Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1997, Blaðsíða 28

Hugur og hönd - 01.06.1997, Blaðsíða 28
Batikverk / Katrínar H. Agústsdóttur Stefán Halldórsson. Katrín H. Ágústsdóttir. Líklega mun óhætt að fullyrða að Katrín H. Agústsdóttir sé sú list- iðnaðarkona hér á landi sem einna mest hefur látið að sér kveða við gerð mynda og muna með batik- tækni. Verk hennar eru vel þekkt og prýða mörg heimili víða um land. Fregnritari Hugar og handar brá sér í heimsókn til Katrínar og Stef- áns Halldórssonar manns hennar til að fræðast um listiðnaðar- og myndlistarferil hennar. Katrín og Stefán búa í fallegu einbýlishúsi í Arbænum í Reykjavík og þar ræddum við saman. Katrín er barnfæddur Reykvík- ingur. Snemma vaknaði áhugi hennar á teikningu og varð hún góð í þeirri námsgrein þegar á barnaskólaárunum. Hún fór í Gagnfræðaskóla verknáms, en þar var verknámi og bóknámi gert nokkuð jafnt undir höfði. Sú námstilhögun átti vel við Katrínu og áhugi hennar á mynd- og hand- menntum óx. Eftir lokapróf frá Gagnfræða- skóla verknáms ákvað Katrín, í samráði við foreldra sína, að fara í Handavinnukennaradeild Kenn- araskólans. Hún fann að áhuginn var mestur á sviði hand- og mynd- lista. En hún vildi líka vera með á- kveðin starfsréttindi til að geta sjálf séð fyrir sér. Á þessum tíma var það skipulag á Handavinnu- kennaradeildinni að nýir nemend- ur voru aðeins teknir í deildina á tveggja ára fresti. Og þannig stóð á að Katrín varð að bíða í eitt ár til að geta hafið þar nám. Þá vildi svo vel til að hún heyrði í útvarpinu auglýsingu um dagnám í Mynd- lista- og Handíðaskólanum. Hún fór og kynnti sér hvað þarna væri í boði. Kom þá í ljós að meðal ann- ars var þar nám í deild sem nefnd- ist „Hagnýt myndlist". Þegar Handavinnu -og smíðakennara- deildirnar, sem stofnaðar höfðu verið og reknar af myndarskap í nokkur ár við Handíðaskólann, voru fluttar að Kennaraskólanum, vildi skólastjórinn Lúðvíg Guð- mundsson áfram bjóða nemend- um myndmenntarnám tengt skap- andi handverki og stofnaði því þessa nýju deild innan skólans. Þótt ung væri, aðeins 16 ára, 28 Hugur og hönd 1997

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.