Hugur og hönd - 01.06.1985, Page 6

Hugur og hönd - 01.06.1985, Page 6
ENDURHEIMT KIRKJULIST Eftir áratuga fjarvistir úr Þing- eyrakirkju í Austur-Húnavatns- sýslu eru Kristur og postularnir tólf komnir aftur til síns heima. Þar standa þeir allir hver á sínum stalli merktir nafni eins og þeir komu úr höndum Sveins Ólafssonar, myndskera í Reykjavík, sem á tveimur árum endurskóp þá eftir upprunalegri gerð þeirra. 1. Sveinn skar allar myndirnar úr samanlímdri gæðaeik, fór með þær norður í Sveinsstaðahrepp að verki loknu og kom þeim fyrir á sínum stað á milli pílára framan á kirkjulofti Þing- eyrakirkju. Postularnir standa þar með tákn sín í höndum sex hvorum megin, en í miðju Kristur undir bogaverki. Vígslu hlaut þetta einstæða verk við messu 12. júní 1983. Þingeyrar Forsaga þessa er sérstök. Hulda Stef- ánsdóttir, fyrrum kennari og skólastjóri húsmæðraskólans á Blönduósi um ára- bil, nú búsett í Reykjavík, vel ern í hárri elli, flutti búferlum að Þingeyrum vorið 1923, en maður hennar, Jón S. Pálmason, hafði fest kaup á jörðinni nokkrum árum áður. Þau hjón ráku þar búskap alllengi og áttu þar heimili allt til ársins 1976. „Þingeyrar hafa eitthvað við sig sem maður finnur ekki annars staðar,“ segir Hulda, sem strax þótti mikið til staðar- ins koma. Kirkjan eignaðist þó heiðurs- sess í huga hennar, og ekki að undra því að hún er fallegt hús, prýtt fágætum og fögrum búnaði, m. a. altaristöflu úr ala- bastri, prédikunarstól og skírnarfonti sem skarta himni yfir. Húsmóðirin unga á Þingeyrum heyrði þó fljótlega á tali sveitunganna, einkum þeirra eldri, að kirkjan væri nú bara'svipur hjá sjón. „Það er nú ekki mikið að sjá kirkjuna núna eftir að postularnir eru farnir,“ sagði gamla fólkið. „Þeir voru svo fal- legir og allir í litklæðum.“ „Það tók mig allmörg ár að fá vitn- eskju um hvar útskornu trémyndirnar voru,“ segir Hulda nú. En hún átti eftir að komast að því að þær höfðu verið seldar ásamt fleiri gripum úr kirkjunni á meðan hún var bændakirkja og fylgdi jörðinni. Tilurð þeirra er talin nátengd þeim manni sem gerði Þingeyrar að kirkju- jörð. Sá var Lauritz Gottrup, lögmaður og umboðsmaður konungs, en jörðin var áður klausturjörð, hin fyrsta á land- inu allt frá árinu 1133. Gottrup lét byggja kirkju á Þingeyrum um alda- mótin 1700. Þetta var vegleg timbur- kirkja og sagt var að Friðrik konungur IV hefði gefið timbrið í kirkjuna en lög- maður kostað hana að öðru leyti. Gott- rup lét gera og gaf síðan kirkjunni ýmsa gripi, svo sem áðurnefndan prédikun- arstól og skírnarfont sem eru með nöfnum hans og konu hans og ár- tölunum 1696 og 1697. Silfurkaleikur, kanna og oblátudósir eru í eigu kirkj- unnar og allt merkt Gottrupsfjölskyld- unni. Talið er að Gottrup hafi einnig látið gera og gefið Kristsmyndina og postulana tólf sem komið var fyrir á bita milli kórs og framkirkju í Gottrups- kirkju. Gerð var úttekt á kirkjunni árið 1720 og voru myndirnar þar þá. Ekki er kunnugt um höfund þeirra, en líklegast er að þær séu gerðar erlendis. Ný kirkja Kirkjan komst í einkaeign skömmu eftir aldamótin 1800, en um það leyti keypti Björn Ólsen jörðina. Arið 1860 varð Ásgeir Einarsson alþingismaður eigandi að Þingeyrum og hóf fljótlega byggingu þeirrar kirkju sem nú stendur. Þótti honum gamla kirkjan orðin hrörleg, þrátt fyrir endurbætur í tíð Björns Ólsen. Asgeir afréð að byggja kirkjuna úr steini og þar sem grjót var ekkert heima fyrir var það sótt átta kíló- metra leið úr Nesbjörgum þar sem Þingeyrar áttu land og flutt yfir ísilagt Hópið á sleðum. Þegar komið var að austurbakkanum tóku járnaðir uxar við og drógu sleðana yfir melana heim. Ás- geir varðveitti alla kirkjumuni af mestu alúð og lét setja postulana framan á kirkjuloftið. Kirkjan var í smíðum í 13 ár, vígð í september 1877. Vitað er að allir gömlu gripirnir voru í henni þá. Hermann Jónasson keypti jörðina af erfingjum Ásgeirs og bjó á Þingeyrum í 9 ár fram til ársins 1894. Hermann seldi ýmsa muni sem kirkjan átti. Talið er að postulamyndirnar hafi verið þar á meðal og að Jón konsúll Vídalín hafi keypt þær af honum. Hulda Stefánsdóttir komst loks að því að tréskurðarmyndirnar voru komnar á Þjóðminjasafnið og varð- veittar þar í svonefndu Vídalínssafni. Þangað voru þær gefnar 1908 og höfðu þá verið settar á skáp sem augsýnilega er smíðaður fyrir þær. Litadýrðin forna sést ekki lengur, því að nú eru mynd- irnar allar dökkbæsaðar. Hulda hafði hug á því að Kristur og postularnir fengjust aftur heim í Þing- eyrakirkju og nefndi það við Matthías Þórðarson, þjóðminjavörð, og síðar dr. Kristján Eldjárn er hann gegndi starfi þjóðminjavarðar, en báðir aftóku að verkin væru flutt úr Þjóðminjasafninu. Dr. Kristján lagði hins vegar til að gerð yrði eftirmynd þeirra og flutt í kirkjuna. Útskurðurinn hefst „Það varð úr,“ segir Hulda, „og ég samdi við Svein Ólafsson myndskera 2. um að taka verkið að sér.“ Sveini voru síðan lánaðar tvær og tvær myndir í einu úr Þjóðminjasafni og vann hann eftir þeim nákvæmar eftirlíkingar. Hver um sig eru postularnir nálægt 48 cm á hæð og Sveinn gerði þá á tveimur árum með öðrum verkefnum. „Ég hafði ekki hugmynd um hvað þetta var mikið verk, þegar ég tók það að mér,“ segir Sveinn. Hann þurfti að leysa ýmis vandamál, eins og að laga nafnarugling á fótstöllum postulanna, því að hver og einn þeirra er merktur nafni, sem og að útbúa þeim tákn í hendur, en þau eru sum hver brotin og horfin á gömlu myndunum. Björn Th. Björnsson listfræðingur var ráðgjafi Sveins við þetta og fylgdist með verkinu frá upphafi. Einnig liðsinntu dr. Kristján Eldjárn og Þór Magnússon þjóðminjavörður Sveini dyggilega. HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.