Hugur og hönd - 01.06.1993, Page 31
1.
Fólkfyrir utan dönsku pakkhúsin í Hafharfirði 1772. Myndin er gerð af
John Cleveley, jr. í leiðangri Banks (British Library, Add. 15.511, f.13).
FATNAÐUR ÍSLENSKRA ALÞÝÐU-
MANNAFÍRÁ 1740-1850
Agrip úr rannsóknarverkefni
Upphaf að þessari rannsókn var verkefni á sviði
þjóðháttafræða Heimspekideildar HÍ árið 1981:
„Karlmannafatnaður í Þjóðminjasafni íslands frá
byrjun 19- aldar“.
Elsa E. Guðjónsson hafði þá um árabil unnið að
rannsóknum á íslenskum kvenfatnaði fyrri alda og
gefið út rit um niðurstöður þeirrar vinnu, en ekkert
hafði verið unnið að rannsóknum á íslenskum
karlmannafatnaði.
Rannsóknarvinna þessi er því frumrannsókn á
þeim heillegu íslensku karlmannsflíkum sem taldar
eru vera frá um það bil 1740-1850 og varðveittar
eru í Þjóðminjasafni íslands og Nationalmuseet í
Kaupmannahöfn. Verkið sóttist oft afar seint af
mörgum ástæðum. Það var látið víkja fyrir verk-
efnum „sem þoldu enga bið“ og á síðustu árum
hefur það sofið Þyrnirósarsvefni því ekki reyndist
unnt að rannsaka íslenskar karlmannaflíkur sem
varðveittar eru í Nationalmuseet í Kaupmannahöfn
sökum mikilla breytinga á þeim bæ.
í þessari stuttu grein ætla ég einungis að reyna að
gefa grófa mynd af þeim karlmannsflíkum sem
varðveittar eru í Þjóðminjasafni íslands og sýna
hvernig ég í upphafi verksins notaði myndrænar og
skriflegar heimildir til að varpa ljósi á uppruna
þeirra.
Tekið skal rækilega fram að mikið verk er enn
óunnið til að fylla upp í núverandi eyður í þessari
rannsóknarvinnu enda er athygli og/eða réttlát
gagnrýni vel þegin.
Eru aldagamlar flíkur eitthvað merkilegar ?
Þegar saga fatnaðar er könnuð verður að hafa í
HUGUR OG HOND
31