Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1993, Síða 33

Hugur og hönd - 01.06.1993, Síða 33
4. Saumað vesti meðÞjms.nr. 1160. Skal nú þessum flíkum lýst nánar. Brjóstadúkur, Þjms.nr. 848 8/7 1871 hefur Sigurður Vigfússon, starfsmaður Forngripasafns íslands, skrifað um brjóstadúkinn í Skýrslu safnsins: Keyptur gripur. Kot, eða karlmannsbrjóstadúk- ur, úr svörtu vaðmáli grófu, heilt að framan og aptan, en hnept undir annari hendinni, og á annari öxl (gamall siður); pað er austan úr Land- eyjum. Brjóstadúkurinn er allur mun grófari en hinar flíkurnar, bæði hvað snertir efni og vinnubrögð. Sauðsvarta vaðmálið er mjög gróft, úr tvinnuðu ullarbandi. Flíkin er öll fóðruð með ljósu ullarvað- máli og lagt niður við það með stórgerðum sþorum með sauðsvörtum togþræði. Brydding úr svartri einskeftu er um hálsmálið. Hneppslur í hlið og á öxl eru Héttaðar úr grófum þráðum. Málmhnapparnir, fjórir af sex uppruna- legum, eru með smá-útflúri. Brjóstadúkurinn er allur mjög slitinn og hefur einnig orðið mölflugunni að bráð. Formið, sniðið, er afar einfalt og þekkt víða um heim. í Brandsstaðaannál segir að um aldamótin 1800 hafi karlar verið í bláum, útprjónuðum eða mislit- um bolum, sem voru hnepptir undir hendinni og á öxlinni, en bláir tvíhnepptir bolir hafi komið seinna. Þorkell Bjarnason (f. 1839 ) segir m.a. að fyrir sitt minni hafi tíðkast bolir í stað vesta og Ólafur Sig- urðsson (f.1822 ) segir að innan undir mussunni hafi karlar oft verið í bláum bol með kvartils tví- hneppingu að ofan. Álykta má því að kot, brjóstadúkur og bolur hafi verið einhverskonar vesti í seinni tíma skilningi, þ.e. flík sem einkum var ætluð sem skjólflík yfir brjóstið. Af grófri voðinni, litnum og hnöppunum á brjóstadúknum í Þjóðminjasafni má ætla að hann hafi verið í eigu almúgamanns, verið hversdagsfat, aðallega skjólflík, frá seinni hluta 18. aldar. Ef til vill er hann eldri, þ.e. hann nýtur þess heiðurs að vera keyptur til Forngripasafnsins 1871 og ætla mætti vegna þess að hann hafi þá verið forn gripur. Karlmannstreyja, Þjms.nr. 1156 Um þessa flík segir í Skýrslu Forngripasafnsins 30.12.1876: Karlmannstreyja úr svörtu vaðmáli, grófgerðu, tvíhnept upp í háls með útlendum hornhnöppum, sem á er upphleypt verk; eru 9 hnappar á hvorum boðangi. Ermar eru mjóar fremst og hnept saman aðframan á handleggnum fremst með 4 samskon- ar hnöppum. Einn saumur eptir baki og sinn ttiður frá hvorri ermi. Vasar engir. Fóður undir boðöng- um aðeins og rœma undir baki neðst, er það úr bláum, þykkum ullarvefnaði. Flíkin er kragalaus, langerma, tvíhneppt utan- yfirflík úr grófu, togmiklu vaðmáli. Hún er inn- 5. Prjónað vesti með Þjms.nr. 1161. HUGUR OG HÖND 33

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.