Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1993, Page 46

Hugur og hönd - 01.06.1993, Page 46
Myndvefhaður. Æft fyrir skuggaleikhús. Sumarnámskeið fyrir börn Sumarið 1991 hélt Heimilisiðn- aðarskólinn sitt fyrsta sumar- námskeið fyrir börn á aldrinum 8-11 ára. Undirbúningsvinnan var skemmtileg og verður kennurum skólans sem tóku þátt seint nóg- samlega þakkað. Hugmyndin leiddi til umræðu um tilgang sumarnámskeiða, uppbyggingu, markmið, þarfir og getu mis- munandi aldurshópa, tímalengd námskeiða og áfram mætti telja. Peningar urðu að vera með í umræðunni og sótti skólinn um styrk til borgarinnar til að standa meðal annars undir efniskostnaði en hann er mikill miðað við flest námskeið á vegum annarra fé- laga. Þegar komið var að skrán- ingu vissum við ekki við hverju mátti búast. Var áhugi fyrir þessu, náðum við til barnanna eða foreldra? Við vorum ekki lengi að velkjast í vafa, síminn þagnaði ekki og eftir að nám- skeiðið hófst var svo mikið líf í húsinu að enginn þurfti að setj- ast niður og ræða hvort vel hefði tekist. Þegar þriðja sumarið er liðið er ánægjan söm en um- ræðan enn í gangi. Við efumst ekkert um það sem við erum að gera, en alltaf má breyta og bæta. Sumarnámskeiðið (ein- ungis eitt er haldið hvert sumar vegna sumarleyfa kennara) fer fram fyrstu tvær vikurnar í júní. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 10-16, en boðið er upp á gæslu í klukkutíma fyrir og eftir dag- skrá. Börnin koma með nesti og í hádeginu er borðað ýmist inni eða úti ef veður leyfir. Á námskeiðinu eru 25-30 börn og eru þau í 5 hópum. Hóparnir haldast óbreyttir þessar tvær vikur, þannig að börnin kynnast vel innbyrðis. Vinnan inni er bæði gefandi og skapandi, því 5 eða 6 börn og 1 kennari geta fleira en orð fá lýst. Útkoman talar sínu máli: þæfðir boltar, hattar og púðar, stjörnukíkir, grímur, körfur, kort, leikbrúður, fuglahús og fleira og fleira. Von- andi getur skólinn haldið áfram á sömu braut. Birna Kristjánsdóttir skólastjóri 46 HUGUROG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.