Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 62
prjónað barnavesti
Stœrð: 5-10 mán.
Efni: Plötulopi, hvítur 50 gr. Ein-
girni, lilla og bleikt. Tveir prjónar nr
3.5 og 4. 1 tala. Ath. snið á sniðörk.
Munsturprjón
Prjónið 3 umf sl með hvítu.
4. umf með bleiku: 1 L sl. x Haldið
bandinu fyrir aftan L og takið L óprj
sl framaf. 1 L sl. x Endurtakið pr út.
5. umf með bleiku: 1 L sl. x Haldið
bandinu fyrir framan L og takið L
óprj br framaf, 1 br. x Endurtakið pr
út.
Prjónið 4 umf sl með hvítu. Endur-
takið 4. umf og 5. umf með lilla
litnum. Prjónið þessar tvær umferðir
til skiptis með bleiku og lilla og 4
umf með hvítu á milli.
Byrjað á ermi: Fitjað upp 42 L á tvo
prjóna. Pr 14 umf. Aukið út í báðum
hliðum. 2 x 1 L og 1 x 2 L. Aukið
síðan út fyrir: Fram- og bakstykki. 24
L hvoru megin. Þegar stk. mælist
10.5 cm er miðjan merkt með band-
spotta. Prj nú hv stk fyrir sig. (49) L.
Vinstra framstykki: Byrjið við miðju
merkinguna. Fellið af í byrjun hvers
prjóns fyrir hálsmáli 1 x 4 L, 1 x 2 L,
2 x 1 L. Prjónið þar til framstk mæl-
ist 12 cm. (Sjá snið). Fellið laust af.
Hœgra framstykki: Fitjið upp 41 L og
prj eins og v framstk en aukið út
hægra megin (hálsmálsm) 2 x 1 L, 1
x 2 L og 1 x 4 L. Leggið til hliðar.
Bakstykki: Byrjið við hálsmálið. Fell-
ið af 3 x 1 L. Prjónið þar til bakstk
mælist 12 cm. (Sjá snið). Merkið
miðju bakstk með bandspotta. Prjón-
ið áfram jafn margar umferðir og
hinum megin við miðjumerkinguna
en aukið út 3 x 1 L hálsmálsmegin.
Sameinið nú fram- og bakstykki.
Prjónið allar lykkjurnar eins og áður
(sjá snið). Fellið af 24 L hvoru megin
og takið úr við handveg I x 2 L og
2 x 1 L hvoru megin. Prjónið ermina
eins og hina (42 L) og fellið laust af.
Frágangur: Gangið frá öllum Iausum
endum. Takið upp 56 L í hálsmálinu
á pr nr 3,5 og prj 2 garða. Takið upp
96 L neðan á vestinu og prj tvo
garða. Fellið laust af. Saumið töluna
á og búið til litla lykkju hinum
megin. Þetta vesti getið þið líka
prjónað með garðaprjóni úr af-
göngum t. d. kambgarni eða bómull-
argarni.
F. K.
62
HUGUR OG HÖND