Hugur og hönd - 01.06.1985, Qupperneq 17
Kirkjutextílarnir voru allir ofnir í vef-
stofu hennar í Helsinki. Messuklæðin
skipta hundruðum, þar á meðal eru
fjórar biskupahempur, allar hinar
mestu gersemar.
En það var samvinna Doru Jung við
Tampella-iðnfyrirtækið, sem gerði það
að verkum að list hennar náði til hins
breiða fjölda og verk hennar urðu al-
menningseign. Hún hafði alla tíð mik-
inn áhuga á iðnhönnun, og var tvímæla-
laust einn þeirra listamanna á Norður-
löndum, sem opnuðu augu manna fyrir
því að listiðnaður getur verið háþróuð
list, og um leið aflgjafi fyrir iðnaðinn.
Margir textílar sem hún hannaði fyrir
Tampella hlutu viðurkenningu á al-
þjóðlegum sýningum. Hún fékk gull-
verðlaun á heimssýningunni í París
1937 og Grand Prix-verðlaunin í Mílanó
þrisvar sinnum í röð, auk margra nor-
rænna verðlauna. Dúkar hennar,
gluggatjöld og áklæði, framleidd af
Tampella, eru enn mjög eftirsótt vara.
Hún hannaði einnig textíla fyrir stofn-
anir og fyrirtæki, þar á meðal mörg hót-
el í Finnlandi, ráðhúsið og háskólann í
Helsinki og Finnair.
Flestir munu vera þess sinnis, að
menningarlegt samstarf og samskipti
þjóða á milli séu af hinu góða. Hitt er
svo annað mál, að efndir eru ekki alltaf
í samræmi við alþjóðlegar yfirlýsingar í
þessum efnum eða gagnkvæma menn-
ingarsáttmála, sem einstaka þjóðir gera
sín í milli. Hvaða akkur kynni til dæmis
að vera í því að senda á milli landa sýn-
ingu eins og þá, sem hér hefur verið
gerð að umtalsefni? Um hlut Doru Jung
í finnskri listþróun þarf að vísu enginn
að efast, sem sýninguna ber augum, og
er það efni í sjálfu sér fróðlegt; lista-
konan ber þar ekki aðeins vitni sjálfri
sér. En mætti ekki líta svo á, að lífsverk
eins og það sem Dora Jung lét eftir sig
og hér blasir við, feli í sér hvatningu og
ögrun, sem ekki séu endilega bundnar
þjóðernislegum landamerkjum. Per-
sónulega fannst mér þessi sýning hval-
reki í ljósi þess hvar umræða hér á landi
um gildi hönnunar er á vegi stödd.
Hér, þar sem menn eru enn að spyrja
þess, hvort Islendingar kunni að nota
sköpunargáfuna, hugvitið og listina í
þágu einhvers annars en listarinnar
sjálfrar, til dæmis í hinn mjög svo
óskáldlega iðnað.
Þeir, sem standa fyrir iðnaði og ýmiss
konar framleiðslu í Finnlandi, svöruðu
slíkum spurningum fyrir löngu. Þeir
leituðu til listamanna, - ekki eingöngu
hönnuða, heldur og skálda og hvers
konar myndlistarmanna - og sóttu
þangað hugmyndir og heimspeki. Starf
Doru Jung byggðist á því, að allur akur-
inn var plægður og ekki bara lítill skiki
eins og hér vill oft verða.
Þóra Kristjánsdóttir
Handunnir skartgripir
með íslenskum steinum
JehJ (juijcwAMn
gullsmiður
Pósthússtræti 13 S 12392
Suðurver S 36778
HUGUR OG HÖND
17