Fréttablaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 23
Allt telur
Rafrænn aðalfundur Marel fer fram í dag, 18. mars 2020, kl. 16:00.
Nánari upplýsingar á marel.com/investors.
Með nýsköpun og sjálfbærni að leiðarljósi höldum við ótrauð áfram
að umbylta matvælaframleiðslu á heimsvísu. Þar höfum við ætíð hugfast
að allt telur. Hver og einn vatnsdropi við framleiðslu. Hver og ein hugmynd.
Hvert og eitt viðbótargramm af matvöru. Hvert og eitt okkar jarðarbúa.
Fjármálaráðherra Bret-lands sagði í gær að bresk stjórnvöld myndu tryggja þarlendum fyrir-tækjum lánsfjármögnun upp á 330 milljarða
punda til þess að hjálpa þeim að
glíma við af leiðingar kórónaveir-
unnar sem herjar nú á heimsbyggð-
ina.
„Ég vil fullvissa alla Breta um að
þessi ríkisstjórn mun veita ykkur
öll þau töl sem þið þurfið til þess
að komast í gegnum þetta,“ sagði
fjármálaráðherrann, Rishi Sunak,
á blaðamannafundi síðdegis í gær.
Ráðherrann nefndi að björgunar-
pakkinn - sem kemur til viðbótar
við sjö milljarða punda fjárhags-
stuðning fyrir fyrirtæki sem til-
kynnt var um í síðustu viku - fæli
einnig í sér niðurfellingu fasteigna-
gjalda á þessu ári auk þess sem
stjórnvöld hefðu í hyggju að veita
smásölum og krám sem glíma við
lausafjárvanda sérstakan styrk upp
á 25 þúsund pund.
Sunak greindi einnig frá því að
breskir bankar hefðu samþykkt
að bjóða þeim heimilum sem þess
þyrftu að gera hlé á af borgunum
húsnæðislána í allt að þrjá mánuði.
Fjármálaráðherrann, sem ávarp-
aði blaðamenn ásamt Boris Johnson
forsætisráðherra, sagði ríki aldrei
hafa staðið frammi fyrir eins mikilli
efnahagsógn á friðartímum og nú.
Bresk stjórnvöld myndu gera
„hvað sem þarf“ til þess að verja
heimili og fyrirtæki. Umfang
aðgerðanna hefði verið „óhugsandi
fyrir aðeins nokkrum vikum“.
Nú væri ekki tími fyrir hagfræði-
legar bókstafskenningar heldur
þyrfti að grípa til djarfra og hug-
rakkra ákvarðana.
Fyrri aðgerðir dugðu ekki til
Þrýst hefur verið á bresku ríkis-
stjórnina að grípa til frekari aðgerða
eftir að Emmanuel Macron, forseti
Frakklands, hét því á mánudags-
kvöld að verja allt að þrjú hundruð
milljörðum evra til þess að koma í
veg fyrir gjaldþrot franskra fyrir-
tækja.
Viðmælendur Financial Times
benda á að breskir ráðherrar hafi
gert sér grein fyrir því á síðustu
dögum að sjö milljarða punda
stuðningurinn sem tilkynnt hafi
verið um í liðinni viku, samhliða
fjárlagafrumvarpi Sunaks, myndi
ekki duga til þess að hjálpa fyrir-
tækjum í lausafjárerfiðleikum og
hvað þá til þess að róa markaði sem
hafa lækkað skarpt á undanförnum
vikum.
Flugfélög, lestarfyrirtæki, smá-
salar, krár og veitingastaðir eru á
meðal þeirra sem hafa kallað eftir
ríkisstuðningi, að sögn Financial
Times.
Vilja dreifa ávísunum til allra
Fleiri vestræn ríki greindu í gær
frá áformum sínum um milljarða
innspýtingu í hagkerfi sín en sem
dæmi sagði Steven Mnuchin, fjár-
málaráðherra Bandaríkjanna, að
yfirvöld þar í landi hefðu áhuga á
því að senda innan tveggja vikna
öllum Bandaríkjamönnum sérstaka
ávísun í því augnamiði að örva hag-
kerfi landsins.
„Hann mun verða stór,“ sagði
Donald Trump Bandaríkjaforseti
um örvunarpakkann sem ríkis-
stjórn hans undirbýr nú vegna far-
aldursins en samkvæmt heimildum
Financial Times gæti pakkinn, sem
Bandaríkjaþing þarf að leggja bless-
un sína yfir, numið á bilinu 800 til
850 milljörðum dala.
Larry Kudlow, einn helsti ráðgjafi
Trumps í efnahagsmálum, gagn-
rýndi nýverið hugmyndir um að
eins konar ávísunum yrði dreift til
Bandaríkjamanna og líkti þeim við
„þyrlupeninga“ sem kæmu af himn-
um ofan. Þess má þó geta að á þeim
tíma sem Kudlow lét ummælin
falla taldi Bandaríkastjórn að hag-
kerfi landsins yrði ekki fyrir veru-
legu höggi vegna kórónaveirunnar.
Sú skoðun hefur breyst á síðustu
dögum.
Fyrr í vikunni viðraði Mitt Rom-
ney, þingmaður repúblikana, ásamt
f leiri þingmönnum svipaðar hug-
myndir sem ganga út að allir Banda-
ríkjamenn fái af hentar ávísanir
fyrir eitt þúsund dali. Þingmenn-
irnir segja slíkar ávísanir munu fela
í sér innspýtingu í bandarískt hag-
kerfi og hjálpa mörgum heimilum
við að ná endum saman.
kristinningi@frettabladid.is
Boðar 330 milljarða punda pakka
Bresk stjórnvöld hyggjast tryggja fyrirtækjum landsins neyðarfjármögnun fyrir allt að 330 milljarða punda. Fasteignagjöld verða
felld niður í ár. Ríkisstjórn Donalds Trump vill dreifa ávísunum til allra Bandaríkjamanna til þess að örva hagkerfi landsins.
Rishi Sunak, fjármálaráðherra Bretlands, og Boris Johnson forsætisráðherra kynntu aðgerðirnar í gær. MYND/AFP
9M I Ð V I K U D A G U R 1 8 . M A R S 2 0 2 0 MARKAÐURINN