Hugur og hönd - 01.06.1993, Blaðsíða 26
Margt býr í steininum
Undrandi geng ég
inn í veröld töfranna
sem gestur
samt hefur hún vakað
bak við augu mín
í öllum Ijóma sínum
frá hinum fyrsta degi
Kristjánfrá Djúpalæk
„Margt býr í steininum“, segir
máltækið, og víst er það satt.
Frá örófi alda hafa menn trúað
því að einhvers konar dulin orka
byggi í steinum. Ýmsir hugðu að
orkuríkustu steinarnir byggju yfir
miklum verndar- og töframætti.
Eignuðust menn slíka steina
skildu þeir þá aldrei við sig, um
það má finna dæmi hér á landi,
allt frá landnámstíð.
íslenskar þjóðsögur segja frá
óskasteinum og öðrum orku-
steinum sem við sérstök skilyrði
orsökuðu yfirnáttúruleg fyrir-
bæri. Víst er að margir steinar eru
ekki allir þar sem þeir eru séðir,
hvað sem um orku þeirra og aðra
aðskiljanlega náttúru má segja.
Island er ríkt að fögrum stein-
um sem lengi hafa margan heill-
að. Sumir hafa orðið ástríðufullir
steinasafnarar sem fátt hafa látið
aftra sér við leit að fögrum stein-
um, klettar og fjöll hafa verið
klifin og þungar byrðar af stein-
um bornar á baki langar leiðir.
Flestir hafa látið sér nægja að
hafa steinana heima hjá sér sem
augnayndi og hafa þá komið
þeim smekklega fyrir inni og úti.
Sá maður sem hér er til umfjöll-
unar hefur gert meira. Með því
að nota tækni nútímans hefur
26
HUGUR OG HÖND