Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1993, Blaðsíða 35

Hugur og hönd - 01.06.1993, Blaðsíða 35
aðskorið líkamanum og ná vestin rúmlega niður fyrir mittisstað. Vesti með Þjms.nr. 1160 er saumað úr blárri mjög þæfðri ullareinskeftu en fóðrað með ljósum hör- dúk. Bryddingar eru úr svo kagþæfðu, rauðu, ein- skeftu-ullarefni að ekki hefur þurft að brjóta inn af þeim til að varna því að þær röknuðu upp, þó svo að liggi beint í þeim. Hnappagöt eru einnig rauð og hnapparnir útlendir, skrautlegir látúnshnappar. Þetta vesti er mun „fínna“ en hin tvö. Blái liturinn, rauðar bryddingar og rauð hnappagötin, að mestu ósamsett fóður, afar lítið slit, skrautlegir hnappar og vandað handbragð bendir allt til þess að þetta hafi verið spariflík. Vesti með Þjms.nr. 1161 er prjónað úr ullarbandi, svart að lit, afar mikið þæft, með svörtum ein- skeftubryddingum, einnig úr ull og eins og segir í Skýrslu safnsins, líklega með íslenskum, hvítum hrossbeinshnöppum. Ber það því merki hvers- dagsklæðnaðar enda greinilega slitið. Vestið virðist prjónað í hring eins og flestar prjónaflíkur þessa tíma, kagþæft til að gera fiíkina hlýrri og slitsterkari og síðan tilsniðið og gengið frá handvegi, hálsmáli og börmum með bryddingum. Fóðrið er Ijósleitur hördúkur margsamansettur úr smærri bútum. Vesti með Þjms.nr. 1162 er með prjónuð framstykki úr svörtu ullarbandi og baki úr svarblárri, grófri ullareinskeftu. Bryddingar í hálsmáli og á boð- ungsbörmum eru úr svartri ullareinskeftu og hnappar hvítir, íslenskir beinhnappar, sbr. vesti með Þjms.nr. 1161. 7. Peysa með Þjms.nr. 1159. Fóður í bakið er samsett úr athyglisverðum leif- um af gamalli, viðgerðri, sléttprjónaðri flík, nær- skyrtu eða nærbrók. Boðungarnir eru aftur á móti fóðraðir með hvítleitum striga. Vestið er afar slitið og því má greinilega sjá prjónatæknina, sem ellegar er oft falin á kagþæfðu, lítt slitnu prjónlesi. Augljóst er að þetta vesti hefur verið notað á sjónleikjum og lokið þar með hlutverki sínu. Á baki þess eru tvær stórar bætur, athyglisverðar hver fyrir sig, en þjóna ekki bótahlutverki, þ.e. flíkin er ó- skemmd undir þeim. Af slitflötum vestisins má sjá að því hefur verið hneppt á báða boðunga. Ef til vill hefur verið hneppt á annan boðung spari og hinn hversdags, en slíkt þekktist m.a. í Danmörku. Heimildum ber saman um að í byrjun 19- aldar hafi vesti, oftast prjónuð, ein- eða tvíhneppt, verið algeng skjólflík eins og bolur og brjóstadúkur áður og ein aðalflík karlmanna, sem menn klæddust ýmist utan yfir nærskyrtu eða nærpeysu, eða undir nærpeysu. Hversdags voru karlar oft snöggklæddir inni og við útiverk á sumrum og klæddust þá skyrtu, vesti og nærbrók. Sjálfsagt er ekkert fyrrgreindra vesta heldri manns flík, því heimildir segja, að þeir hafi flestir átt klæðisvesti eða vesti úr erlendu efni, auk þess sem fóður allra vestanna er líklega ekki við hæfi heldri manna. Líkur eru því á að þetta séu almúgaföt. Karlmannspeysur Peysa með safnnr. 1157, sbr. Skýrslu Forngripasafnsins: 8. Úlpa, peysa með Þjms. nr. 5796. HUGUROG HÖND 35

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.