Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1993, Síða 8

Hugur og hönd - 01.06.1993, Síða 8
ÚR FJÖRU í FANG SÆMUNDAR Það er löngu alkunn staðreynd að reka- viður úr íslenskum fjörum er gott efni. Hann er gagnvarinn frá náttúrunnar hendi og hefur til skamms tíma dugað vel í girðing- arstaura og skjólgrindur. Á ýmsa fleiri vegu hefur þessi langt að komni efniviður verið notaður, m. a. til þess að skapa úr myndlist. Rekaviður sést stundum hengdur upp á vegg innanhúss, málaður og skreyttur eftir listamenn. Miklum mun stærri en þau myndverk eru myndir þær sem Sæmundur Valdimarsson, höggmyndasmiður, semur úr rekaviði. Hann vílar ekki fyrir sér að ráðast á stærstu drumbana í heilu lagi, höggva þá til og sníða þar til úr þeim fæðist mann- skepna með eigin sniði hans. Verk hans flokkast vafalítið undir naívisma og hann lætur ekki umsagnir eða skoðanir annarra hafa nein áhrif á vinnslu eða frágang verk- anna. Og Sæmundur hefur vakið drjúga at- hygli fyrir frumlegar og sérstæðar styttur sínar, sem stundum hafa verið nefndar „fjörufólkið". Sæmundur Valdimarsson fæddist að Krossi á Barðaströnd árið 1918. Framan af vann hann að sveitastörfum og ýmsum störfum öðrum til sjós og lands. Hann fluttist til Reykjavíkur árið 1948 og vann lengst af vaktavinnu í Áburðarverksmiðjunni í Gufu- nesi. Kona hans er Guðrún Magnúsdóttir frá Langabotni í Arnarfirði og búa þau við Tunguveg í Reykjavík þar sem Sæmundur er með vinnustofu sína í bílgeymslunni. Þar starfar hann í eigin heimi umkringdur eigin sköpunarverki: fólkinu sínu, stóru og smáu, með stóru góðlátlegu augun og blíðlega svipinn. Frá árinu 1988 hefur hann helgað sig myndsköpun eingöngu. 8 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.