Hugur og hönd - 01.06.1985, Page 14
2.
listaverk. Það að nota og njóta er oft
samofið. Notagildi hlutarins rýrir ekki
hið listræna gildi hans. Samtvinnun
þessara þátta vil ég gjarnan sætta í leirn-
um. Ég vil brúa bil skálar og skúlptúrs.
Formiö er í báðum tilvikum það mikil-
vægasta. Getur kaffibolli verið
skúlptúr, skúlptúr bolli, eða málverk
verið kjóll, kjóll málverk? Því ekki
það? Spurningin er allavega áleitin og
áhugaverð. Ég heillast mjög af and-
stæðunum í umhverfi okkar, bæði í efni
og formi, finnst gaman að tefla saman
hvössum og mildum formum og línum.
- Og að gera skál að skúlptúr."
Hulda Jósefsdóttir
1. Midnæturkaktus, 1983-1984. Verk í eigu
Borgarlistasafnsins í Helsingfors.
2. Guðný Magnúsdóttir.
3. Hluti sólskinsdags, 1984.
4. Skál-form, 1983.
Verkin eru öll unnin í steinleir.
Ljósmyndir: Guðmundur Ingólfsson.
4.
14
HUGUR OG HÖND