Hugur og hönd - 01.06.1985, Blaðsíða 18
VORKOMA RÚNU
Mér finnst refilsaumur merki-
legur og myndrænn saumur.
Hann gefur möguleika til
myndsköpunar líkt og myndvefnaður,
jafnvel meira frelsi, nema ef til vill fyrir
þá sem orðnir eru mjög leiknir í vefnað-
arlistinni, segir myndlistarkonan Sigrún
Guðjónsdóttir, Rúna. Sjálf hefur hún
reyndar ekki saumað refilsaum enn sem
komið er, en Heimilisiðnaðarfélag ís-
lands hafði ákveðið að sýna refilsaum á
Heimilisiðnaðarþinginu í Tromsö í
Noregi árið 1980, og leitaði í því tilefni
til Rúnu til þess að fá hjá henni mynd
sem nota mætti sem fyrirmynd að refil-
saumuðu teppi.
18
Heimilisiðnaðarþingin eru haldin á
þriggja ára fresti, og velja þá heimilis-
iðnaðarfélög landanna ákveðin verk-
efni sem þau taka fyrir og kynna á þing-
unum. Heimilisiðnaðarfélag íslands
hafði ákveðið að kynna refilsaum og
augnsaum á þinginu í Tromsö en refil-
saumur var saumaður á íslandi um
aldaraðir. Fyrst er hans getið í heimild
árið 1550, en hann mun hafa verið
saumaður hér fyrr þótt lítið hafi fundist
af refilsaumuðum hlutum. Það sem til
er á söfnum er aðallega frá miðöldum.
Fyrir sýninguna í Noregi ákvað
Heimilisiðnaðarfélagið að efna til
námskeiðs í refilsaumi auk þess sem
farið var fram á við Rúnu að hún teikn-
aði mynd sem sauma mætti með refil-
saumi. Nokkur útsaumsverk, afrakstur
námskeiðsins, voru sýnd í Tromsö auk
myndarinnar eða teppisins Vorkomu
eftir Rúnu, sem Anna Höskuldsdóttir
var fengin til að sauma.
Skoðuðu gömul klæði á Þjóðminja-
safninu
Við hittum Rúnu í Heimilisiðnaðar-
skólanum og virtum fyrir okkur teppið,
HUGUR OG HÖND