Fréttablaðið - 18.03.2020, Qupperneq 2
Ég hef verið að fá
þetta á hnúana og
handarbökin og ég er ennþá
verri eftir allan handþvott-
inn.
Arnþór Jón Egils-
son, stjórnarmað-
ur í stjórn SPOEX
Veður
Norðaustan 13-23 m/s og snjó-
koma um landið norðanvert
síðdegis, hvassast á Vestfjörðum.
Hægari vindur sunnantil og stöku
él. Víða vægt frost. SJÁ SÍÐU 14
Borgarstjórnarfundur með breyttu sniði
Það er margt með breyttu sniði þessa dagana. Fundir borgarstjórnar Reykjavíkur í gær eru þar ekki undantekning. Vegna samkomubanns og til-
mæla um að menn haldi tveggja metra fjarlægð á milli sín, var brugðið á það ráð að færa hluta borgarfulltrúa upp á áhorfendapalla. Breikkað var
svo bilið milli þeirra sem í salnum sátu svo allt stæðist viðmið. Svona verður tilhögunin svo lengi sem samkomubannið gildir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
COVID-19 „Ég er sjálfur sérstaklega
slæmur núna eftir allan þennan
handþvott og spritt,“ segir Arnþór
Jón Egilsson, stjórnarmaður í stjórn
SPOEX, Samtaka psoriasis og exem-
sjúklinga.
Almannavarnir hafa gefið út
leiðbeiningar til almennings um
hvernig beri að forðast að smitast
af COVID-19 sjúkdómnum og er
handþvottur þar í fyrirrúmi ásamt
því að hendur séu vel sprittaðar.
Fyrir fólk með þurra húð, exem eða
psoriasis, getur mikill handþvottur
og sprittnotkun haft miklar afleið-
ingar.
„Ég er með psoriasis og það leggst
á staði sem eru viðkvæmir fyrir,“
segir Arnþór. „Ég hef verið að fá
þetta á hnúana og handarbökin og
ég er enn þá verri eftir allan hand-
þvottinn.“
Þá segir Arnþór handþvottinn og
sérstaklega sprittið geta framkallað
sár og mikil óþægindi fyrir þá sem
eru með exem eða psoriasis. „Ég er
alveg kominn með sár á hendurnar
og það er ekkert voðalega gott að
spritta, en auðvitað gerir maður
það,“ segir hann.
„Konan mín er jafnvel enn dug-
legri en ég í sprittinu og hún er ekki
með exem eða psoriasis en er orðin
verulega þurr á höndunum, svo ég
held að þetta geti átt við um alla,“
segir Arnþór.
Ragna Hlín Þorleifsdóttir, húð-
sjúkdómalæknir, tekur undir orð
Arnþórs og segir mikinn handþvott
geta haft þurrkandi áhrif á allar
hendur, en þó sér í lagi þá sem þjást
af exemi og psoriasis.
„Það sem er að gerast er það að
við erum að þvo burtu náttúrulega
húðfitu sem húðin framleiðir alla
jafnan og þær eru nauðsynlegar til
að halda húðinni mjúkri og lokaðri
þannig að við séum að verja okkur
gegn bakteríum í umhverfinu,“
segir hún.
„Auðvitað verðum við að þvo
hendurnar og nota handspritt á
meðan á faraldrinum stendur, við
komumst ekki hjá því, en það sem
er mikilvægast fyrir þá sem eru
með þurrar hendur er að nota hand-
áburð og tiltölulega feit rakakrem,“
segir Ragna og mælir þá með krem-
um sem ekki fari beint inn í húðina.
Arnþór segir að f lestir þeir sem
séu með psoriasis eða exem séu vel
birgir af kremum. „Við þekkjum
okkur sjálf og hvað við þolum.
Sumir þurfa kannski að leita til
læknis og fá sterkari krem eða eitt-
hvað svoleiðis til að komast yfir erf-
iðasta hjallann, en mín upplifun er
sú að allir séu tilbúnir að gera hvað
sem þarf til að hjálpast að í þessum
aðstæðum“ segir hann.
birnadrofn@frettabladid.is
Psoriasissjúklingar illa
leiknir af handspritti
Mikil áhersla er lögð á handþvott og sprittnotun í samfélaginu vegna CO-
VID-19. Psoriasis og exemsjúklingar finna mikið fyrir auknum einkennum og
húðsjúkdómalæknir segir mikilvægt að nota handáburð og þurr krem.
Fjöldi psoriasissjúklinga finnur fyrir auknum einkennum vegna mikils
handþvottar og sprittnotkunar á tímum faraldursins. MYND/ARNÞÓR
COVID -19 Erlendur ferðamaður,
sem leitaði til Heilbrigðisstofn-
unar Norðurlands á Húsavík vegna
alvarlegra veikinda á mánudag, lést
stuttu eftir komuna. Dánarorsök
liggur ekki fyrir en sjúkdómsein-
kennin voru ekki dæmigerð fyrir
COVID-19. Unnið er að því að skera
úr um dánarorsökina. Margþætt
vinna tekur nú við vegna þessa
máls, bæði varðandi andlát manns-
ins og stuðning við hans nánustu.
Þá þarf að styðja við og setja þá
heilbrigðisstarfsmenn sem komu
að meðferð mannsins í sóttkví,
sótthreinsa heilsugæslustöðina,
ásamt því að tryggja nauðsynlega
heilbrigðisþjónustu fyrir Hús-
víkinga.
Alls sinntu 22 starfsmenn Heil-
brigðisstofnunarinnar ferðamann-
inum með einum eða öðrum hætti.
Jón Helgi Björnsson framkvæmda-
stjóri segir af leiðingarnar marg-
þættar fyrir starfsemina. – fbl, kdi
Ferðamaður
lést á Húsavík
SAMFÉLAG Í síðustu viku vakti
langur ormur sem fannst í fiska-
búri tölvuleikjaframleiðandans
CCP athygli. Ormurinn, sem fékk
nafnið Valdimar, fannst grafinn í
sandi þegar verið var að undirbúa
f lutning búrsins. Við nánari mæl-
ingar reyndist Valdimar um 1,3
metrar að lengd og er talinn hafa
dvalið í búrinu um árabil án þess að
nokkur yrði hans var. Hann hefur
haft nægt rými til að fela sig, enda
er búrið sennilega eitt hið stærsta
á landinu, um 7.560 lítrar að stærð.
Ekki liggur fyrir af hvaða tegund
Valdimar er, en hann er augljóslega
burstaormur. Sumir slíkir ormar
klófesta og éta fiska með ógnvekj-
andi árásum en ekkert bendir þó til
að Valdimar hafi gætt sér á íbúum
búrsins. Líklegra er að hann hafi
vaxið og dafnað með því að éta litla
hryggleysingja auk þess sem sumir
burstaormar nærast á kóröllum.
Frá því hann fannst hefur Valdi-
mar dvalið einn í búri í viðhaldsher-
bergi en hagur hans gæti þó farið að
vænkast. Hann hefur vakið athygli
meðal áhugafólks um sjávarfiska-
búr og svo gæti farið að hann yrði
ættleiddur innan þess hóps.
Þá er Valdimar farinn að vekja
talsverða athygli meðal aðdáenda
EVE online, en greint var frá fundi
ormsins í síðasta fréttamyndbandi
tölvuleiksins á Youtube. Rúmlega 18
þúsund manns hafa horft á mynd-
bandið á nokkrum dögum. – bþ
Valdimar
ormur verður
ættleiddur
Ormurinn er 1,3 metrar að lengd
1 8 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð