Hugur og hönd - 01.06.1985, Page 30
HANDOFNAR MUNNÞURRKUR
egar pappírsþurrkur þóttu
orðnar óheyrilega dýrar, urðu
þessar ofnu munnþurrkur til.
Litir voru valdir við bollastell eigand-
ans. Auðvelt ætti að vera fyrir hvaða
vefara sem er að feta í fótsporin, velja
liti eftir eigin bollum og breyta köflum.
Sumum kann að vaxa í augum að þurfa
að þvo og strauja, öðrum finnst það
ekki umtalsvert, en njóta þess í stað að
búa til og nota góða gripi.
Vend: Einskefta.
Uppistaða og ívaf: Tvistur nr. 8/2 frá
Marks, blár nr. 364, grænn nr. 386 og
óbleiktur.
Skeið: 45/10, 1 þráður í hafaldi og 2
þræðir í tönn.
Breidd ískeið: 28,5 cm.
Þráðafjöldi: 256.
Ofin er jafnþráða voð eða 9 fyrirdrög
á cm og litum raðað eins og í uppistöðu.
Gera þarf ráð fyrir um 1,5 cm í hvern
fald, þannig að hver munnþurrka er
ofin um 31,5 cm löng. Ofið er með bláu
í faldana.
í f2 munnþurrkur þarf að rekja um 5
m langa slöngu. í hana fara um 110 g af
óbleiktum tvisti, 45 g af bláum og 35 g af
grænum. ívafið vegur heldur minna.
Tvisturinn er seldur í 250 g rúllum, í
hverri eru um 1600 m.
Sigríður Halldórsdóttir
Ljósmynd: Guðmundur Ingólfsson.
Rakningslisti
Hvítur 1 2 1 1 140 1 1 2 1 = 150 bræðir
Blár 28 1 1 28 = 58 þræðir
Grænn 1 22 1 1 22 1 = 48 þræðir
samt. 256 þræðir
30
HUGUR OG HÖND