Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1993, Síða 12

Hugur og hönd - 01.06.1993, Síða 12
8. Einfyrsta myndin frá „leit“ Siemundar að viðfangsefhum. Frá 1974. Stærð 53 x 35 cm. Þegar veran er fullmótuð festir hann „skikkjuna" utan á hana og útkoman er skemmtilega dulúð- leg vera. Þjóðhátíðarárið 1974 stóð Guðbergur Bergsson rithöfundur fyrir sýningu í SÚM. Hann auglýsti eftir alþýðulist og Sæmundur svaraði þeirri auglýs- ingu. Þar sýndi hann fyrstu verk sín við Vatnsstíginn í Reykjavík. Þetta var upphafið að starfi Sæ- mundar á listasviðinu. Nú standa verk hans sjaldan lengi við hjá honum og hann segir frá því að hann verði að fela myndir sínar þegar hann sé að safna á sýn- ingu. Fyrstu einkasýningu sína hélt hann árið 1983, en nú eru þær orðnar ellefu alls. Hann sýndi síðast á Kjarvalsstöðum í vor, og hefur sýnt víðar í Reykjavík. Einnig hefur hann haldið sýningar í Osló og í Haag í Hollandi. Nýverið var falast eftir verkum hans á aðra sýningu í Hollandi og á sama tíma var breskt sjónvarp að mynda hann við vinnu sína. Þetta allt er hon- um drjúg hvatning, enda slær hann ekki af við vinnu sína. Og hann hugar vel að heilsunni með góðri hreyfingu, stundar bæði sund og göngur. Sæmundur er ötull í starfi, vinnur mjög skipulega daglangt. Með sama framhaldi verður þess varla langt að bíða að við fáum að sjá verk hans aftur á sýningu. Þá verður fróðlegt að sjá fram- vinduna, því að Sæmundur fær nýjar hugmyndir um tilbrigði fyrirvaralaust. Og að vonum leyfir hann glettninni að vera með í för eins og fyrr. Rúna Gísladóttir Ljósmyndir: Páll Stefánsson nr. 1. Rúna Gísladóttir nr. 4, 6, 7 og 8. Sæmundur Valdimarsson nr. 2, 3 og5. 12 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.