Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1993, Page 23

Hugur og hönd - 01.06.1993, Page 23
Anna María Geirsdóttir leiSsögumaður við vefstólinn í Efstabœ sumarið 1990. Herborg Sigtryggsdóttir vefur fótofin bönd sumarið 1990. strokka smjör og baka lummur á kolaeldavél. Á baðstofuloftinu kvað Sveinbjörn Beinteinsson rím- ur og í Dillonshúsi skemmti Karl Jónatansson gest- unurn með harmóníkuleik. Sumarið 1990 var dagskráin skipulögð með góð- um fyrii-vara og má segja að þetta sýningarform hafi þá orðið að föstum lið í starfsemi safnsins, Boðið var upp á „Handverksdaga" í júlí og „Starfshætti fyrri tíma“ í ágúst. Þessir tveir dagar voru með sama móti og sumarið áður að öðru leyti en því, að heyskapardagurinn var sameinaður þeim seinni. í lok ágúst var síðan haldin viðamikil sýning sem bar heitið „Búskapar- og heimilisiðnaðardagur". Þennan dag var sýndur í fyrsta skipti á safninu ýmiss konar vefnaður ásamt því hvernig á að lita ull, spinna úr hrosshári og sauma upphlut. Sýndur var svokallaður salúnsvefnaður í „dönskum vefstól", þ.e. láréttum vefstól eins og við þekkjum í dag. Einnig mátti sjá hvernig bönd voru ofin og brugðin með ýmsum aðferðum, spjaldofin, fótofin eða kríluð. Við vorum svo heppin að fá til liðs við okkur þær stöllur Sigríði Halldórsdóttur og Áslaugu Sverrisdóttur, vefnaðar- og litunarsérfræðinga, sem nú eru komnar í vinnu hjá Árbæjarsafni við rann- sóknir á þessum gömlu vinnubrögðum. Áslaug kom sér fyrir með ullarlitunina í bæjardyrum Ár- bæjarins og varð mörgum gestinum starsýnt á lita- dýrðina, sem við blasti í heldur drungalegum torf- bænum og fannst ótrúlegt að alla þessa liti væri hægt að vinna úr íslenskum jurtum. Þá var mjólkurvinnsla með hefðbundnum hætti í Árbæjareldhúsinu. Mjólkin var skilin í skilvindu og rjóminn síðan strokkaður í smjör og boðinn gestum á nýju flatbrauði. Þennan dag gafst einnig tækifæri til að fylgjast með því, hvernig kaffi var brennt og HUGUR OG HÖND 23

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.