík brúður til sölu. Ef dæma skal eftir öðrum menningarsögulegum nýjung- um, hafa brúður fyrst þekkst í kaupstöðum og þaðan dreifst út á landsbyggðina. Sú dreifing gerist mishratt og Brúða saumuð af Hall- fríði Þórðardóttur 1942-4. Gömul skinnbrúða hefur verið færð í ný peysuföt. Hollensk brúða sem get- ur gengið, frá 1941.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.