Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1993, Qupperneq 38

Hugur og hönd - 01.06.1993, Qupperneq 38
einsömlum á sumrum og enda vetrum líka“. Af þessum heimildum má jafnvel álykta að bux- urnar í Þjóðminjasafni séu ekki nærbuxur, heldur ytri buxur, sbr. fyrrgreinda lýsingu Ólafs Sigurðs- sonar á „háu langbuxunum“ en frekari rannsókn og samanburður á e.t.v. eftir að leiða annað í ljós. Samantekt Fróðlegt verður að sjá hvort hægt sé að tala um séríslensk einkenni í karlmannafatnaði kringum f800. í þeim er að finna sömu form og tíðkuðust þá erlendis, en aðalatriðið er, að þær eru unnar úr íslensku hráefni og með íslenskri verkkunnáttu síns tíma og sýnist mér nú að þar sé margt öðruvísi en hjá nágrönnum vorum. Hráefnið, íslenska ullin, hefur marga væna kosti, sem fólk lærði að færa sér í nyt eftir notagildi togsins annars vegar og þelsins hins vegar. Langan tíma tók að vinna ullina, allt frá rúningu fjárins til fullunninnar flíkur. Hreinsa þurfti ullina, þvo, tæja, taka ofan af, kemba, spinna, vefa, prjóna, þæfa, lita og sauma. Skiljanlegt er því að borin væri virðing fyrir hverri pjötlu og hverjum spotta. Rík áhersla var lögð á að sem flestar konur kynnu „að koma ull í fat og mjólk í mat“ og yngismeyjar metnar til kvonfangs eftir því og því ekki lítið í húfi að stúlkur lærðu snemma til verka. Verkkunnáttan, einkum prjónatæknin, sem fram kemur í flíkunum, er vægast sagt undraverð og greinilegt að fólk hefur á löngum tíma samræmt kosti og eiginleika ullarinnar eftir formi flíka, hlut- verki þeirra og þjóðfélagsaðstæðum hvers tíma. Að mínu mati má hér greinilega sjá, hvernig verkleg þekking sem færist átakalítið milli kynslóða í áratugi eða um aldaraðir, sbr. „hvað ungur nemur, gamall temur“, þróast hægt og örugglega fram á við. Dæmi um þetta er auðvitað að finna erlendis allt frá miðöldum þar sem handverksmenn voru virtir þjóðfélagsþegnar með afmarkaða sérþekk- ingu sem gekk svo að segja í arf öldum saman. Vitað er að stofnuð voru samtök prjónahandverks- fólks í París á 13- öld („bonnetier", „bonnet“= húfa) og svokölluð prjónaiðngildi á Englandi, Niður- löndum og Spáni á 14. og 15. öld. Ekki finnst mér ólíklegt, að á seinni hluta 18. og í byrjun 19. aldar hafi mikill hluti heimaunnins fatnaðar hérlendis frekar verið prjónaður en saum- aður úr ofnum efnum, þar sem fólk virðist þá hafa náð tökum á flóknum prjónaaðferðum. í lok 18. aldar voru gömlu kljásteinavefstaðirnir einnig að hverfa og dönsku láréttu vefstólarnir að leysa þá af hólmi. Meðan þessi tæknilega breyting gekk yfir hefur e.t.v. verið minna um vefnað meðal almennings þar sem sérþekkingar var þörf til að vefa á danska vefstólinn og það að eignast hann hafði kostnaðarauka í för með sér. Sjálfsagt hefur það einnig skipt máli á surnum bæjum að láréttur vefstóll tekur mun meira pláss heldur en gamli vefstaðurinn, sem stóð upp við vegg. Talið er að 11. Buxur, Þjms.nr. 1163. tekið hafi um 50-70 ár að útbreiða danska vefstóla um landið og voru það yfirleitt karlmenn sem lærðu á þá í byrjun, líklega einkum vegna þess að fara þurfti að heiman til að afla sér þeirrar þekk- ingar. í hörmungum og óáran sem gengu yfir landið á 18. öld var eldiviður oft knappur, svo fólk neyddist til að búa þröngt og sitja þétt saman í baðstofunum við vinnu sína. Hentaði prjónatæknin því sjálfsagt vel slíku samfélagi og maður freistast til að álykta að bandprjónar hafi „alltaf verið til staðar“ enda nærtækir, handhægir, fyrirferðarlitlir og ódýrir, meðan vefstaður eða vefstóll var stórt tæki sem 12. Efri hluti buxna, Þjms.nr. 1163. HUGUR OG HÖND 38

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.