Fréttablaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 14
Arnar hefur í nógu að snúast. „Ég er grafískur hönnuður og slagverksleikari og vinn
hjá hönnunarstofunni &&& sem
ég starfræki ásamt tveimur öðrum
hönnuðum. Ég hef óseðjandi
áhuga á grafískri hönnun, hlut
verki hennar í samfélaginu og
hvernig hönnun stuðlar að betri
lifnaðarháttum. Ég spila líka í
hljómsveitinni Bjartar sveiflur
með einstaklega prúðum og
yndislegum piltum.“
Kærkomin fjölskyldueign
Áður en Arnar f lutti í Þingholtin
bjó hann víða. „Ég ólst upp í Breið
holti við móann og Elliðaárnar.
Þaðan f lutti ég fyrst á Ægisgötu,
bjó við hliðina á Landakotsspítala,
og svo seinna út til Barcelona þar
sem ég stundaði nám. Síðan ég
kom heim hef ég búið á Haga
melnum og á Laugaveginum, áður
en ég f lutti hingað á Bergstaða
strætið árið 2018.“
Systur Arnars höfðu báðar búið
um skeið í íbúðinni áður en hann
flutti inn. „Þessi íbúð er kærkomin
fjölskyldueign og hefur nýst vel
bæði innan fjölskyldu og utan.
Báðar systur mínar; Ásdís María,
tónlistarkona og Anna Sóley,
sviðsmyndahönnuður, ásamt
f leiru góðu fólki, hafa búið hér
á undan mér og sett mikinn og
sterkan svip á íbúðina.“
Það sé raunar Önnu að þakka
hversu hugguleg íbúðin er. „Allir
í fjölskyldunni hafa lagt sitt af
mörkum við að betrumbæta
hana reglulega í gegnum árin
með nostri hér og þar, en það er
líklega Önnu Sóley að þakka að
íbúðin lítur svona yndislega vel út
í núverandi mynd,“ segir Arnar,
þakklátur.
„Húsið var byggt árið 1931 svo
íbúðin er aldargömul, bókstaflega.
Ég veit ekki um neina sögu nema
þá sem við í fjölskyldunni erum
að búa til sjálf. Hún er griðastaður
okkar systkinanna og hvert og eitt
hefur skilið eitthvað eftir fyrir hið
næsta, hér er nóg af draumaföng
urum, reykelsum og tarotspilum
til að opna bás á Hjartatorgi.“
Innilegt andrúmsloft
Framkvæmdir hafa helst snúið
að grunnatriðum. „Pípulögn
hefur verið tekin í gegn að hluta,
létt á eldhúsinnréttingunni, en
að öðru leyti hefur aðeins verið
málað og lagað eins og gengur og
gerist. Grunnatriði, bókstaflega,
því mörg þessara atriða sneru
að grunni hússins. Systir mín lét
sérsmíða lítinn bekk undir eina
súðina, sem hefur vakið mikla
lukku enda mikill sælureitur í
íbúðinni.“ Þá er sitthvað á döfinni.
„Gluggar eru á dagskrá – þakið fer
að þurfa viðhald.“
Það stendur ekki á svörum hjá
Arnari þegar hann er beðinn um
að lýsa andrúmslofti heimilisins.
„Náttúruskotin naumhyggja. Hér
er allt lágstemmt og lausnamiðað.
Blærinn er rólegur og andrúmsloft
innilegt – ég get ekki ímyndað mér
betri stað til að vera í sóttkví núna
næstu vikurnar, hér er bókstaflega
endurnærandi að vera.“
List heimilisins kemur úr
ýmsum áttum og þá ekki síst frá
fólki sem er honum kært. „Ég reyni
að hafa verk eftir vini og samferða
menn eftir því sem plássið leyfir.
Ég er svo lánsamur að vinna með
mjög góðu fólki, við starf sem mér
finnst bæði gefandi og mikilvægt
og íbúðin er vitnisburður um það.
Ég er með verk eftir okkur frá
&&&, sem og aðra listamenn og
hönnuði; Are We Studio, Sigga
Odds, Loja Höskulds og Hildi
gunni Birgisdóttur.“
Ljúfur niður stofunnar
Uppáhaldsstaðurinn og hjarta
heimilisins er stofan. „Litla stofan
mín. Hún er minn griðastaður
frá öngþveiti heims og huga. Ég er
haldinn óbilandi forvitni og finnst
nánast allt sem ég kynni mér
áhugavert. Það getur verið erfitt
að henda reiður á hugmyndunum,
hugsununum og höfuðatriðum
sem þeytast í gegnum hausinn á
mér hverju sinni og stofan þjónar
hlutverki íhugunar, vinnu og af
slöppunar. Hún er sem ljúfur niður
fyrir háværan hug.“
Hann á sér hins vegar engan
uppáhaldshlut. „Ég held ég eigi
mér engan eiginlegan uppáhalds
hlut – ég tel varhugavert að tengjast
hlutum um of.
Ég bjó í mun stærri íbúð á Lauga
vegi, drekkhlaðinni af drasli, en
tamdi mér hófstilltari neysluvenjur
þegar ég flutti hingað, þar sem
þessi íbúð býður ekki upp á farma
af farangri. Ég þurfti því að losa
mig við ógrynni af dóti sem mér
fannst í fyrstu óhugsandi að láta
frá mér, en nú get ég ekki ímyndað
mér að dragnast með það og fagna
ég því að vera laus við allt hafur
taskið, pínulítið eins og að vera
laus úr spennitreyju.“
Hvað er efst á óskalistanum fyrir
heimilið? „Straujárn, svo ég geti
skilað mömmu hennar straujárni.“
Þá segir hann afar mikilvægt að
nostra við heimili sitt, enda hafi
það umtalsverð áhrif á líðan. „Það
skiptir máli að vera samkvæmur
sjálfum sér og að rýmið endur
spegli það. Persónulega legg ég
mikið upp úr næði, kyrrð og and
rými til að ná góðri einbeitingu
og fá form á hugsanir. Það er líka
mikilvægt að umhverfið næri þig
og geri þig stolt/stolta/stoltan af
því sem þú ert, sama hvað öðrum
finnst. Án stolts ertu ekki neitt.“
Arnar er ekki í nokkrum vafa
um hvaðan hann sækir innblástur.
„Minn stærsti innblástur er fólkið
í kringum mig. Allt annað kemur í
kjölfarið.“
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Arnari líður vel heima hjá sér og segist ekki geta ímynd-
að sér betri stað til að vera í sóttkví, komi til þess.
Arnar Ingi segir systur sínar tvær hafa sett sterkan svip á íbúðina, þar sé nóg af draumaföngurum, reykelsi og tarotspilum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Arnar segist hafa upplifað mikið frelsi eftir að hafa
þurft að losa sig við ógrynni af dóti. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Arnar er mikill áhugamaður um
samfélagslegt hlutverk hönnunar.
Eldhúsið er lítið en notalegt og
plönturnar gefa því hlýlegan blæ.
Það er sem hver hlutur þjóni sínum
tilgangi á fallegu heimili Arnars.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . M A R S 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R