Fréttablaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 10
AÐALFUNDI
Fylkis frestað
Vegna samkomubanns hefur aðalfundi félagsins sem átti að vera
þriðjudaginn 31. mars 2020 verið frestað.
Ný tímasetning verður auglýst síðar.
Aðalstjórn Fylkis
SÓTTKVÍ & SAMKOMUBANN
Sérblað Fréttablaðsins, Sóttkví og samkomubann, kemur út þriðjudaginn 24. mars.
Í blaðinu geta fyrirtæki fjallað um stefnu sína og áherslur í sambandi við heimsfaraldurinn
COVID–19.
Nú þegar stór hluti þjóðarinnar þarf að einangra sig frá öðrum og halda sig heima velta
eflaust margir fyrir sér hvað þeir geti gert til að líða sem best yfir þann tíma.
Hvort sem það er hreyfing, mataræðið, bækur, góðir tölvuleikir o.s.frv. þá geta fyrirtæki og
einstaklingar látið vita af vörum og þjónustu sem þau bjóða upp á í þessu blaði.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Áhugasamir auglýsendur hafi samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími 550 5654
jonivar@frettabladid.is
Arnar Magnússon
Sími 550 5652
arnarm@frettabladid.is
Atli Bergmann
Sími 550 5657
atlib@frettabladid.is
Ruth Bergsdóttir
Sími 694 4103
ruth@frettabladid.is
1 8 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Stjórn KSÍ fundar á morgun
Stjórn KSÍ kemur saman á morgun
og mun funda um framhaldið
gagnvart innlendu mótahaldi.
Bikarkeppnin á að byrja 8. apríl
en ljóst er að hún mun ekki byrja
enda samkomubann í gildi og
verða að vera tveir metrar á milli
manna. Það yrði hálf skrýtinn
fótboltaleikur sem yrði spilaður
þannig. KSÍ frestaði öllum leikjum
sínum, sem og landsliðsæfingum,
til 15. apríl. Beðið er frekari upp-
lýsinga frá UEFA um hugsanlegar
breytingar á fyrirkomulagi for-
keppni Evrópukeppna.
Hægt að halda miðunum
Öllum leikjum A-landsliða karla
sem fara áttu fram dagana 23.-
31. mars hefur verið frestað og
áætlað er að þeir fari fram í byrjun
júní. Þessi frestun nær til umspils-
leiks íslenska A-landsliðsins gegn
Rúmeníu í lokakeppni EM, sem
fara átti fram 26. mars á Laugar-
dalsvelli, og annarra umspilsleikja
innan sömu dagsetninga. Á heima-
síðu KSÍ segir að miðakaupendum
standi til boða að halda miðunum,
eða fá þá endurgreidda en frekari
upplýsingar verða sendar til miða-
kaupenda með tölvupósti.
Beðið eftir ákvörðun UEFA
Fyrir utan umspilsleikina og EM
ákvað UEFA að fresta leikjum
A-landsliða kvenna sem fara áttu
fram í apríl og verða nýjar dag-
setningar tilkynntar síðar, ásamt
frekari breytingum á leikjadagatali
A-landsliða kvenna. Úrslitakeppni
EM kvenna 2021 verður frestað.
Íslensku stelpurnar áttu að mæta
Ungverjalandi og Slóvakíu í apríl.
Leikjum U-21 árs landsliða var
slegið á frest en Ísland átti leiki
gegn Írlandi og Armeníu. Úrslita-
keppni EM U21 landsliða karla
verður færð á nýjar dagsetningar.
FÓTBOLTI UEFA ákvað á símafundi
með 55 aðildarríkjum að fresta
komandi Evrópumóti um eitt ár.
Umspilsleikurinn við Rúmena verð-
ur á dagskrá í byrjun júní. Tillagan
var samþykkt einróma samkvæmt
Aleksander Ceferin, forseta UEFA,
en tilkynning frá sambandinu barst
í gær skömmu eftir fund. „Á þessum
tímum þarf fótboltasamfélagið að
sýna ábyrgð í verki, samhug og
einingu. Heilsa stuðningsmanna,
starfsmanna og leikmanna þarf að
vera forgangsverkefni.
