Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1997, Blaðsíða 22

Hugur og hönd - 01.06.1997, Blaðsíða 22
Ungbamahúfa Stærð: 3-6 mánaða Efni: Kambgarn; bleikt nr. 0995,1 dokka rautt nr. 0917,1 dokka grænt nr. 0969,1 dokka blátt nr. 0948,1 dokka Prjónar: Hringprjónn nr. 3 1/2 40 cm langur, sokkaprjónar nr. 3 1/2 og 4 tréperlur. Prjónfesta: 15 L x 15 L = 5x5 cm. Fitjið upp með bleiku 102 L á hringprjón nr. 3 1/2. Prjónið 4 umf. sléttar og síðan 1 gataumferð, þ.e. *2Lslétt samanog slá upp áprjón með bandinu *. Ljúkið umferð á þennan hátt. Prjónið síðan 5 um- ferðir sléttar. Prjónið munstur samkvæmt teikningu og síðan bleikt þar til húfan mælist 13 cm frá gataumferð. ÚRTAKA: * Prjónið 1 L slétt og 2 L slétt saman * og ljúkið umferð á þennan hátt. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr. 31/2. Endurtakið úrtöku (báðar umferðir) og prjón- ið síðan 2 L slétt saman út umferð og dragið þráðinn í gegnum eftir- standandi lykkjur sem eru 14. EYRU: Fitjið upp á sokkaprjóna nr. 31/2 4 L með bleiku. Prjónið slétt prjón. Fyrsta umferð er prjón- uð brugðin og síðan er aukið út þannig: Prjónið slétt en í miðlykkj- unum tveimur er aukið út, prjónið slétt framan í lykkju, aftan í lykkju, framan í lykkju, þá á 1 L að vera 3 L (2 miðlykkjur = 6 lykkjur). Aukið út á þennan hátt í annarri hverri umferð þar til 32 lykkjur eru á prjóni. Þá er fellt af frá rétt- unni. FRÁGANGUR: Brjótið inn af við gataumferð og saumið kantinn niður. Gangið frá endum. Saumið eyrun við með u.þ.b. 8 cm milli- bili. Snúið 2 snúrur u.þ.b. 25 cm langar. Snúið 4 snúrur u.þ.b. 8-10 cm langar. Þræðið tréperlur upp á litlu snúrurnar og festið síðan við húfuna. 0 0 0 0 O 0 0 0 0 0 0 X X Í2 0 0 O 0 0 0 0 <2 V 0 0 X X X X X X X X X X X X 0 0 X X X X X X X X X X X X • • * 9 0 0 * 0 * * 0 O X X • t 0 0 • 0 0 O * » 0 0 X X X X X X X X X X X X 0 0 X X X X X X X X X X X X x = rautt o = grænt • = blátt t Byrja hcr Hönnun: Þuríður J. Agústsdóttir 22 Hugur og hönd 1997

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.