Hugur og hönd - 01.06.1993, Blaðsíða 22
Dagleg störf fyrri
tíma
/j
Starfsdagar á Árbæjarsafni
Starfsemi Árbæjarsafns tók miklum breytingum
sumarið 1988 þegar ráðist var í að auka verulega
kynningu á gömlum búskaparháttum og heimilis-
iðnaði, þ.e.a.s. daglegum störfum fyrri tíma, með
svokölluðum „starfsdögum.“ Markmiðið var að gefa
almenningi kost á að heimsækja safnið, fylgjast
með og jafnvel taka þátt í þessum daglegu störfum,
sem mörg hver eru óðum að falla í gleymsku. Störf
sem yngri kynslóðinni finnst í dag hálfhulinn
heimur.
Þetta fyrsta sumar var byrjað á heyskapardegi.
Slegið var með orfi og ljá, rifjað og rakað og að
lokum var heyið bundið í bagga og reitt heim í
hlöðu. Veðrið var yndislegt og þátttaka mjög góð.
Miklar umræður urðu meðal gesta og starfsfólks um
sláttulag og aðferðir við baggabindingar. Þarna
kom fullorðið fólk sem ekki hafði snert á orfi og ljá
síðan á yngri árum sínum og ungt fólk sem langaði
til að læra að nota þessi gömlu amboð. Um haustið
var síðan haldin húsdýrasýning á safninu. Þetta var
fyrir daga Húsdýragarðsins og ekki svo aðgengilegt
fyrir borgarbörn að sjá húsdýrin í sínu rétta um-
hverfi og vakti sýningin því mikla athygli.
Næsta sumar var þessi sýning endurtekin og fékk
þá nafnið „Búskapardagur“. Þar mátti sjá mjaltir í
fjósinu og gestum var boðið að smakka á spen-
volgri nýmjólk. Þá var m.a. sýnd tóvinna í baðstof-
unni.
í lok júlí sama árs var síðan heyskapardagur með
sama skipulagi og árið áður og í ágúst var haldin
sýning sem kölluð var „Starfshættir fyrri tíma“.
Þennan dag, sem var sá viðamesti til þessa, var sýnt
ýmiss konar handverk, eins og tóvinna, hvernig
bregða á gjarðir úr hrosshári, útskurður, skeifu-
smíði í gömlu eldsmiðjunni og netahnýtingar.
Einnig voru sýnd dagleg störf eins og það að
22
HUGUR OG HÖND