Við í UEFA lögðum fram nokkra
möguleika um hvernig er hægt
að klára deildarkeppnir um alla
álfuna. Ég er stoltur af viðbrögðum
samstarfsmanna minna í evrópsk-
um fótbolta. Það var góður andi þar
sem allir viðurkenndu að þeir yrðu
að fórna einhverju til að ná sem
bestum úrslitum,“ sagði forsetinn.
Hann bætti við að kostnaðurinn
við að færa mótið væri gríðarlegur
en sambandið muni eftir fremsta
megni tryggja nauðsynlega fjár-
muni fyrir grasrótarstarf innan 55
aðildarríkja. „Leiðarljós okkar var
að hafa ekki hagnað í huga heldur
að vinna í þágu fótboltans í Evr-
ópu. Að fagna afmæli keppninnar
á tómum völlum meðan álfan situr
heima í einangrun gátum við ekki
sætt okkur við.“ Í lokin sagði forset-
inn að enn væru nokkur smáatriði
sem eftir væri að leysa en það hafi
verið tekið stórt skref fram á við.
Frestunin gef ur deildum í
Evrópu auka mánuð eða svo til
að klára deildarkeppnirnar sínar,
fari svo að COVID-19 faraldurinn
fari minnkandi. Ómögulegt er
að spá fyrir um hvort það gerist.
Umspilsleiknum slegið á frest
Evrópumótið, sem átti að fara fram í sumar, var fært fram um eitt ár. Umspilsleikurinn við Rúmena fer fram í byrjun júní. Frestunin
gefur deildum Evrópu tækifæri til að klárast fari svo að tilfellum af COVID-19 fækki á næstu vikum – sem er alls óvíst að gerist.
Aleksander Ceferin, forseti UEFA, með bikarinn eftirsótta sem verður spilað um á næsta ári. MYND/GETTY
NFL Eftir 21 ár skilja leiðir Toms
Brady og New England Patriots í
dag þegar samningur hans rennur
út í Foxborough. Brady tilkynnti á
samskiptamiðlum sínum í gær að
hann myndi yfirgefa Patriots fyrir
næsta tímabil en næsti áfanga-
staður væri ekki kominn á hreint.
Hinn 42 ára gamli Brady er einn
besti leikmaður í sögu deildarinnar
og er á hreinu að það verður bitist
um þjónustu hans. Alls hafa Pat-
riots unnið sex meistaratitla með
Brady innanborðs en enginn annar
leikmaður í sögu deildarinnar hefur
unnið titilinn oftar.
Saga Brady í deildinni er á sinn
hátt ótrúleg, hann var valinn með
199. valrétti í nýliðavalinu árið 2000
og var farinn að stýra sóknarleik
liðsins ári síðar. Hann small sem
f lís við rass í sóknarleik Patriots
undir stjórn Bills Belichick og vann
titil strax á fyrsta ári. Á nýafstöðnu
tímabili virtist aldurinn vera far-
inn að ná til Brady sem átti erfitt
uppdráttar með takmarkað úrval
útherja. Vörn Patriots f leytti liðinu
í úrslitakeppnina þar sem liðið féll
út við fyrstu hindrun. – kpt
Sá besti laus allra mála
Eftir að knattspyrnusamböndin
luku sínum fundi var hringt í The
European Club Association, sem
samanstendur af stærstu félags-
liðum álfunnar, og leikmannasam-
tök Evrópu til að finna út úr hvernig
er hægt að klára Meistaradeildina
og Evrópudeildina. UEFA skipaði
í kjölfar þess fundar vinnuhópa
sem eiga að finna út úr því hvernig
í ósköpunum er hægt að klára þær
deildir. Spænska blaðið Marca sagði
að úrslitaleikurinn myndi fara fram
27. júní í Istanbul en UEFA vildi ekki
staðfesta það.
Til að liðka enn frekar fyrir var
Suður-Ameríkukeppninni einn-
ig frestað til 2021 og því bíða nú
allir tengdir fótboltanum eftir að
COVID-19 faraldurinn hverfi – svo
hægt sé að fara sparka í bolta á ný.
benediktboas@frettabladid.is
Ísland mætir Rúmeníu í
undanúrslitum umspilsins í
byrjun júní á Laugardals-
velli, en úrslitaleikurinn fer
svo fram 31. mars, annað-
hvort gegn Búlgaríu eða
Ungverjalandi.